Fréttablaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 43
| FÓLK | 3HELGIN
Um 7.000 gestir sækja hátíðina, sem
nú er haldin í fjórtánda skiptið. Í ár eru
erlendir gestir í fyrsta sinn fleiri en Ís-
lendingar, en búið er að selja um 4.000
miða til erlendra gesta í ár.
Á síðasta ári eyddu erlendir gestir
um 650 milljónum króna yfir hátíðina
og gera aðstandendur Iceland Airwa-
ves ráð fyrir að sú tala hækki í um einn
milljarð í ár. Flestir erlendir gestir á
síðasta ári komu frá Bandaríkjunum
og Bretar og Þjóðverjar voru líka
fjölmennir. Hátíðargestir frá þessum
þremur löndum voru um 55 prósent
erlendra gesta á síðasta ári. Meðal-
aldur erlendra gesta var tæplega 29
ár í fyrra og er stærstur hluti þeirra á
aldursbilinu 18-34 ára. Karlmenn eru
í meirihluta erlendra gesta, tæplega
sextíu prósent. Uppselt er á hátíðina
en þeir sem eiga ekki miða geta þó
notið fjölda ókeypis viðburða á vegum
hátíðarinnar víðs vegar um borgina.
Hátíðinni lýkur á sunnudaginn.
MYND/RÚNAR S. SIGURJÓNSSON
ÚTLENDINGAR FJÖLMENNA Á AIRWAVES
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves setur svip sinn á Reykjavík um helgina.
Þessi kraftmikla og holla
súpa er frá Úkraínu og
er afar vinsæl í mörgum
austurevrópskum
löndum.
Rauðrófur leika stórt hlut-
verk í þessari súpu, en þær eru
afar hollar og góðar. Þetta er
stór uppskrift sem gæti dugað
mörgum en einnig er gott að
hita súpuna daginn eftir.
2 l vatn
6 nautakjötsteningar
6 rauðrófur
Hvítkál
3 kartöflur
1 sellerístilkur
2 gulrætur
4 lárviðarlauf
3 msk. olía
1 hvítlauksrif
Salt og pipar
Sjóðið upp vatn með súputen-
ingunum. Skrælið rauðrófurnar
og skerið í litla bita (notið
hanska), skerið niður hvítkál,
gulrætur, kartöflur og sellerí.
Setjið grænmetið út í pottinn og
bragðbætið með olíu, salti og
pipar. Látið súpuna malla í að
minnsta kosti eina klukkustund.
RÚSSNESK
VETRARSÚPA
Prjónaæðinu eru engin
takmörk sett.
Höfundar bókarinnar Jóla-
kúlur, sem nýverið kom út í ís-
lenskri þýðingu, kynna bókina
og breiða út prjónaboðskapinn
með því að heimsækja A4 á
Smáratorgi í hádeginu í dag.
Þá verða þeir í Eymundsson í
Kringlunni og Smáralind eftir
hádegi. Á morgun halda þeir
kynningu í Norræna húsinu,
þar sem þeir segja frá hönnun
sinni, hugmyndinni að baki
jólakúlum og hvert þeir sækja
innblástur. Kynningin hefst
kl. 14. Þar munu höfundarnir
Arne & Carlos verða til taks til
skrafs og ráðagerðar.
JÓLAKÚLUR Í
ALLRI SINNI DÝRÐ
Hvað getur NutriLenk
gert fyrir þig?
Liður með slitnum
brjóskvef
Heilbrigður liður
NÁTTÚRULEGT
FYRIR LIÐINA
Brjóskskemmdir urðu til þess að ég
hætti að geta gert ýmsa hluti sem ég
gat áður eins og að hlaupa og öll
almenn leikfimi varð ofraun fyrir hnéð.
Ég starfa mikið við kennslu/þjálfun
sem kostar miklar stöður, átti hnéð til
að bólgna mikið upp. Góður vinur
benti mér svo á NutriLenk Gold.
Fór strax að geta reynt á hnéð
eftir að ég byrjaði á NutriLenk
Nánast strax eftir að ég fór að nota
NutriLenk fann ég mikinn mun, fór
strax að geta reynt meira á hnéð. Nú
get ég æft af fullri ákefð eins og mér
einum er lagið og er ekkert mál að
þola langar stöður þegar ég er að
kenna og þjálfa.
Það er klárt mál að þetta efni er að
virka, því ef ég sleppi að taka það inn
þá finn ég aftur fyrir óþægindum í
hnénu.
Ég mæli eindregið með því að fólk
prófi NutriLenk sem er að kljást við
liðverki og brjóskskemmdir og finni
hvort að það virki. Þetta er toppefni
og náttúrulegt í þokkabót.
Jón Halldórsson
- Dale Carnegie þjálfari / ráðgjafi. 42 ára
Brjóskskemmdir í hné
hömluðu hreyfingu
Fyrir átta árum var ég í veiði - datt og laskaðist á hné.
NutriLenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum,
Fræinu Fjarðarkaupum, Hagkaup, Krónunni, Þín verslun Seljabraut
og Vöruvali Vestmanneyjum
NUTRILENK
NÁTTÚRLEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
Við mikið álag og með árunum getur brjósk-
vefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir
slitna. Þetta er náttúrulegt ferli. Mjög margir
finna fyrir miklum óþægindum þegar beinin
byrja að núast saman, sérstaklega í liðamótum
eins og í mjöðmum, hryggjar og hnjáliðum.
Þess vegna er allt til vinnandi að styrkja
liðbrjóskið á náttúrulegan hátt.
Náttúrulegt byggingarefni fyrir
liðbrjóskið og beinin
NutriLenk inniheldur náttúrulegt byggingarefni
fyrir brjóskvefinn og er mjög góður valkostur
fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Unnið
úr sérvöldum fiskibeinum úr hafinu sem hefur
sýnt fram á að vera fyrsta flokks byggingarefni til
að styðja við brjóskvefinn og viðhalda honum.
NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgu fólki.
NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög
gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun.
Prófið sjálf-upplifið breytinguna!