Fréttablaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 32
3. nóvember 2012 LAUGARDAGUR32
www.heilsuhusid.is
Námskeiðið er haldið í Heilsuhúsinu, Lágmúla 5, kl. 19:30 - 21:30
Innifalið er uppfærð handbók með öllum upplýsingum sem þú
þarft og 30 daga framhaldsmatseðill.
Námskeiðsgjald aðeins kr. 5.500,-
Nánari upplýsingar á www.30.is og í síma 864 9155.
Með DAVÍÐ KRISTINSSYNI næringar- og lífsstílsþjálfara.
Frábær leið til að byggja upp heilbrigðan lífsstíl án
skyndilausna. Yfir 4000 íslendingar hafa farið í gegnum
30 daga hreinsun. Byrjaðu núna!
Mánudaginn 12. nóvember
6z2011 73z
HJÚSKAPARSTAÐA
HÚSAKYNNI Á NORÐURLÖNDUM SALA ÁFENGIS Á HVERN ÍBÚA
FJÖLDI KVIKMYNDAHÚSA Á 100.000 ÍBÚA
29%
61%
39%
44%
6%
11% 7% 3%
1962
■ Ógiftir
■ Giftir
■ Ekklar/ekkjur
■ Fráskilin
4z 1z2010 1960
■ 1 herbergi með eldhúsi
■ 2 herbergi með eldhúsi
■ 3 herbergi með eldhúsi
■ 4 herbergi með eldhúsi
■ Ekki skráð
45%
24%
28%
25%
19%
1% 4%
11%
22%
21%
Hlutfall stórra húsa er hæst í Noregi en lægst í Finnlandi.
NORÐURLÖND: 60 ára samstarf
12
10
8
6
4
2
0
30
25
20
15
10
5
0
Sala á áfengi hefur margfaldast
á Norðurlöndum ef litið er yfir
tímabilið, sérstaklega á Íslandi
og í Finnlandi.
Lí
tr
ar
á
m
an
n
á
ár
i
Norðurlöndin
● Alls búa 24,9 milljónir manns
í Danmörku, Finnlandi, Noregi,
Svíþjóð, á Íslandi og á sjálfstjórnar-
svæðunum Færeyjum, Grænlandi
og Álandseyjum.
● Norðurlönd eru strjálbýlt svæði.
Danmörk er eina undantekningin
en þar búa 127 manns á hverjum
ferkílómetra. Í Svíþjóð, Noregi og
Finnlandi búa milli 15 og 22 manns
á hverjum ferkílómetra, á Íslandi
3,4 en aðeins 0,14 Grænlendingar
búa á hverjum ferkílómetra á þeim
hluta Grænlands sem er íslaus.
● Íbúafjöldi á Norðurlöndum hefur
aukist um 1,6 milljónir frá árinu
1990. Mest hefur fólksfjölgunin
verið á Íslandi eða 20 prósent, og
síðan í Noregi og á Álandseyjum
eða 10 prósent.
● Ástæður fólksfjölgunarinnar er
fjölgun fæðinga en einnig sú að
fleiri flytja til Norðurlanda en frá
þeim.
HEIMILD: NORDEN.ORG
STRJÁLBÝLT SVÆÐI
Norðurlandaráð fagnar 60 ára afmæli á þessu ári en hið formlega samstarf
ríkjanna má rekja til þeirrar óskar ráðamanna að lokinni heimsstyrjöldinni
síðari að styrkja rödd Norðurlanda á alþjóðavettvangi á óvissutímum. Sam-
komulag náðist svo um stofnun ráðsins árið 1952. Hið formlega samstarf
fer fram í Norðurlandaráði annars vegar og Norrænu ráðherranefndinni hins
vegar.
Norðurlandaráð er opinber starfsvettvangur þingsamstarfs á Norðurlönd-
unum. Á tveimur árlegum fundum ráðsins, hefðbundnu þingi og vorþingi,
fara fram pólitískar umræður fulltrúa ríkisstjórna Norðurlandanna fimm og
Færeyja, Grænlands og Álandseyja.
Norrænu ráðherranefndinni var komið á laggirnar árið 1971 og er
samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna. Forsætisráðherrarnir bera
endanlega ábyrgð á samstarfi norrænu ríkisstjórnanna. Þeir hafa þó falið
samstarfsráðherrum Norðurlanda og Norrænu samstarfsnefndinni að sjá
um daglega samhæfingu opinbers samstarfs landanna.
Þetta samstarf ríkjanna á sér margvíslegar hliðar sem fjallað verður um á
næstu vikum í greinum um menningu og mannlíf á Norðurlöndum.
Þ
að væri erfitt fyrir litla
þjóð á borð við Íslend-
inga að komast af án
samstarfs við Norð-
urlöndin. Það skiptir
miklu máli fyrir Íslend-
inga að vera hluti af þessari heild og
að vera það á jafnréttisgrundvelli,“
segir Halldór Ásgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Norrænu ráðherra-
nefndarinnar. Halldór hefur verið
æðsti maður ráðsins frá haustinu
2006. Hann segir að af mörgu sé
að taka þegar litið er yfir umfang
samstarfs Norðurlandanna, þar sé
margt sem skipti máli og efli ríkin.
