Fréttablaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 8
3. nóvember 2012 LAUGARDAGUR
MEÐ SMEKK
FYRIR SMÁATRIÐUM
HANNAÐU ÞITT EIGIÐ KAFFI
COFFEE IS NOT JUST BLACK
Finndu okkur á Facebook
www.facebook.com/NESCAFEDolceGustoIsland
SJÓNVARPSSTÖÐIN ID: INVESTIGATION DISCOVERY ER EINGÖNGU Í BOÐI Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á WWW.STOD2.IS
VIÐSKIPTI Samherji og dótturfélög
högnuðust um 8,8 milljarða króna
á árinu 2011. Hagnaður fyrir
afskriftir og skatta (EBITDA)
var 18,1 milljarður króna og velta
samstæðunnar var 79,5 milljarð-
ar króna. Þetta er besta afkoma
Samherja frá upphafi samkvæmt
uppgjörstilkynningu á heimasíðu
Samherja sem birt var í gær.
Samtals hagnaðist
Samherja-samstæð-
an um 20,2 milljarða
króna á árunum 2009
til 2011, en hún starfar
í alls tíu mismunandi
löndum. Alls eru rúm-
lega 60 prósent af starf-
semi Samherja erlendis.
Hagnaður samstæðunn-
ar fyrir afborganir lána
og skatta (EBITDA) var
18,1 milljarður króna
og jókst um 586 millj-
ónir króna á milli ára.
Samherji greiddi um
400 milljónir króna í
veiðigjald til ríkissjóðs
í fyrra, eða 2,2 prósent
af EBITDA-hagnaði
sínum. Í tilkynningunni
segir að áætlanir geri
ráð fyrir að veiðigjaldið verði 1,4
milljarðar króna í ár.
Virði eigna Samherja hefur
aukist mikið á undanförnum
árum. Í árslok 2009 var virði
þeirra um 64,5 milljarðar króna.
Um síðustu áramót var það orðið
108,6 milljarðar króna. Aukn-
ing er um 40 prósent á tveimur
árum. Eignir Samherja jukust
um 26 milljarða króna á síðasta
ári. Þar munar mestu um kaup á
Útgerðarfélagi Akureyrar (ÚA)
sem Samherji greiddi 14,3 millj-
arða króna fyrir.
Skuldir Samherjasamstæðunn-
ar voru 71 milljarður króna í lok
síðasta árs. Þar af voru skuldir
við íslenskar lánastofnanir sam-
tals 46,5 milljarðar
króna. Í tilkynningunni
kemur fram að það sem
af er árinu 2012 hafi þær
verið greiddar niður um
sex milljarða króna.
Þar segir einnig að
Samherji hafi hvorki
fengið niðurfellingu
né endurútreikning af
nokkru láni og haft er
eftir Þorsteini Má Bald-
vinssyni, forstjóra og
eins aðaleiganda Sam-
herja, að samstæðan
hafi heldur ekki farið
fram á að lánaskilmál-
ar nokkurs láns sem
Samherji er með verði
dæmdir ólöglegir.
Gjaldeyriseftirlit
Seðlabanka Íslands
framkvæmdi húsleitir hjá Sam-
herja í mars á þessu ári vegna
gruns um að félagið hefði gerst
brotlegt við lög um gjaldeyris-
mál. Forsvarsmenn hafa ætíð
neitað sök. Hæstiréttur vísaði
fyrr í þessari viku frá kröfu
Samherja um að rannsóknin hafi
verið ólögmæt. thordur@frettabladid.is
Tuttugu millj-
arða hagnaður
frá árinu 2009
Samherji hagnaðist um 8,8 milljarða króna í fyrra.
Samstæðan hagnaðist um 20,2 milljarða á árunum
2009 til 2011. Um 60 prósent starfseminnar erlendis.
Samstæðan greiddi 400 milljónir í veiðigjald.
FJÁRFESTING Samherji keypti Útgerðarfélag Akureyrar af Brimi í fyrra fyrir 16,6 milljarða
króna. Hér sjást Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Guðmundur Kristjáns-
son, aðaleigandi Brims, greina starfsfólki frá breytingunum í fyrravor. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Samherji og annað stórt sjávarútvegsfyrirtæki, FISK Seafood, sem er í eigu
Kaupfélags Skagfirðinga, keyptu fyrr á þessu ári hvort sinn 37,5 prósenta
hlutinn í Olís. Svo virðist sem félögin tvö hafi greitt einn milljarð króna hvort
fyrir að eignast samtals þrjá fjórðu í Olís. Samkeppniseftirlitið samþykkti
kaupin í haust en setti kaupunum ýmis skilyrði.
Samherji hefur einnig fjárfest í Þórsmörk, eiganda Árvakurs, eiganda
Morgunblaðsins og Landsprents. Krossanes ehf., sem er að öllu leyti í
eigu Samherja, á 20,8 prósenta hlut í Þórsmörk og er næststærsti eigandi
félagsins ásamt Áramótum ehf., félags Óskars Magnússonar. Óskar, sem er
útgefandi Morgunblaðsins, situr einnig í stjórn Samherja.
Samherji í ýmsu öðru en sjávarútvegi
SVÍÞJÓÐ Hundruð barna hælis-
leitenda á sænsku eyjunni Öland
í Eystrasalti fá engan skólamat
á vegum sveitarfélagsins. Yfir-
maður menntamála í Borgholm
segir fjölskyldurnar þegar fá
matarstyrk frá sveitarfélaginu.
Þess vegna geti börnin borðað
heima.
Í frétt á vef Dagens Nyheter
segir að skólahjúkrunarfræð-
ingur hafi gert viðvart vegna
málsins.
Komið hefur verið upp bráða-
birgðaskóla fyrir yfir 200
börn hælisleitenda í Borgholm
á Öland. Ráðuneytisstjóri í
menntamálaráðuneytinu segir
lögin skýr, börn hælisleitenda
eigi að fá ókeypis skólamáltíðir
eins og önnur börn í Svíþjóð. - ibs
Hælisleitendur á Öland:
Börnin fá ekki
mat í skólanum
Öllum boðið á Hótel Örk
Sveitarstjórn Grímsness- og Grafn-
ingshrepps býður öllum íbúum
sveitarfélagsins 67 ára og eldri á
sparidaga fyrir eldri borgara á Hótel
Örk í Hveragerði líkt og gert hefur
verið undanfarin ár. Að þessu sinni
fékk sveitarfélagið úthlutað dögunum
10. til 15. febrúar 2013 að því er kom
fram á síðasta fundi sveitarstjórnar-
innar.
ELDRI BORGARAR
milljarða
króna aukning
varð á eignum
Samherja á
síðasta ári.
Mest munar
um kaup á
Útgerðarfélagi
Akureyrar fyrir
14,3 milljarða.
26