Fréttablaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 38
3. nóvember 2012 LAUGARDAGUR38 leigði á Njarðargötunni. Mikil þróun hafði átt sér stað, tónlistin var tilrauna- kenndari og fjölbreyttari. Fyrri platan hafði verið einstrengingslegt byrj- endaverk, en nú var kíkt á margt með miklum krafti og bæði boðið upp á áður ótoppaðan trylling og rokkballöður. Þá söng Krummi stundum, en öskraði ekki bara eins og áður. Nú fóru ýmsir boltar að rúlla. Banda- ríska harðkjarnamerkið Victory Records gaf út Jesus Christ Bobby (og síðar Halldór Laxness) og enska rokk- blaðið Kerrang tók miklu ástfóstri við bandið, gaf nýju plötunni fimm stjörnur og fékk Mínus á túr um Eng- land. Mínusmenn tóku rokklífinu auð- vitað fagnandi, enda ungir menn sem voru búnir að stefna að þessu mark- miði síðan þeir voru litlir. Mínus var í nokkur ár á linnulitlum þeytingi á milli borga og landa, og stundaði stífan rokklifnað hver í annars táfýlu. Sveitin flæktist á eigin vegum um smáklúbba Evrópu, eða hitaði upp fyrir stærri bönd eins og Papa Roach og The Dis- tillers. Babb kom í bátinn þegar bassa- leikarinn Ívar hætti til að fara í sál- fræði í Háskólanum. Eftir nokkra leit þótti vænlegast að fá gítarleikarann úr Klink til að spila á bassa. Þetta var gamall vinur frá Reyðarfirði, bassa- fanturinn Þröstur Heiðar Jónsson. Hljómsveitin Klink hafði þjösnast um skeið með ofsafengið rokk og gerði fjögurra laga plötuna 666°N árið 2001 með Curver. Sveitin er enn starfandi og meðal meðlima eru Guðni, sem var einnig í alræmda rafbandinu Dr. Mis- ter & Mr. Handsome, og Frosti Jr., sem elti Mínus löngum með kameru í því augnamiði að gera heimildarmynd um bandið. Myndin, sem dregur ekk- ert undan, hefur verið sýnd nokkrum sinnum á kvikmyndahátíðum. Sú uppskrift sem kynnt hafði verið á Jesus Christ Bobby var krydduð enn meira á næstu plötu, meistaraverkinu Halldór Laxness, sem kom út 2003. Enn var Curver á tökkunum en nú með Ken Thomas sér við hlið. Tekið var upp í Sýrlandi. Á plötunni gekk allt upp. Til- raunakennda melódíska suddarokkið átti upp á pallborðið og plötunni var alls staðar hampað sem bestu íslensku plötu ársins. Bandið var auðvitað orðið svívirðalega þétt eftir allt harkið og framtíðin virtist björt. Sony keypti útgáfuréttinn og gaf Laxness út í Evr- ópu árið 2004 með nýju umslagi. Algjört rótleysi Strákarnir báru sig vel, þótt það væri ekki beinlínis eins og bankareikning- arnir þeirra væru að sligast þrátt fyrir allt harkið. Sumir voru komnir með skuldahala, en mamma og pabbi réttu hjálparhönd, enda meikið alltaf handan við hornið. „Þetta er búið að vera að byggjast upp svona smátt og smátt,“ sagði Krummi í Munin, skólablaði MA, árið 2004. „Við stefnum að því að reyna að komast nær „mainstreaminu“ til að komast á almennilegt skrið svo við getum farið að lifa af þessu og komið tónlistinni okkar til fleira fólks.