Fréttablaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
skoðun 12
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
veðrið í dag
13. nóvember 2012
267. tölublað 12. árgangur
Lýg ég því?
Sighvatur Björgvinsson
svarar gagnrýni og segist
ekki þekkja íslenska þjóð.
umræða 14
GOTT RÁÐLárpera (avókadó) er holl og góð. Hún er notuð í mexí-
kóskt guacamole en einnig er hún góð í forrétti, til dæm-
is rækjukokteil. Ef lárperan er ekki nægilega þroskuð er
gott ráð að setja hana í poka með einu epli og láta liggja
daglangt á eldhúsborðinu.
Rodalon sótthreinsunGegn myglusveppi Eyðir lykt úr fatnaði
Opið kl. 9 -18 laugardaga kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 569 3100 g.ise irber
CROSSFIT XYOPN
Nú með
bláberjabragði
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
NÝ
KILJA
Grafin í sand
Mikið er lagt í nýjasta
tónlistarmyndband Bjarkar
Guðmundsdóttir.
tónlist 30
TÓNLIST „Þetta er skrítin staða að vera með
óánægða tónlistarmenn sem vilja spila. Við vilj-
um fá þá en það er ekki hægt. Það eru allir að
tapa á þessu ástandi,“ segir Sigmar Guðmunds-
son, ritstjóri Kastljóssins í Ríkissjónvarpinu.
Samningur sem Ríkissjónvarpið gerði við
Félag íslenskra hljómlistarmanna, FÍH, fyrir
fjórum árum hefur sökum niðurskurðar hjá
RÚV orðið til þess að tónlistar menn eru
hættir að spila í Kastljósinu.
Ástæðan er sú að þátturinn getur
ekki lengur borgað tónlistarmönnum
fyrir að koma þar fram. Flestum tónlistarmönnum
er sama þótt þeir fái ekkert greitt og þiggja kynn-
inguna heilshugar, en samningurinn við FÍH
kveður á um að hver tónlistarmaður fái um 22
þúsund krónur fyrir hverja framkomu.
Róbert Þórhallsson, stjórnarmaður í FÍH,
segir að samningurinn við RÚV hafi verið gerð-
ur til að stuðla að því að tónlistarmenn fái
greidd lágmarkslaun fyrir vinnuna
sína. Aðspurður segir hann vel koma til
greina að endurskoða samninginn í ljósi
ástands mála hjá RÚV. - fb / sjá síðu 30
Allir eru óánægðir með tónlistarleysi í Kastljósinu vegna samnings RÚV og FÍH:
Mega ekki spila frítt í Kastljósi
LÆGIR OG LÉTTIR til Í dag má
búast við hæglætisveðri að mestu.
Horfur á stöku skúrum eða slyddu-
éljum sunnan- og vestanlands en
léttir heldur til N- og A-lands er
líður á daginn.
VEÐUR 4
4
1
3
2
4
RÓMANTÍSK GÖNGUFERÐ Í FENEYJUM Ferðamenn hafa þurft að vera vel búnir í miðbæ Feneyja síðustu tvo daga. Vatn flæðir
um götur helstu verslunarhverfa og sumar búðir og heimili á jarðhæðum eru enn á floti. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Samfylkingin í Reykjavík
FLOKKSVA L 16. OG 17.NÓVEMBER
2012
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
FJARSKIPTI Lúkningargjöld, sem eitt síma-
fyrirtæki greiðir þegar viðskiptavinir þess
hringja í annað, verða allt að fjórfalt lægri
um mitt næsta ár en þau eru í dag, samkvæmt
nýrri ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar
(PFS). Þá verða gjöldin lækkuð niður í 1,66
krónur á mínútu og verða þau sömu hjá öllum
símafyrir tækjunum. Sem stendur eru hæstu
lúkningargjöldin 6,3 krónur á mínútu.
Hrafnkell Gíslason, forstjóri PFS, segir
ákvörðunina með þeim merkilegri sem stofn-
unin hefur tekið. „Forsenda fyrirtækjanna
við að hafa mismunandi verð þegar hringt
er út úr neti þeirra hverfur við þetta. Lækk-
unin mun síðan breyta símtalinu sjálfu úr því
að vera hátt hlutfall af heildsöluverði í það að
verða lágt hlutfall. Ég veit ekki hvort smá-
söluverð á símtölum muni lækka. Það kann
þó að vera. En það getur verið að fleiri aðilar
komi inn á markaðinn og bjóða þá hugsanlega
hagkvæmara verð fyrir neytendur.“
Í dag greiða símafyrirtækin mismunandi
verð vegna lúkningar á símtölum. Þegar við-
skiptavinir annarra símafyrirtækja hringja
í kerfi Símans eða Vodafone eru greiddar 4,5
krónur á mínútu, þeir sem hringja í Tal greiða
5,5 krónur á mínútu og þeir sem hringja í
Nova 6,3 krónur á mínútu. Ástæða þess að
verðið er mismunandi er að PFS hefur heimil-
að símafyrirtækjum sem eru ný á markaði að
rukka tímabundið hærri lúkningargjöld.
Í janúar var ákveðið að gjöldin yrðu sam-
ræmd. PFS framkvæmdi í kjölfarið verðsam-
anburð við nokkra evrópska farsímamark-
aði og komst að þeirri niðurstöðu að íslensku
símafyrirtækin mættu mest rukka 1,66
krónur á mínútu í lúkningargjöld. Það verð
var fengið með því að taka meðaltal af sama
gjaldi hjá sjö Evrópuríkjum. Í ágúst ákvað
PFS að fresta innleiðingu hins nýja lúkning-
argjalds fram til 1. júlí 2013. Frá áramótum
verður gjaldið þó samræmt og öll símafyrir-
tækin munu borga fjórar krónur á mínútu.
- þsj / sjá síðu 10
Ákvörðun um gjaldlækkun
bætir hag farsímanotenda
Lúkningargjöld símafyrirtækja verða allt að fjórfalt lægri um mitt næsta ár, samkvæmt nýrri ákvörðun Póst-
og fjarskiptastofnunar. Forstjóri hennar segir ákvörðunina eina þá merkilegustu sem stofnunin hefur tekið.
krónur á mínútu er
það verð sem greitt
verður fyrir lúkningu
símtals frá miðju næsta ári.
1,66
FENEYJAR, AP Ausandi regn og sjó-
gangur hefur valdið einum mestu
flóðum í Feneyjum síðan mæl-
ingar þar hófust árið 1872. Vatns-
elgurinn á götum borgarinnar
náði mest eins og hálfs metra
dýpt í gær og á sunnudag, sem er
það sjötta mesta í sögunni.
Flóð eru algeng á þessum árs-
tíma í Feneyjum og voru enn
meiri fyrir fjórum árum en nú.
Árum saman hefur verið unnið
að færanlegum varnargörðum
sem rísa eiga upp úr sjávarbotn-
inum við borgina og skýla henni
fyrir öldugangi. Þeir verða ekki
tilbúnir fyrr en árið 2014.
Lægðin sem sökkti sjötíu pró-
sentum af Feneyjum á sunnudag
færði sig síðan norður á bóginn
og varð til þess að um tvö hundr-
uð manns þurftu að flýja heimili
sín í Toskana-héraði í gær. - sh
Allt á floti í Feneyjum:
Ein mestu flóð
síðan mælingar
hófust á 19. öldLærdómsríkt og erfitt
Óskar Bjarni stendur í
ströngu í Danmörku.
Sport 26
SIGMAR
GUÐMUNDSSON