Fréttablaðið - 13.10.2012, Side 80
13. október 2012 LAUGARDAGUR52
Hvenær ákvaðstu að gerast sjó-
ræningi? Þegar ég sá seglskip í
fyrsta sinn hugsaði ég, þarna vil
ég búa.
Hvað er skemmtilegast við að
vera sjóræningi? Að sigla um
heimsins höf.
Verðurðu einhvern tíma hrædd-
ur? Ég er hræddur við drauga.
Hvað heitir páfagaukurinn þinn
og af hverju kann hann að tala?
Hann heitir Flint skipstjóri og
ég hef talað svo mikið við hann
þegar við erum úti á ballarhafi,
að hann er löngu farinn að svara
mér fullum hálsi.
Hvenær eignaðistu hann? Ég
vann hann í veðmáli fyrir langa
löngu.
Hver er besti vinur þinn? Það er
páfagaukurinn minn.
Hefurðu gert eitthvað sem þú
sérð eftir? Já, ég skildi vin minn
Ben Gunn einan eftir á Gulleyj-
unni.
Hvernig finnast þér myndirnar
Pirates of the Caribbean? Þær
eru nú bara bull og vitleysa.
Hefurðu orðið sjóveikur? Nei, er
sjóveikin nokkuð að ganga hér á
Íslandi?
Hvað borðar þú á morgnana?
Epli.
Ertu ríkur? Já, ég á nokkra gull-
peninga falda á vísum stað.
Hver er flottasti sjóræningi sem
þú þekkir (fyrir utan þig)? Það
er Flint skipstjóri.
Eru þið Jim góðir félagar? Já,
hann er ágætis piltur hann Jim.
krakkar@frettabladid.is
52
Þegar ég sá
seglskip í fyrsta
sinn hugsaði ég, þarna
vil ég búa.
1. Hvenær fæddist hann?
2. Í hvaða landi fæddist hann?
3. Hvað heitir mamma hans?
4. Hvernig var hann uppgötvaður?
5. Hvað heitir fyrsta lagið sem hann
gaf út?
6. Hver voru áhugamál hans í skóla?
7. Hvað var hann gamall þegar fyrsta
lagið hans kom út og hann varð
frægur?
8. Hvað heitir fyrsta platan hans?
9. Hvað er vinsælasta lag sem
hann hefur sent frá sér.
10. Hvað heitir kvikmyndin sem
var gerð um hann?
Hvað veistu um Justin Bieber?
1. 1. mars 1994.
2. Kanada.
3. Pattie Mallette.
4. Umboðsmaðurinn
Scooter Braun sá mynd-
bönd með honum á You-
tube og hafði samband við
hann til að bjóða honum
plötusamning.
5. One time.
6. Hokkí, fótbolti og skák.
7. 15 ára.
8. My world.
9. Baby.
10. Never say never.
MÖGULEIKHÚSIÐ sýnir barnaleikritið Prumpuhólinn eftir Þorvald Þorsteinsson
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi á morgun, 14. október, klukkan 14. Sýningin er
ætluð áhorfendum á aldrinum tveggja til tíu ára og tekur 45 mínútur í flutningi.
1. Ég er karlmaður og heiti
það sem hópur fólks er. Hvert
er nafn mitt?
2. Ég er nytsamlegur hlutur og
þú togar oft í mig. Það gengur
vel ef þú ferð varlega, annars
stansa ég stundum og fer út
af brautinni. Hver er ég?
3. Hvenær er hægt að bera
vatn í gatasigti?
4. Hvað getur svarað öllum
spurningum, og það á öllum
tungumálun?
5. Hvaða stökk er auðveldast
þegar fólk er reitt?
6. Ég er karlmaður og heiti
það sem fátækur er. Hvert er
nafn mitt?
7. Hvað er það sem Guð gefur
þér tvisvar, en í þriðja sinn
þarft þú að borga fyrir það?
1. Lýður. 2. Rennilás. 3. Þegar
það er frosið. 4. Bergmálið. 5.
Að stökkva upp á nef sér. 6.
Eiríkur. 7. Tennurnar.
Teikningar og texti Bragi Halldórsson
13
svar: A
við nú vera,“ sagði Konráð hugsi. „Við erum á leiðinni á Langanes og fórum
norðurleiðina og núna eru bara endalaust há fjöll allt um kring og ég veit
ekkert hvar við erum.“ Jafnvel fjallabúinn Róbert þagði. „Róbert,“ sagði
Kata lymskulega, en Róbert svaraði engu. „Við erum með kort, skoðum það,“
sagði Lísaloppa. „Sko,“ bætti hún við, “samkvæmt kortinu virðist þetta
vera heljarmikill skagi með háum fjöllum.“
Veist þú hvaða skagi þetta
er? Er þetta:
A. Tröllaskagi
B. Reykjanesskagi
D. Skipaskagi
PIRATES OF THE CARIB-
BEAN ER ALGJÖRT BULL
Sjóræninginn Langi Jón Silfur skemmtir gestum Borgarleikhússins um þessar
mundir en hann leikur stórt hlutverk í Gulleyjunni. Krakkasíðunni lék forvitni á að
vita eitt og annað um Langa Jón og hann féllst á að svara nokkrum spurningum.
LANGI JÓN SILFUR Kenndi páfagauknum sínum að tala fyrir margt löngu.
Á Vísi er hægt að horfa á
mynd skreyttan upp lestur
úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928
í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað.
Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl enska meistarans
G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.