“ Leitin að meginstraumnum skilaði Mínus að lokum til glysborgarinnar Los Angeles. Umboðsmaðurinn reddaði árslöngu vinnuleyfi og bransalið mætti á „showcase“, þar sem Mínus spilaði fyrir jakkafötin í hádeginu og „leið eins og fábjánum“. Niðurstaða bransa- liðsins var að það vantaði ekki kúreka frá Íslandi akkúrat í augnablikinu. Í LA tók hljómsveitin upp fjórðu plötuna sína, The Great Northern Whalekill, með forframaða stúdíó-Íslendingnum S. Husky Höskulds og miklu rokk- menni, Joe Barresi, sem hafði tekið upp fínar rokkplötur, m.a. með Queens of the Stone Age og Tool. Platan kom út um mitt ár 2007 og var ætlað að ná inn í „mainstreamið“. Gefinn var afsláttur af fyrri tilrauna- mennsku og tuddast á fremur hefð- bundnum rokkslóðum. „Við tókum ekki stórt skref í einhverri djöflasýru. Þetta er bara fín rokkplata sem við erum mjög sáttir við,“ sagði Bjössi tromm- ari í Fréttablaðinu 2007. Platan náði ekki tilætluðum árangri. Krummi fékk djobb við að leika Jesús í Borgarleik- húsinu, og Bjössi og Bjarni voru orðnir pabbar svo það var rólegt hjá hljóm- sveitinni. Þetta hafði verið þeytingur í mörg ár og menn voru orðnir þreyttir. „Við höfum tekið túra sem við vorum ekki sáttir við,“ sagði Bjössi. „Kannski keyrt í tíu klukkutíma til að spila fyrir einn áhorfanda. Þá fer maður að hugsa: Kannski gæti ég bara verið heima hjá mér að vaska upp. Þetta var algjört rót- leysi í tvö ár. Ég bjó hvergi, maður kom kannski heim í tvær vikur og svo bara aftur út. Ég bjó í barnaherbergi lítillar frænku minnar í tvo mánuði. Það var ekkert voðalega heilsusamlegt líf að vera alltaf á flækingi og borða bara einhvern mat og sofa bara einhvers staðar. En þetta var gaman og ég er reynslunni ríkari.“ Frosti gítarleikari var löngu hættur að sjá bandið fyrir sér sem ævistarf og lagði til að það yrði sett á ís um óákveð- inn tíma. Hinir voru ekki fúsir til að loka bandinu á þennan hátt svo Frosti hætti og skráði sig í stjórnmálafræði í Háskólanum. Þröstur bassafantur hætti með honum og fór á sjóinn. Frosti hafði samið megnið af gítarriffunum á plöt- um Mínus svo þetta var mikil blóðtaka. Menn reyndu fyrir sér á nýjum víg- stöðum. Bjössi gekk í Motion Boys, fágað silkipoppband undir áhrifum frá Roxy Music, sem Birgir Ísleifur Gunn- arsson (áður í Byltunni) hafði stofnað. Hljómsveitin vakti nokkra lukku með smáskífum, en náði ekki að halda þeim dampi með plötunni Hang On árið 2008. Bjössi hefur einnig brugðið sér í gervi Micks Jaggers í kóverbandinu Stóns. Krummi sýslaði við fenjablúsrokk með Daníel Ágústi og fleirum í hljómsveit- inni Esju og heldur áfram veginn undir nöfnunum Krummi og Legend. Án Frosta og Þrastar birtist Mínus fljótlega aftur sem kvartett með bassa- leikarann Sigurður Oddsson úr Future Future. Ný Mínus-plata, sem verður að sögn mjög frábrugðin fyrra efni, er sennilega væntanleg. R okk drepst ekki. Það bara þróast og stökk- breytist. Um aldamótin fór hljómsveitin Mínus fyrir glerharðri rokk- bylgju, en valdi sér snemma að stinga af, fara frumlegar leiðir og ekki hjakka í gömlum skít. Um tíma tók hljómsveitin verulega þétt á því í útlöndum, en eins og í mörgum köflum hér fyrr í bókinni reyndist meik-eplið súrt. Harðkjarni Í kringum 1980 – um það bil þegar strákarnir í Mínus voru að fæðast – var farið að kalla þungt en pönkað rokk „hard core“ í Bandaríkjunum. Bönd eins og Black Flag, Minor Threat og síðar Fugazi leiddu hard corið og harður andkapítalískur andi fylgdi í pakkanum, menn gerðu hlutina sjálfir – allt frá því að hanna boli, gefa út plötur og skipuleggja túra – og að selja sig stórfyrirtækjum og „kerfinu“ var fjarlæg martröð. Tuttugu árum síðar varð andlega skyld sena að veruleika á Íslandi. Þar sullaðist þó margt saman, en hratt þungarokk og pönk var alltaf í forgrunni. „Hópurinn sem fílar þessa músík er allaf að verða stærri og stærri,“ sögðu Mínus-strákarnir í DV Fókus skömmu eftir sigurinn í Músíktil raunum um vorið 1999. Bandið hafði orðið til nokkrum mánuðum fyrr. „Það er stór hópur sem kemur á alla tónleika með okkur. Svo fáum við Forgarð helvítis, Sólstafi, Vígspá, Bisund og Muffuna til að spila með okkur. Við erum að búa til hardkor-senu hérna. Það hefur aldrei verið neitt svona hérna áður. Það síð- asta sem var, var dauðarokksenan.