Fréttablaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 2
3. nóvember 2012 LAUGARDAGUR2 AÐEINS Í DAG! kíktu inn á www.pfaff.is Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400 52% DAGSBIRTULAMPI VERÐ ÁÐUR 24.900,- NÚ 12.000,- Opið í dag, laugardag kl. 11-16. Erlendur, rættist draumurinn? „Thor lét 40 ára gamlan draum sinn rætast og gekk veginn kominn undir áttrætt. Það sannar að það er aldrei of seint að reyna að láta lífsdrauma sína rætast.“ Erlendur Sveinsson leikstjóri hefur gert kvikmyndabálk í fimm hlutum um ferð Thors Vilhjálmssonar um pílagrímsveginn árið 2005. Síðustu hlutarnir verða frum- sýndir á næstu vikum en bálkurinn heitir Draumurinn um veginn. REYKJAVÍK 450 milljónir króna verða settar í gagngerar endur- bætur á Hverfisgötu á næsta ári. Einnig verða 200 milljónir settar í endurbætur á Frakkastíg. „Það var eitt af því sem þessi meirihluti einsetti sér í byrjun að taka Hverfisgötuna í gegn, af því að Hverfisgatan er í grunn- inn mjög flott borgargata og er líka flott að hluta til út frá húsum og svoleiðis. En hún hefur ein- hvern veginn þróast í það að verða svona druslugata, það sést meðal annars á því að menn hafa verið að taka flott hús þaðan og flytja þau annað í bæinn,“ segir Hjálmar Sveinsson, varaformað- ur skipulagsráðs Reykjavíkur- borgar. „En það er auðvitað takmark- að sem borgin getur gert því hún á yfirleitt ekki lóðirnar og ekki húsin, en það sem hún getur gert er að gera götuna flotta borgar- götu,“ segir Hjálmar. Til stendur að laga götuna í tveimur áföngum og framkvæmdir hefjast næsta sumar. „Þá verður gatan tekin í gegn eftir ákveðnu plani, gang- stéttir verða breikkaðar og allar lagnir endurnýjaðar, sem eru að hluta til sennilega hundrað ára gamlar. Þetta er mjög stór og dýr framkvæmd og það er kannski ástæðan fyrir því að menn hafa hikað við þetta.“ Hjálmar segir að endurbæt- urnar verði af svipuðu tagi og á Klapparstíg, sem hefur verið tek- inn í gegn í áföngum á þessu ári. Þó verði breytingarnar á Hverf- isgötu öðruvísi vegna þess að hún er og verður meiri umferðargata. Þar verður þó gert ráð fyrir hjóla- reinum auk breiðari gangstétta. Einnig stendur til að hefja endurbætur á F rakkastíg næsta sumar. „Við teljum líka að Frakkastígur sé mjög flott gata. Meiningin er að taka allan Frakkastíg næsta sumar en það verður áfangaskipt eins og gert var á Klapparstíg. Þetta er sterk yfirlýsing frá borginni um að hún álíti þetta mikilvæga staði og það verður þá meira aðlaðandi fyrir fjárfesta og húsbyggjendur að fara af stað og byggja falleg hús á stórum, auðum lóðum við Hverfis- götuna og endurbæta þau sem eru orðin gömul og léleg.“ Þá segir Hjálmar að kynnt hafi verið fyrir borginni áhugaverð verkefni sem snúi að uppbyggingu húsa á Frakkastíg og Hverfisgötu. thorunn@frettabladid.is Hverfisgata löguð fyrir 450 milljónir 450 milljónir króna verða settar í endurbætur á Hverfisgötu á næsta ári og fyrsti hluti framkvæmda fer af stað. Lagnir verða meðal annars endurnýjaðar en sumar þeirra eru hundrað ára gamlar. Frakkastígur verður einnig lagaður. HVERFISGATAN Endurbæturnar hefjast á næsta ári en ráðast þarf í þessar miklu framkvæmdir í áföngum. Gangstéttir verða breikkaðar og hjólareinum komið fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMFÉLAGSMÁL Fjölskylduhjálp Íslands hefur opnað jólamarkað í Reykjanesbæ. Jólamarkaðurinn er hluti af fjáröflunarleiðum Fjölskyldu- hjálparinnar, en reynt er að afla fé í matarsjóð hennar með ýmsum hætti. Jólamarkaðurinn verður opinn alla daga vikunnar fram til fimmtánda desember. Þar er fatnaður, gjafir og jóla- vörur. Þá er Fjölskylduhjálp með nytjamarkað í húsnæði sínu í Eskihlíð, en hún hvetur fólk til að koma notuðum varningi á báða staði ef það vill styrkja starf- semina. Fjöl- skylduhjálpin veitti rúm- lega 25 þús- und matar- gjafir í fyrra. - þeb 25 þúsund gjafir í fyrra: Fjölskylduhjálp með jólamarkað EFNAHAGSMÁL Seðlabanki Íslands gerir ráð fyrir að landsfram- leiðsla aukist um 2,7 prósent í ár og 2,5 prósent á næsta ári. Þetta er meðal þess sem kemur fram í þjóð- hagsspá sem gefin var út í gær. Þá er spáð 2,9 prósenta vexti á árinu 2014. Verðbólguspá gerir ráð fyrir litlum breytingum, rúmum fimm prósentum í ár, fjórum á næsta ári og þremur prósentum 2014. Fjárfesting eykst um rúm tíu prósent í ár, en aðeins um 4,3 pró- sent á næsta ári. 2014 mun hún hins vegar taka vel við sér og verða tæp tuttugu prósent. - þj Þjóðhagsspá Seðlabankans: Vöxtur hófleg- ur næstu árin SJÁVARÚTVEGUR Nú eru 30 fyrir- tæki á Íslandi sem hafa fengið rekjanleikavottun samkvæmt staðli Marine Stewardship Coun- cil (MSC). Þetta eru framleiðslu-, útflutnings- og verslunarfyrir- tæki með sjávarafurðir. Í tilkynningu segir að á síðustu mánuðum hafi verið jöfn fjölgun fyrirtækja sem sækja um rekjan- leikavottun. Þorsk- og ýsuveiðar hér á landi eru vottaðar samkvæmt fiskveiði- staðli MSC og einnig eru síldveið- ar Íslendinga í aðalmati. - shá Umhverfisvottun MSC: Þrjátíu fyrir- tæki nú vottuð SVÍÞJÓÐ Það myndi mögulega borga sig fyrir samfélagið ef þeir sem bíða með að taka bílpróf þar til þeir eru 25 ára fengju ökukennsl- una gjaldfrjálsa. Þetta er mat Ulfs Björnstig, sænsks prófessors í skurðlækningum, sem rannsak- að hefur umferðarslys. Björnstig segir kostnaðinn vegna þess skaða sem ungir ökumenn valda gríðar- lega háan. Vísindamaðurinn Nils-Petter Gregersen segir í viðtali við Väs- terbottens-Kuriren að ein af orsök- unum fyrir fjölda slysa sé sú að heilinn sé ekki fullþroskaður fyrr en við 25 ára aldur, auk þess sem ungmenni eigi erfitt með að stan- dast hópþrýsting. - ibs Sænskur sérfræðingur: Frí ökukennsla fyrir eldri nema MATVÆLI Alls voru 35 prósent sýna af Glaðningi utan leyfilegra frá- vika frá tilgreindri þyngd þegar Neytendastofa gerði könnun á þyngd forpakkaðra osta í versl- unum. Skoðaðar voru tvær vöru- tegundir, 100 g Bóndabrie frá Mjólkursamsölunni hf. og 130 g Glaðningur frá Mjólkurbúinu ehf. Við mælingar kom í ljós að Bóndabrie uppfyllti kröfur um þyngd. Léttasta sýnið af Glaðn- ingi reyndist aðeins 83 g í stað 130 g eða 35 prósentum undir þyngd. Einstaka sýni voru yfir meðalþyngd. Þyngsta sýnið var 58 prósent yfir tilgreindri þyngd. Á vef Neytendastofu er bent á að leyfilegt sé að yfirpakka. - ibs Könnun á þyngd osta: Léttasti 35% undir þyngd VIÐSKIPTI Gildi – lífeyrissjóður hefur farið fram á að Fjármála- eftirlitið (FME) rannsaki hvort rétt hafi verið staðið að útboði á hlutafé í Eimskipafélagi Íslands. Í bréfi Gildis til FME í gær er einnig farið fram á að kannað verði hvort útfærsla á kaupréttum til stjórn- enda Eimskips standist skoðun. Almennu útboði með hlutabréf Eimskipafélagsins lauk klukkan fjögur í gær. „Útboðsgengið var fyrir fram ákveðið, 208 krónur á hlut. Samtals bárust áskriftir fyrir yfir ellefu milljarða króna eða sem nemur yfir fimmfaldri umframeft- irspurn,“ segir í tilkynningu Eim- skips. „Í ljósi mikillar umframeft- irspurnar mun félagið, líkt og fram kom í skráningarlýsingu þess, auka við framboðið og selja 6 milljónir eigin hluta, eða sem nemur þrem- ur prósentum af útgefnu hlutafé.“ Samtals eru því seldir 16 milljón hlutir eða sem nemur átta prósent- um af útgefnu hlutafé Eimskips. Alls skráðu um 2.500 fjárfestar sig fyrir hlutum í almenna útboðinu. Gildi, sem ákvað að taka ekki þátt í hlutafjárútboðinu vegna hárra kauprétta stjórnenda Eim- skips, á fyrir 0,6 prósent hlutabréfa í félaginu. Hlutinn eignaðist sjóður- inn í nauðasamningum félagsins á árinu 2009. - óká Meira en fimmföld eftirspurn var eftir hlutabréfum Eimskips í almennu útboði: Gildi vill að FME rannsaki útboðið TRÚMÁL Kaþólska kirkjan á Íslandi reyndi ítrekað að þagga niður ásakanir um andlegt og kynferðislegt ofbeldi gagnvart nemendum. Þetta eru niðurstöður rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar, sem í gær kynnti skýrslu um rannsókn sína á starfsemi skólans á meðan kirkjan starfrækti hann og á sumardvöl á vegum kirkjunnar allt frá árinu 1946. Nefndin ræddi við 30 einstaklinga, þar á meðal átta manns sem urðu fyrir kynferðislegu ofbeldi. Nefndin tekur þó ekki afstöðu til þess hvort þær ásakanir eigi við rök að styðjast. Tveir gerendur eru nafngreindir í skýrslunni: Séra Georg, sem var skólastjóri Landakotsskóla, og Mar- grét Müller kennari. Greint er frá því að ásakanir hafi komið fram gagnvart tveimur öðrum prestum og einum kennara, en þeir eru ekki nafngreindir og enginn þeirra starfar hjá skólanum lengur. Annar presturinn er látinn, en kennarinn var kærður fyrir kynferðislega áreitni. Sú rannsókn var að lokum felld niður og hætti hann störfum fljótlega eftir það. Í skýrslunni kemur fram að biskupar, prestar og reglusystur kaþólsku kirkjunnar hér á landi hafi van- rækt skyldur sínar til að rannsaka mál í kjölfar ásak- ana. Pétur Bürcher, núverandi biskup kaþólsku kirkj- unnar á Íslandi, segist í yfirlýsingu biðjast afsökunar „í fullkominni auðmýkt andspænis þeim persónum sem í raun eiga hér hlut að máli“. - gb Andlegt og kynferðislegt ofbeldi gagnvart nemendum fylgdi Landakotsskóla: Reynt að þagga niður ásakanir GÁMAR FUKU Víðar blés um Eimskip í gær en í tengslum við hlutafjárútboð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON RANNSÓKNARNEFND KAÞÓLSKU KIRKJUNNAR Þau Hrefna Friðriksdóttir, Hjördís Hákonardóttir og Jón Friðrik Sigurðsson kynntu skýrslu sína á blaðamannafundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÖKUKENNSLA Íslenskir nemendur æfa sig í ökugerði við Borgartún í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SPURNING DAGSINS Þetta er sterk yfirlýsing frá borginni um að hún álíti þetta mikilvæga staði. HJÁLMAR SVEINSSON VARAFORMAÐUR SKIPULAGSRÁÐS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.