Fréttablaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 17
GOTT RÁÐ Lárpera (avókadó) er holl og góð. Hún er notuð í mexí- kóskt guacamole en einnig er hún góð í forrétti, til dæm- is rækjukokteil. Ef lárperan er ekki nægilega þroskuð er gott ráð að setja hana í poka með einu epli og láta liggja daglangt á eldhúsborðinu. Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2878 • opið mán.-fös. kl. 11:00-18:00, lau. 11:00-15:00 friendtex.is • praxis.is • soo.dk Allt að 70% afsláttur Rodalon sótthreinsun Gegn myglusveppi Eyðir lykt úr fatnaði Opið kl. 9 -18 laugardaga kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 569 3100 g.ise irber Stuðnin gs stöngin Stuðningsstöngin er hjálpar- og öryggistæki sem auðveldar fólki að vera virkt og athafnasamt við daglegt líf án þess að þurfa að reiða sig á aðra. Margir Iðjuþjálfarar, sjúkraþjálfarar og læknar hafa mælt með stuðningsstöngunum fyrir sína skjólstæðinga. Stuðningsstangirnar hafa fengið verðlaun fyrir notagildi, öryggi og hönnun á alþjóðlegum hjálpartækjasýningum í USA. Yfir 500 0 noten dur á Ísland i síðan 1999 GÓÐ HREYFING Cross- fit er skemmtilegt og öflugt þjálfunarkerfi sem skilar einstökum árangri og bættri heilsu. MYND/GVA CrossFit XY er nýopnuð crossfit-stöð að Miðhrauni 2. Þar er 640 fermetra æfingarými sem skiptist í tvo stóra sali fyrir hóptíma og einn minni sem hentar betur fyrir smærri hópa og einkaþjálfun. „Utandyra er svo greiður aðgangur að hlaupastígum í hrauninu í kring og stutt í Heiðmörk- ina. Þá er einnig boðið upp á aðgang að heitum og köldum potti og mögu- legt að bóka tíma í nudd,“ segir Unnar Helgason yfirþjálfari CrossFit XY. Crossfit er skemmtilegt og öflugt þjálfunarkerfi sem skilar einstökum ár- angri og bættri heilsu. „Crossfit bygg- ist upp á stöðugt breytilegum æfingum sem búa okkur undir að takast á við líkamlegar áskoranir af hvaða tagi sem er. Við hlaupum, róum, notum lóð, ketilbjöllur, bolta og eigin þyngd svo eitthvað sé nefnt. Þar sem crossfit er samsett úr mörgum íþróttagreinum þurfa allir að huga vel að grunnat- riðum crossfit-æfinga. Við leggjum því ríka áherslu á að iðkendur ljúki grunnnámskeiði áður en þeir byrja að sækja opna tíma í crossfit.“ Árangur er mælikvarði á velgengni og hvati til að halda áfram. „Í crossfit er árangurinn mælanlegur. Ákveðnar æf- ingar eru framkvæmdar og árangurinn mældur. Þær eru svo endurteknar síðar og bornar saman við fyrri mælingar. Þannig getur fólk fylgst með framförinni og séð árangurinn í tölum. Það er ótrú- lega gaman að fylgjast með fólki komast í form sem það gat ekki ímyndað sér að það myndi komast aftur í.“ Grunnnámsskeið hefjast hjá Cross- Fit XY á morgun þar sem hægt er að velja um fjóra mismunandi tíma. „Við erum enn að taka á móti skráningum og bjóðum upp á sérstök opnunartilboð þar sem einn mánuður í crossfit fylgir frítt með hverju grunnnámskeiði.“ CrossFit XY er opið alla virka daga frá 05.45 til 20.45 og á laugardögum frá 9 til 15 en lokað er á sunnudögum. „Við hvetjum fólk til að líta inn og kíkja á stöðina.“ Hægt er að sjá stundatöflu ásamt öllum nauðsynlegum upplýsing- um um stöðina á www.crossfitxy.is. CROSSFIT XY OPNAR Í GARÐABÆ CROSSFIT XY KYNNIR Nýopnuð crossfit-stöð að Miðhrauni 2 í Garðabæ býður upp á frábær opnunartilboð. Þar er lögð áhersla á faglega þjálfun í skemmtilegu og jákvæðu umhverfi. Grunnnámskeið hefjast á morgun. OPNUNAR- TILBOÐ Grunnnámskeið hefjast á morgun og hægt er að velja um fjóra mismun- andi tíma. Boðið er upp á sérstök opnunartilboð þar sem einn mánuður í crossfit fylgir frítt með hverju grunn- námskeiði. Nánar á www.crossfitxy.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.