Fréttablaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 6
3. nóvember 2012 LAUGARDAGUR6
Ófærð, skemmdir og óveður um land allt
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
Þök fuku í heilu lagi af
húsum, malbik flettist af
vegum, gámar og bílar fuku
og rafmagnsstaurar brotn-
uðu í ofsaveðrinu sem gekk
yfir landið í gær og gengur
smám saman niður í dag og
á morgun. Tugir manna leit-
uðu til bráðadeildar Land-
spítalans vegna meiðsla.
„Það er bara vitlaust veður,“
sagði Helgi Sigurmonsson, bóndi í
Hraunsmúla í Staðarsveit á sunn-
anverðu Snæfellsnesi, þar sem
vindstyrkur hafði mælst mestur á
landinu í gær.
Í hviðum fór vindurinn allt upp í
61 metra á sekúndu í Hraunsmúla
en að meðaltali var hann 38 metrar
á sekúndu þegar verst lét síðdegis.
„Það er farinn hérna fjórði part-
ur af hlöðuþaki. Ég fékk tíu björg-
unarmenn og þeim tókst að hefta
þetta niður, en ég veit ekki hvað
verður. Og svo var nú rafmagnið
að fara líka rétt í þessu, þannig að
það er orðið sjónvarpslaust. Þetta
er alveg skelfilegt og þetta er ekki
búið,“ sagði Helgi þegar Frétta-
blaðið ræddi við hann um kvöld-
matarleytið.
Óvenjumikið var um stór tjón í
óveðrinu í gær. „Þau skipta örugg-
lega tugum,“ segir Jónas Guð-
mundsson hjá Slysavarnarfélaginu
Landsbjörgu sem stóð í ströngu við
að aðstoða fólk um land allt. Hátt
í 300 manns tóku þátt í störfum
björgunarsveitanna.
Nærri 400 aðstoðarbeiðnir bár-
ust á höfuðborgarsvæðinu en á
landinu öllu höfðu björgunar-
sveitir sinnt hátt í 500 útköllum
í gærkvöld. Reiknað var með að
útköllin myndu halda áfram alla
nóttina þótt ástandið hafi eitthvað
verið byrjað að róast þegar leið á
kvöldið í gær.
Mikið hefur verið um að þök
hafi fokið af í heilu lagi af húsum.
Bílar og gámar fuku, malbik flett-
ist hreinlega af vegum og bæði
tré og rafmagnsstaurar brotn-
uðu. Tugir manna þurftu að leita
til bráðadeildar Landspítalans.
Ástandið var verst á höfuðborg-
arsvæðinu og svo í Vík í Mýrdal
og þar í kring. Á Geldinganesi í
Reykjavík náði meðalvindur 38
metrum á sekúndu síðdegis og var
því jafn öflugur og í Hraunsmúla.
Hviðurnar á Geldinganesi komust
upp í 52 metra á sekúndu.
„Það sem hefur verið óvenjulegt
hér á höfuðborgarsvæðinu er að
vindmögnun á Kjalarnesinu náði
mun lengra frá Esjunni en venju-
lega,“ segir Teitur Arason, veður-
fræðingur á Veðurstofu Íslands.
Hann segir líka óvenjulegt við
þetta ofsaveður að það hafi náð til
landsins alls í óvenju langan tíma.
„Flest árin fær einhver lands-
hluti svona veður, en í þetta skipt-
ið er mjög hvasst á landinu öllu.“
Veðurofsinn skýrist af því að
mikil hæð er yfir Grænlandi
ásamt óvenju djúpri lægð fyrir
austan land sem ekkert gefur
eftir. „Þetta er eiginlega erfiðasta
staða sem hægt er að fá,“ segir
Teitur. „Og það er frekar leiðin-
legt að fá þetta svona snemma
vetrar.“
Þetta ástand hefur verið við-
varandi frá þriðjudegi en náði
hámarki í gær. Í dag má samt
reikna með miklu hvassviðri um
land allt, en svo dettur það víðast
hvar niður í nótt þegar hæðin yfir
Grænlandi mjakast inn yfir landið.
„Þetta gengur fyrst niður á
Norðvesturlandi en síðast á Aust-
urlandi þar sem hvasst verður
fram eftir sunnudeginum,“ segir
Teitur.
Ofsaveður
olli óvenju
miklu tjóni
FANNFERGI Á AKUREYRI Aftakaveður var um land allt í gær en fyrir norðan og austan var mikil snjókoma. MYND/AUÐUNN NÍELSSON
STÓRU TJÓNIN SKIPTU TUGUM Björgunarsveitarmenn höfðu í mörg horn að líta og
sjást hér festa niður þak við Laugaveg 15 sem losnaði í fárviðrinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BARIST Á MÓTI VINDINUM Vindstyrkurinn fór víða upp í 50 til 60 stig í verstu hvið-
unum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Vegna óveðursins komst Fréttablaðið aldrei lengra
norður en til Blönduóss í gær, en vonast er til þess að
hægt verði að fljúga með blaðið til Akureyrar í dag.
„Bílar, bæði okkar og Morgunblaðsins, sem fóru
norður í gær sitja fastir á Blönduósi,“ segir Hannes
Hannesson, framkvæmdastjóri Póstdreifingar, sem sér
um dreifinguna á Fréttablaðinu.
„Fyrir sunnan gekk þetta hins vegar allt upp, en það
var víða mjög hvasst og ég veit að á morgum heimilum
greip fullorðna fólkið inn í og hjálpaði til. Það var varla
stætt á sumum svæðum, eins og á Seltjarnarnesi og í
Mosfellsbænum.“
Margir lesendur sáu reyndar ástæðu til að hrósa
blaðberum sérstaklega fyrir hafa látið sig hafa það
að brjótast í gegnum veðurofsann með Fréttablaðið í
gærmorgun.
Lesandi Fréttablaðsins í Áshverfi í Mosfellsbæ benti
til að mynda á að blaðberinn þar hafi að vanda verið
mættur rétt í kringum sjö að morgni þrátt fyrir að ekki
væri stætt í götunni.
Hannes segir reyndar ástæðu til að minna fólk sér-
staklega á að huga almennt að aðgengi fyrir blaðbera að
húsum, nú þegar vetrarmykrið er komið og von á snjó
og hálku.
Blaðburðarbílar fastir á Blönduósi en stefnt á flug norður í dag
Tilboð: 1.590 þús.
Chevrolet Lacetti Station - Bílalegubíll í ábyrgð
árgerð 2011 - söluverð: 1.800 þús.
Bílabúð Benna - Notaðir bílar
Opið alla virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga frá kl. 12-16
25.910 kr.
Afborgun á mánuði aðeins:
Chevrolet Lacetti Station
1.800.000 kr.
210.000 kr.
240.000 kr.
1.590.000 kr.
25.910 kr.
Söluverð:
Okkar hlutur:
Þín útborgun:
Heildarverð til þín:
Afborgun:
*
Auk
aga
ngu
r 60
þú
s.
virð
isau
ki
Flest árin fær ein-
hver landshluti svona
veður, en í þetta skiptið er
mjög hvasst á landinu öllu.
TEITUR ARASON
VEÐURFRÆÐINGUR