„Forsætisráðherrar hafa komið
miklu sterkar inn í samstarfið und-
anfarin ár, sem hefur styrkt það
enda bera þeir meginábyrgð á sam-
starfinu. En auðvitað byggjum við
á áratugalöngu samstarfi. Norður-
landaráð er 60 ára í ár og Norræna
ráðherranefndin 41 árs. Á þessum
tíma hefur byggst upp gríðarlega
sterkt tengslanet sem er mjög verð-
mætt.“
Velferðarmál á dagskrá
Mörg ný verkefni hafa sprottið upp
á síðustu áratugum sem gera sam-
starfið enn mikilvægara en fyrr,
segir Halldór. „Hundruð háskóla á
Norðurlöndum tengjast til að mynda
svokallaðri öndvegisrannsóknar-
áætlun, við höfum líka á okkar
könnu ýmis verkefni sem tengjast
grænum hagvexti og nú er verið
að hefja verkefni sem tengjast nor-
rænum velferðarmálum. Í því verð-
ur sérstaklega fjallað um atvinnu-
leysi ungs fólks á Norðurlöndum en
Svíar, sem verða í forystu í Norður-
landaráði á næsta ári, ætla að leggja
mikla áherslu á að bregðast við því.
Samvinna er mjög mikil undir hatti
Nordplus sem margir þekkja og þar
taka þátt bæði nemendur og kenn-
arar.“
Margvíslegur ávinningur er af
þessari samvinnu og ýmsir hagræð-
ingarmöguleikar sem liggja í auk-
inni samvinnu. „Rannsóknir á sviði
heilbrigðismála eru til að mynda
dýrar og mikill ávinningur yrði af
því að leysa þær með sameiginleg-
um hætti,“ segir Halldór.
Margir þekkja þessa samvinnu
Norðurlandanna en Halldór segir
samstarf Norðurlandanna við önnur
ríki hafa aukist verulega. „Því er
ekki að neita að það er vaxandi
áhugi á norrænu samstarfi annars
staðar í heiminum. Ég er til dæmis
nýkominn úr ferð frá Suður-Kóreu
þar sem ég hitti fulltrúa nýstofn-
aðra svæðasamtaka Kína, Japans
og Kóreu. Þeir eru að byggja upp
skrifstofu í Seúl og vilja samstarf
við Norðurlönd, sem er óneitanlega
áhugavert. Þessar þjóðir eru 20%
af mannkyni og með 20% af heims-
framleiðslunni. Þá hefur Evrópu-
sambandið í vaxandi mæli falast
eftir samstarfi við okkur. Ráðherra-
nefndin ber til að mynda ábyrgð á
styrktarsjóði European Humanities
-háskólans, háskóla sem er í útlegð
frá Hvíta-Rússlandi. Lukashenko,
forseti landsins, lokaði honum og
fluttist hann í framhaldinu frá
Minsk til Vilníus í Litháen. Skólinn
er fjármagnaður að stærstum hluta
af Evrópusambandinu og Norrænu
ráðherranefndinni. Í framhaldi af
þessu samstarfi höfum við átt marg-
víslegt samstarf við ESB. Þá hefur
samstarf við ríki á heimskauta-
svæðum aukist en ráðherranefndin
hefur viljað beina sjónum að íbúum
á þeim landsvæðum.“
Standa okkur næst
Halldór segir Íslendinga njóta mjög
góðs af samstarfinu. „Þessar þjóð-
ir eru okkur skyldastar og standa
okkur næst á margan máta. Það er
líka ómetanlegt fyrir Íslendinga að
geta nýtt sér aðgengi að háskólum
Norðurlanda, þeir standa okkur
opnir og þekkingin í dönsku gerir
Íslendingum kleift að stunda nám
alls staðar á Norðurlöndum,“ segir
Halldór sem segir að þrátt fyrir
vaxandi þrýsting um að nota ensku
í samstarfinu séu Norðurlandamál
mikilvæg í sambandinu.
Halldór lætur af störfum sem
framkvæmdastjóri Norrænu ráð-
herranefndarinnar á næsta ári. Þá
ætlar hann að flytja til Íslands á ný.
„Ég sakna vatnsins, fjölskyldunnar
og fjallanna,“ segir hann. Spurður
hvort hann fylgist með þróun mála
á Íslandi segir hann svo ekki vera.
„Ég stunda bara einhvers konar
yfirborðslestur á samfélaginu, en
vil ekki dæma um neina þróun á því,
enda hef ég ekki þá grunnþekkingu
sem til þarf. Ég þekki ekki heldur
þetta nýja Alþingi, flestir ef ekki
allir mínir félagar eru hættir í póli-
tík,“ segir Halldór sem ætlar sér
ekki að setjast algjörlega í helgan
stein er Norðurlandastörfum lýkur.
„Ég er í ráðherrahópi Aspen-stofn-
unarinnar sem er samstarfshóp-
ur fyrrverandi utanríkisráðherra
undir forystu Madeleine Albright,
fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Við notum þekk-
ingu okkar til að gefa ráð á alþjóð-
legum vettvangi stjórnmála. Ég hef
gaman af þessu og ætla að taka þátt
í því áfram.“
Samstarf Norðurlanda verðmætt
Norðurlandasamstarf er ein af styrkustu stoðum íslensks samfélags, segir Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu
ráðherranefndarinnar. Sigríður Björg Tómasdóttir ræddi við Halldór um samstarf nágrannaþjóða sem á sér áratugalanga sögu.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Segir margvíslegan ávinning af Norðurlandasamstarfi.
MYND/NORDEN.ORG
■ 2010 ■ 1960
■ 2010 ■ 1960
● Í ár halda Norrænar hagtölur upp á 50 ára afmæli. Af því tilefni hafa verið
teknar saman ýmiss konar upplýsingar um breytingar á tímabilinu og eru hér
á síðunni örfá dæmi um þær. HEIMILD: NORDEN.ORG
MENNING OG MANNLÍF