Fréttablaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 82
3. nóvember 2012 LAUGARDAGUR58
Bækur ★★★★ ★
Sagan af klaustrinu á Skriðu
Steinunn Kristjánsdóttir
Sögufélag
Eftir áratug fornleifarannsókna
á Skriðuklaustri í Fljótsdal ligg-
ur óhemjumagn af efni og niður-
stöðum eftir hóp fræðimanna. Í
Klausturtúninu sjálfu má sjá veggi
klaustursins sem þar fannst, á söfn-
um hafa forverðir tekið við munum
og beinum og í útgefnum skýrslum
og greinum geta sérfróðir og þeir
sem hafa sérstakan áhuga á efninu
og þekkingu til að tileinka sér skrif
sérfræðinga kynnt sér niðurstöð-
urnar í smáatriðum. Rannsókninni
er lokið og flestir fræðimenn hefðu
numið staðar þar og snúið sér að
öðru. En Steinunn Kristjánsdótt-
ir, stjórnandi rannsóknarinnar, lét
ekki þar við sitja – sem betur fer.
Bók Steinunnar um klaustrið
á Skriðu er skrifuð fyrir alla þá
sem ekki hafa tök á að kynna sér
skýrslur og greinar sérfræðinga.
Hún rekur sögu verkefnisins og
helstu niðurstöður þess í læsilegri
frásögn og setur hana í samhengi
við bæði Íslandssöguna og sögu
klausturlífs í Evrópu. Frásögnin
er persónuleg, Steinunn segir frá í
fyrstu persónu og fær þannig tæki-
færi til að velta fyrir sér ýmsum
álitamálum og spurningum sem
engin örugg svör hafa fundist við
jafnframt því sem hún miðlar nið-
urstöðum rannsóknarinnar. Hún
segir líka frá uppgreftrinum sjálf-
um, samskiptum vísindamanna og
aðstoðarmanna þeirra og ýmsu sem
kemur upp í löngu og ströngu verk-
efni.
Hinn persónulegi blær nær ekki
bara til frásagnarinnar af striti
fornleifafræðinga í nútímanum
heldur litar hann líka myndina sem
við fáum af klaustrinu og sögu þess.
Steinunn stendur með „sínu fólki“ í
klaustrinu. Þessa má meðal annars
sjá merki í þeim köflum sem fjalla
um Íslandssögu almennt og sið-
breytinguna, samúð Steinunnar er
augljóslega með kaþólskum í þeirri
rimmu. Á stundum fer hún í full-
mikla vörn fyrir klausturhaldara
og aðra kaþólska embættismenn og
skýrir t.d. sögur um ágirnd og óbil-
girni þeirra með því að lúterskir
seinni tíma menn hafi lagt þeim allt
út á versta veg. Það má líka finna
að því að Íslandssögukaflarnir og
þeir hlutar bókarinnar sem fjalla
um önnur klaustur eru stundum í
lengsta og almennasta lagi.
En þetta eru smávægilegar
athugasemdir. Sagan af klaustrinu
á Skriðu er merkileg bók sem bæði
skemmtir og fræðir. Hún veitir les-
andanum nýja sýn á Íslandssög-
una á margvíslegan hátt. Bæði hús
klaustursins á Skriðu og ekki síður
beinagrindur þeirra sem hvíldu
í kirkjugarðinum segja merki-
lega sögu af umfangsmikilli starf-
semi klaustursins á sínum tíma.
Bækur eins og Sagan af klaustrinu
á Skriðu, þar sem fræðimaður segir
frá rannsóknum sínum á aðgengi-
legan hátt, skýrir og setur í sam-
hengi, eru geysilega mikilvægar og
það er ástæða til að hrósa Steinunni
og öllum þeim sem hafa komið að
verkefninu fyrir útkomuna.
Jón Yngvi Jóhannsson
Niðurstaða: Fróðleg og persónuleg
frásögn af merkum fornleifarannsókn-
um sem varpa nýju ljósi á söguna.
KLAUSTRIÐ Á SKRIÐU
STEINUNN KRISTJÁNSDÓTTIR Klaustursaga Steinunnar veitir nýja sýn á Íslandssöguna
á margvíslegan hátt, að mati gagnrýnanda.
Víkingur Heiðar Ólafsson píanó-
leikari ræðir Keisarakonsertinn
eftir Beethoven á kynningu sem
Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar
Íslands efnir til í Hörpu á sunnu-
dagskvöld. Keisarakonsertinn er
síðasti píanókonsertinn sem Beet-
hoven samdi og af mörgum talinn
sá tignarlegasti, en Víkingur Heið-
ar leikur hann á tónleikum Sinfóní-
unnar í næstu viku. Hann lofar
afslappaðri stemningu í Hörpu á
sunnudag.
„Ég ætla að sitja við flygilinn
og spila og spjalla, bæði um kons-
ertinn en ekki síður um hlutverk
einleikarans með hljómsveit. Ég
verð ekki með forskrifaðan fyrir-
lestur heldur leik þetta meira af
fingrum fram, en ég er með fullt
af hugmyndum um hvernig maður
miðlar svona vangaveltum til fólks
í tengslum við sjónvarpsþætti um
klassíska tónlist sem ég hef verið
að vinna fyrir RÚV.“
Víkingur kveðst ekki síður
hafa gaman af því að ræða tónlist
og kynna hana en að leika hana.
„Þetta er svo skemmtilegt og
þakklátt form; fólk er yfirleitt svo
reiðubúið til að opna eyrun á nýjan
hátt. Það þarf oft merkilega fá orð
og tóndæmi til að fólk upplifi tón-
listina á nýjan og sterkari hátt.“
Kynningardagskráin í Hörpu
á sunnudag hefst klukkan 20.
Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn meðan húsrúm leyfir. - bs
Víkingur Heiðar ræðir
Keisarakonsertinn
VÍKINGUR HEIÐAR Spjallar um Keisarakonsertinn sem hann ætlar að flytja með
Sinfóníuhljómsveit Íslands í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sætar franskar
frá McCain
Sætu kartöflurnar frá McCain eru ómótstæðilega
bragðgóðar og ríkar af A-vítamíni. Þú skellir þeim í
ofninn og áður en þú veist af ertu komin(n) með
girnilegt og gómsætt meðlæti. Prófaðu núna!
MAGNAÐAR RITDEILUR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
Studio Stafn, Ingólfsstræti 6,
Sími 552 4700
Opið 12-16 laugardag og sunnudag,
virka daga 12-17
Fjöldi annarra úrvalsverka á
studiostafn.is
Sölusýning
Louisa Matthíasdóttir
Vatnslitamyndir • Olíumálverk