Fréttablaðið - 13.10.2012, Qupperneq 82
13. október 2012 LAUGARDAGUR54
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. skraf, 6. kringum, 8. skordýr, 9.
kelda, 11. belti, 12. losti, 14. vinna,
16. drykkur, 17. hélt á brott, 18. arða,
20. golf áhald, 21. feiti.
LÓÐRÉTT
1. nautasteik, 3. frá, 4. burnirót,
5. bæli, 7. aftursegl, 10. gagn, 13.
útdeildi, 15. frjáls, 16. frestur, 19. skst.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. rabb, 6. um, 8. fló, 9. fen,
11. ól, 12. frygð, 14. starf, 16. te, 17.
fór, 18. ögn, 20. tí, 21. flot.
LÓÐRÉTT: 1. Buff, 3. Af, 4. Blóðrót, 5.
Ból, 7. Mersegl, 10. Nyt, 13. Gaf, 15.
Frír, 16. Töf, 19. No.
Hvað get
ég sagt
zkítur? Ekkert
hræddur og
þú slefar ekki
nóg ... svona
já!
Allt í lagi, litla
rækja! Þú ert að
biðja um það!
Ennþá
rólegur
sko!
Góða
nótt!
Sko, Palli,
hættu bara
að senda
SMS við
matarborðið.
Það er
dónalegt og
pirrandi.
Ókei
þá.
Hann fór frá
því að vera
dónalegur og
pirrandi yfir í að
vera fúll og sár.
Skál fyrir
breytingum!
Hvað heiti ég?
Rafn Gates.
Ég er ekkert
skyldur Bill.
BARNA
„FYRSTU“
Fyrsta bros fyrsta barns Fyrsta bros annars barns Fyrsta bros þriðja barns
Þetta er það
fallegasta sem
ég hef séð!
Sætt
Hvað er
svona
fyndið?
Ung stúlka var skotin í höfuðið fyrir utan skólann sinn fyrir að heimta að fá að
fara í skóla.
SAMKYNHNEIGÐUR tónlistarmaður er
látinn vegna langtíma afleiðinga líkams-
árásar sem hann varð fyrir, sem var sam-
félagslega samþykkt og sem yfirvöld sáu
ekki ástæðu til að meðhöndla sem sakamál.
LITLAR stúlkur eru látnar giftast fullorðn-
um mönnum og deyja svo af barnsförum af
því að þær eru of óþroskaðar líkamlega til
að fæða börn.
EN ekki á Íslandi. Nei, auðvitað ekki á
Íslandi. Eins og Sverrir Stormsker benti
réttilega á eru heimsstyrjaldir í öðrum
löndum. Hér er búið að leysa öll þessi og
viðlíka vandamál. Allar stelpur fara í
skóla og ef þær vilja það ekki eru þær
skikkaðar til þess. Hommar eru bara
eins og venjulegt fólk nema einu
sinni á ári, þegar þeir fá sérstaka
skrúðgöngu til að vera flottari og
merkilegri en venjulegt fólk.
VIÐ Íslendingar erum til fyrir-
myndar á mörgum sviðum. Við
menntum börnin okkar og endur-
menntum fullorðna fólkið, við
lesum og gefum út flestar bækur
á einstakling í heimi, listalíf
er í fágætum blóma, sjúkir fá
líkn og fólk með gleraugu fær stuðning frá
stéttarfélagi til að fara í laser-aðgerðir. Við
erum alveg frábær og getum svo sannarlega
hryllt okkur yfir fréttum utan úr heimi,
sýnt fórnarlömbum stuðning, skammast
yfir skammsýni, trúarofstæki og mann-
vonsku þjóða sem eru ekki komnar eins
langt og við, hvort sem þær eru nágrannar
okkar og frændur eða ómenni í asnalegum
fötum með allt of mikið skegg.
EIN frétt vikunnar skar sig úr hvað varðaði
nálgun í umræðunni. Hún fjallaði um grófa
kynferðislega árás á unga stúlku. Flestum,
vonandi öllum, fannst þetta óhugnanleg
frétt en þó vakti hún jákvæð viðbrögð hjá
ákveðnum hópi. Gleði þeirra snerist þó
ekki um efni fréttarinnar, fjarri því, heldur
framsetningu hennar. Eða nánar tiltekið um
fjarveru eins orðs. Orðið var „meint“.
ÞVÍ að þrátt fyrir að við séum framarlega
í mörgu og þó að við séum jafnvel fremst á
einhverjum sviðum má alltaf bæta. Og það
að lítil stelpa sé EKKI rengd, þegar hún
kemur grátandi inn á lögreglustöð og segir
að sér hafi verið nauðgað og sýnir áverka
sem eru í samræmi við frásögn hennar,
er vissulega fagnaðarefni. Þó að einhverj-
um finnist kannski að það ætti að vera
jafn sjálfsagt og að fyllast hryllingi yfir
„meintri“ líkamsárás á samkynhneigðan
mann, „meintum“ barnabrúðkaupum eða
„meintu“ byssuskoti í höfuðið.
Í meintum var þetta helst
HEIÐURSGESTIR
Raggi Bjarna,
Jón Páll Bjarna
son
og Guðmundur
Steingrímsson
Minningarto’nleik
ar
ANDREA GYLFADÓTTIR · DIDDÚ · EIVÖR · ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR
GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR · KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR · LAY LOW
RAGGA GÍSLA · SIGGA BEINTEINS · BJÖRGVIN HALLDÓRSSON · EGILL ÓLAFSSON
GISSUR PÁLL GISSURARSON · STEFÁN HILMARSSON
www.sena.is/elly
19:00 HÖLLIN OPNAR
20:00 TÓNLEIKAR HEFJAST
GÓÐA SKEMMTUN Í KVÖLD
Í LAUGARDALSHÖLLINNI