Fréttablaðið - 13.10.2012, Side 93
LAUGARDAGUR 13. október 2012 65
Útvarpsþátturinn gamalgróni
Party Zone verður með 22 ára
afmælisþátt á Rás 2 á laugar-
dagskvöld og á Ruv.is/party-
zone. Mörgum plötusnúðum og
vinum þeirra verður boðið í partí
í Stúdíó 12 og verður útvarpað
beint frá herlegheitunum. Þeir
sem koma fram í þættinum eru
FKNHNDSM, Már & Nielsen,
Dj Margeir (Gluteus Maximus),
Viktor Birgisson ásamt Söndru
Barilli og Sísý Ey. Klukkan 23 um
kvöldið hefst svo afmælispartí á
skemmtistaðnum Dollý þar sem
fram koma Andrés Nielsen, Sísí
Ey og DJ Margeir.
Afmæli hjá
Party Zone
AFMÆLI Kristinn Helgi Stefánsson og
Helgi Már Bjarnason stjórna Party Zone.
Leikarinn Robert Pattinson hefur
undanfarið verið að sleikja sárin
eftir framhjáhald fyrrverandi
kærustu sinnar Kristen Stewart.
Síðustu vikur hafa slúðurmiðlar
velt fyrir sér hvort Pattinson hafi
fyrirgefið svikin og sé búinn að
taka við Stewart á ný.
Leikarinn gerði hins vegar út
um það er hann var myndaður í
faðmlögunum við óþekkta ljós-
hærða stúlku á skemmtistað í
New York í vikunni. Slúðurmiðill-
inn Tmz.com birtir myndirnar og
hefur eftir ónafngreindum heim-
ildamönnum að Pattinson hafi
ekki slitið sig frá stúlkunni allt
kvöldið.
Forvitnilegt verður að fylgjast
með þeim Stewart og Pattinson
er nýjasta Twilight-myndin, The
Twilight Saga: Breaking Dawn –
Part 2, verður frumsýnd í nóvem-
ber.
Í faðmlögum
KOMINN MEÐ NÝJA? Robert Pattinson
sást í faðmlögum við óþekkta stúlku á
skemmtistað í New York.
NORDICPHOTOS/GETTY
Leikarinn Matthew McConaughey er ekki svipur hjá
sjón, en hann hefur lést um rúmlega 13 kíló á síðustu
vikum. Ástæða fyrir þyngdartapi McConaughey er að
hann er að leika í myndinni The Dallas Buyer´s Club sem
er sönn saga um mann sem smitast af alnæmi á áttunda
áratuginum og leitar á náðir óhefðbundinna lækninga til
að lengja lífið.
McConaughey sagði í viðtali við spjallþáttakónginn
Larry King að hann drykki mikið te til að grennast en
að það hefði verið erfitt þar sem eiginkona hans, Camila,
væri ólétt af þriðja barni þeirra hjóna og því dugleg að
freista hans með girnilegum mat. „Það tekur tíma fyrir
líkamann að venjast lítilli næringu en fyrir mig hefur
þetta verið ákveðin hreinsun, andleg og líkamleg.“
Ekki er langt síðan McConaughey þurfti að þyngja sig
fyrir hlutverk strippara í Magic Mike en þá borðaði hann
fimm máltíðir á dag.
Óþekkjanlegur McConaughey
LÉST UM 13 KÍLÓ Leikarinn hefur lést mikið á síðustu
vikum. NORDICPHOTOS/GETTY
Rúmlega ár er síðan Hollywood-
parið Ashton Kutcher og Demi
Moore skildi en skilnaðurinn er þó
ekki enn þá genginn í gegn. Hjónin
eiga víst erftt með að skipta á milli
sín eignum og peningum. Eignir
þeirra eru metnar á nokkra millj-
arða, en Moore og Kutcher voru
gift í sex ár. Í byrjun hjónabands-
ins var Moore meiri stjarna en
síðustu ár hefur Kutcher verið að
klifra upp metorðastigann í Holly-
wood.
Kutcher hefur nú tekið saman
við leikkonuna Milu Kunis og hún
er eflaust ekki ánægð með að hann
sé enn giftur Moore.
Skilnaðurinn
gengur hægt
EKKI SKILIN Demi Moore og Ashton
Kutcher eiga erfitt með skipta á milli sín
eignum og því hefur skilnaðurinn tafist.
NORDICPHOTOS/GETTY
facebook.com/noisirius