“ Fyrsti vísir að harðkjarna-senu hafði byrjað nokkrum misserum áður með sveitunum Spitsign og Bis- und, sem bræðurnir Birkir Fjalar og Andri Freyr Viðarssynir voru í. Senan fékk góða innspýtingu þegar Sigvaldi Jónsson – Valli Dordingull – opnaði vefsíðuna Dordingull.com, og síðar Hardkjarni.com, sem urðu félagsmið- stöðvar svipað þenkjandi krakka. Sér- stakir þættir á Rás 2 og Radio X kyntu undir, en annars fór starfsemin aðal- lega fram í grasrótinni. Tónleikar voru helst haldnir á vínlausum stöðum vegna þess að krakkarnir í mark- hópnum voru svo ungir og alls konar útlendir pennavinir í hljómsveitum komu til að spila og gista á gólfum hjá vinum sínum. Í Mínus voru Krummi (Oddur Hrafn) söngvari, Kristján Frosti Logason gít- arleikari og Ívar Snorrason bassaleik- ari, sem höfðu verið í hljómsveitinni Ungblóð, og Björn Stefánsson trommari og Bjarni Sigurðsson gítarleikari, sem voru áður í Spitsign, meðal annars með Bóasi Hallgrímssyni og Smára „Tarfi“. Tveir meðlimanna eru synir poppara, Krummi er náttúrlega sonur Björgvins Halldórssonar og Bjössi trommari er sonur Stefáns Jóhannssonar, trommara Dáta. Strákarnir voru vel að sér í rokk- sögunni, sögðust fíla Ham og Purrkinn og höfðu mætt á alla dauðarokkstón- leika nokkrum árum fyrr. Strákarnir töluðu mikið um að vera „extreme“ og hún var vissulega öfga- kennd fyrsta platan, Hey, Johnny!, sem kom út fyrir jólin 1999. Jón Skuggi tók hana upp, Dennis (hliðarmerki Skífunnar) gaf hana út, og inn á milli öskrandi harðra laga mátti heyra hljóð- búta úr gömlum film noir-myndum. Á svipuðum tíma stóð Mínus fyrir útgáfu á safndisknum Msk, sem bauð m.a. upp á Bisund, gömlu dauðahundana í Sororicide og eyðimerkur-rokkarana í Brain Police. Boltar rúlla Mínus-strákar vildu alltaf ögra sjálfum sér og mikið heillaspor í þróuninni var stigið þegar þeir tóku upp samstarf við „hávaðalistamanninn“ Curver Thor- oddsen. Bandið hafði fyrst fengið hann til að búa til hávaða á milli laga á tón- leikum, en svo tók Curver tók upp plöt- una Jesus Christ Bobby, sem Smekk- leysa gaf út fyrir jólin 2000. Platan var tekin upp í herbergi Frosta í Garðabæ og í litlum upptökuskúr sem Curver Strákarnir báru sig vel, þótt það væri ekki beinlínis eins og banka- reikningarnir þeirra væru að sligast þrátt fyrir allt harkið. Sumir voru komnir með skuldahala, en mamma og pabbi réttu hjálpar- hönd, enda meikið alltaf handan við hornið. Ekkert mjög heilsusamlegt líf Í hinni nýútkomnu bók Stuð vors lands fjallar poppfræðingurinn Dr. Gunni um sögu dægurtónlistar á Íslandi allt frá 19. öld og fram til dagsins í dag. Fréttablaðið grípur hér niður í kafla um hljómsveitina Mínus og rokkbylgjuna miklu um aldamótin. NÁTTÚRUTALENTAR „Hópurinn sem fílar þessa músík er allaf að verða stærri og stærri,“ sögðu Mínus-strákarnir í viðtali skömmu eftir sigurinn í Músíktilraunum um vorið 1999. Frá vinstri: Björn, Bjarni, Krummi, Frosti og Þröstur. MYND/ÁRNI TORFASON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.