Fréttablaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 88
3. nóvember 2012 LAUGARDAGUR64
★★★★ ★
Sólstafir
Harpa, Norðurljós
Drungalegt rokk
Rokkararnir í Sólstöfum spiluðu bæði ný og gömul lög í bland, þar á meðal hið
frábæra Fjara af Svörtum söndum, þeirri prýðilegu plötu sem kom út í fyrra, og
Goddess of the Ages af plötunni Köld. Flest lögin voru löng og drungaleg en
að sama skapi mjög kröftug og áhrifarík. Leðurklæddi söngvarinn Aðalbjörn
Tryggvason hreif áhorfendur með sér með góðri sviðsframkomu og fékk sér
þess á milli sopa úr vískípela ásamt hinum drífandi bassaleikara Svavari Aust-
mann. Sannarlega vel heppnað heimsendarokk hjá Sólstöfum, sem eru í fínu
formi um þessar mundir. - fb
Fimmtudagur 1. nóvember
★★★★ ★
Of Monsters and Men
Silfurberg í Hörpu
Einlægni og auðmýkt
Krakkarnir hófu kvöldið með hvelli, í orðsins fyllstu
merkingu, því silfurlituðum partísprengjum var skotið yfir
smekkfullan salinn í fyrsta laginu. Slíkt hið sama gerðist
svo í því síðasta. Gróft áætlað voru 1.000 manns saman
komnir í Silfurberginu meðan krakkarnir spiluðu, en miklar
raðir voru fyrir utan og mun færri komust að en vildu.
Þrátt fyrir að vera aðeins korteri frá heimsfrægð hafa
krakkarnir í Of Monsters and Men náð að halda í einlægn-
ina og auðmýktina sem hefur einkennt þau í tónlistinni.
Þau voru öryggið uppmálað á sviðinu og blönduðu saman
gömlu og nýju efni við gríðargóðar undirtektir viðstaddra.
Stemningin í salnum var feykigóð og héldu krakkarnir
áheyrendum allt frá upphafi til enda. Það voru líka allir
tilbúnir að taka þátt í lögunum þegar svo bar undir, hvort
sem það var með söng eða klappi.
Ég gat ekki annað en fyllst stolti þegar ég horfði á þau
á sviðinu. Þau eru landi og þjóð svo sannarlega til sóma
úti í hinum stóra heimi og eiga greinilega nóg inni fyrir
komandi tíma. - trs
★★★ ★★
The Heavy Experience
Harpa, Norðurljós
Saxó í stað söngs
Strákarnir í The Heavy Experience stigu á svið tíu mínútum
á eftir áætlun en bættu fyrir það með góðri spilamennsku.
Hljómsveitin, sem gaf nýlega út sína fyrstu breiðskífu,
er óvenjuleg að því leyti að í staðinn fyrir söngvara er
saxófónleikari fremstur á sviðinu og nýtur hann aðstoðar
tveggja gítarleikara, bassaleikara og trommara. Þessi
uppstilling gengur fullkomlega upp. Fyrsta lagið var tólf
mínútna langur djassrokkbræðingur sem magnaðist eftir
því sem á leið. Aðeins var pláss fyrir tvö lög til viðbótar,
sem voru í svipuðum síðrokkstíl og bæði góð. Þetta er
flott hljómsveit sem verður enn betri þegar krafturinn er
leystur úr læðingi.
- fb
★★★ ★★
Lára Rúnars
Silfurberg í Hörpu
Krúttlegt og skemmtilegt
Stemningin í salnum var afskaplega krúttleg. Það mátti sjá
fólk sitja í hópum á gólfinu um allan sal og njóta tónlistar
Láru. Fremur fámennt var til að byrja með og ég velti því
fyrir mér hvort tónleikarnir hefðu notið sín betur í minni
sal. Það bættist þó í hópinn á meðan á tónleikunum stóð
og enginn varð svikinn af skemmtilegri sviðsframkomu
Láru. Hún tók þó aðeins lög af nýútkominni plötu sinni,
sem afar fáir þekktu. Það setti eflaust sitt strik í reikninginn
fyrir marga, en Lára skilaði þessu þó vel frá sér.
- trs
★★★★ ★
Eldar
Kaldalón í Hörpu
Með bros á vör
Valdimar var flottur á miðju sviðinu á huggulegum og
heimilislegum tónleikum hljómsveitarinnar Eldar. Með
krúttarasprengjuna Fríðu Dís Guðmundsdóttur sér við
hlið og umkringdir meisturum á borð við Bogomil Font
og Björgvin Ívar voru ekki miklar líkur á að þetta myndi
klikka. Setið var í öllum sætum salarins og dágóð röð fyrir
utan, en það er svo sem ekki að furða að fólk hafi endilega
viljað sitja undir ljúfum tónum þeirra. Tónleikarnir fylltu mig
vellíðan og ég gekk út endurnærð með bros á vör. - trs
★★★ ★★
Halleluwah
Þýski barinn
Vantar fleiri lög
Nafnið Halleluwah er vísun í frægt lag þýsku krátrokk-
sveitarinnar Can. Sölvi Blöndal, annar helmingur
tvíeykisins, mun hafa sökkt sér rækilega í krátrokkið upp
á síðkastið þótt lög Halleluwah beri þess ekki endilega
glögg merki. Þeir Egill Ólafur Thorarensen – Tiny – höfðu
ekki troðið oft upp undir þessu nafni þegar þeir léku
nýútkomna stuttskífu í heild sinni á Þýska barnum við
góðar undirtektir. Egill sannaði enn og aftur að hann er
langbesti enskumælandi rappari á Íslandi, og hefur raunar
verið það í áratug. Sölvi lék undir á trommur og salurinn
klappaði þeim lof í lófa þegar þeir luku sér af með laginu
K2R. Verst að þeir hafa bara gert fjögur lög. Það er allt of
lítið. - sh
OF MONSTERS AND MEN Öryggið uppmálað. FRÉTTABLAÐIÐ/KLARA
SÓLSTAFIR Ný og gömul lög. FRÉTTABLAÐIÐ/KLARA
Nýtt fyrirframgreitt kort
Þú stjórnar
með Fékortinu
Það er auðvitað frábært að eyða peningum
sem maður á ekki. En miklu skemmtilegra
er að eiga fyrir því sem maður kaupir
hverju sinni.
Farðu á fekort.is, til að sækja um Fékortið,
nýtt fyrirframgreitt greiðslukort fyrir
skynsama í fjármálum. Það er sannkölluð
ferð til fjár.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA