Fréttablaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 34
13. nóvember 2012 ÞRIÐJUDAGUR26 sport@frettabladid.is HANDBOLTI Þjálfarinn Óskar Bjarni Óskarsson hleypti heimdraganum eftir Ólympíuleikana, sagði skilið við Val og tók við danska úrvalsdeildarfélaginu Viborg. Óskar hefur þess utan þurft að draga sig í hlé með íslenska landsliðinu þar sem hann var aðstoðarþjálfari Guðmundar Guðmundssonar. Honum veitir ekki af því að nýta alla sína krafta hjá Viborg sem hefur gengið illa í upphafi vetrar og aðeins unnið tvo leiki það sem af er. Gunni er alveg með þetta „Það var sitt lítið af hverju sem spilaði inn í að ég hætti með lands- liðið. Gengi liðsins þar á meðal enda erfitt að hoppa í burtu þegar illa gengur. Ég treysti mér ekki í það. Ég vissi að þetta yrði erfitt hjá Viborg en ég vissi ekki að það yrði svona erfitt. Ég gat því ekki haldið áfram þó svo mig hefði langað til þess,“ segir Óskar Bjarni. Hann er mjög ánægður með að Gunnar Magnússon hafi tekið sitt gamla starf en Gunnar var einnig í þjálf- arateymi Guðmundar og Óskars. „Gunni er alveg með þetta. Ef hann hefði ekki verið að fara að taka við þessu hefði mér liðið mjög illa yfir því að hafa ekki getað komið og hjálpað til. Sérstaklega þar sem það var nánast enginn undirbúningur í boði fyrir fyrstu leiki Arons með liðið. Ég veit að það er allt í góðu með Gunna inn- anborðs enda þekkir hann þetta allt út og inn. Þetta snýst ekki um getu Arons, enda voru þetta erf- iðar aðstæður fyrir hann, en allir leystu þetta með stæl.“ Þetta er búið að vera erfitt Óskar Bjarni segir að hann sé boð- inn og búinn að aðstoða HSÍ og landsliðið eftir bestu getu ef þess er óskað. Núna fara aftur á móti allir kraftar þjálfarans í að rífa Viborg upp. Síðustu vikur hafa eðlilega tekið á þjálfarann enda ekki bara gengið illa á vellinum heldur hefur hans stóra fjölskylda þurft að koma sér fyrir í nýju landi en Óskar Bjarni er giftur og á fjög- ur börn. „Þetta er búið að vera ansi lærdómsríkur og erfiður tími. Mjög skemmtilegur líka en ég neita því ekki að þetta sé búið að vera erfitt,“ segir Óskar Bjarni en ofan á allt annað kom hann seint inn í undirbúninginn hjá Viborg þar sem hann var með landsliðinu á ÓL í London. „Það var ákveðin áhætta að hoppa þangað eftir að ég tók þetta starf að mér. Þessi lélegi árangur í upphafi vetrar er samt ekki alfarið því að kenna. Við erum með gríð- arlegar breytingar á liðinu, eða átta menn sem var skipt. Svo er liðið 20 milljónum íslenskra króna ódýrara en það var. Það var því vitað að liðið yrði slakara í ár. Ég hefði samt viljað vera kominn með fleiri stig,“ segir þjálfarinn en það hafa líka verið meiðsli í þunnum leikmannahópi. „Ég sé ekki eftir því að hafa farið til London. Það gaf mér mikið og ég lærði mikið af því. Var með góða aðstoðarþjálfara í Danmörku á meðan sem héldu þessu vel á floti. Gummi var líka að ganga í gegnum miklar breytingar með sitt lið en hann hefur ekki tapað leik á meðan það gengur ömur- lega hjá mér. Það er því ekki hægt að kenna Ólympíuleikunum alfarið um þessa byrjun hjá okkur.“ Ekki raunsætt að komast í úrslitakeppnina Hjá Viborg er kvennaliðið stærra en karlaliðið og meira lagt í það. Það er ekki algengt. Óskar segir að það séu miklar kröfur gerðar til kvennaliðs félagsins á meðan það sé stefnt að sæti í úrslitakeppninni hjá körlunum. „Að komast í úrslitakeppnina er háleitt, og jafnvel ekki raunsætt, markmið miðað við mannskapinn sem við höfum í dag. Það eru aftur á móti langtímamarkmið um að bæta fjárhaginn og koma liðinu í topp fjögur eftir nokkur ár. Það á þó eftir að leggja þær línur betur að mínu mati,“ segir Óskar en liðið varð í sjöunda sæti í fyrra en átta efstu komast í úrslitakeppnina. „Ég finn ekki fyrir mikilli pressu þó svo það gangi illa og ég bjóst kannski við að það yrði meiri pressa. Ég er að fá fínan stuðning við verkefnið og við vinnum okkur út úr þessum vandræðum. Það gera sér allir grein fyrir því að við erum með slakara lið en í fyrra og erum að gera það besta með þann mannskap sem er til staðar.“ henry@frettabladid.is HANDBOLTI Framkonur verða án aðalmarkvarðar síns það sem eftir er tímabilsins í kvennahandbolt- anum því Guðrún Ósk Maríasdótt- ir hefur þurft að draga sig í hlé eftir að í ljós kom að hún á von á barni með kærasta sínum Árna Birni Kristjánssyni. Guð- rún Ósk er einn allra besti markvörður N1- deildarinnar og hefur verið í kringum A-lands- liðið síðustu árin. „Ég tilkynnti stelpun- um þetta eftir Stjörnu- leikinn. Þetta var auð- vitað áfall en þær tóku þessu mjög vel, sam- gleðjast og styðja mig. Þær ætla sér stóra hluti og ég hef enga trú á öðru en að þær nái því. Það er ekkert ein manneskja sem kemur veg fyrir það,“ segir Guðrún og bætti við: „Þetta var ekki planað en er mjög velkomið. Þetta er bara nýr kafli,“ segir Guðrún Ósk sem hætti þó ekki strax að æfa. „Ég fór til læknis og hann sagði að það eina sem væri hættulegt við þetta væri að fá skot í magann. Þá varð ég frekar stressuð og fann alveg að ég var farin að stíga frá boltanum í staðinn fyrir að fara fyrir hann. Ég hélt áfram þrátt fyrir morg- unógleði eða all- an-daginn-ógleði réttara sagt,“ sagði Guðrún en fljótlega tók hún þó ákvörðun um að draga sig í hlé. „Ég fann það að ég var ekki lengur að standa mig eins og ég vildi. Þá var bara kominn tími á leyfa öðrum að taka við,“ segir Guðrún María. Nafna hennar Guðrún Bjartmarz hefur tekið fram skóna að nýju en hún lék síðast með Framlið- inu veturinn 2005-2006 og var þá í hópi bestu markvarða deildarinnar. „Það er algjör snilld að hún kom til baka. Þetta var mjög mikið áfall fyrir liðið held ég en það kemur alltaf maður í manns stað. Fram er með topplið þannig að ég hef engar áhyggjur af þeim. Ég geri ráð fyrir því að vera áfram í kringum liðið. Þetta er ekki bara líkamsræktin því þetta er félagsskapurinn líka. Ég verð með Guðrúnu á hliðarlínunni og við ræðum hlutina,“ segir Guð- rún Ósk. Guðrún Ósk missti af HM í Brasilíu í fyrra vegna meiðsla en segir að það hafi verið löngu ljóst að hún yrði ekki með á EM í Serbíu í desember. „Ég gaf ekki kost á mér út af skól- anum. Það var því ekki jafnmikið áfall fyrir mig gagnvart því. Mér er greinilega ekki ætlað að kom- ast á stórmót,“ grínast Guðrún með en bætti svo við: „Ég treysti bara á það að þær komist inn á annað stór- mót þegar ég kem til baka og að ég fái mögulega að taka þátt í því. Það væri gaman,“ segir Guðrún Ósk og hver veit nema að hún mæti aftur til leiks næsta haust. „Ég geri nú ráð fyrir því að koma aftur í handboltann. Maður hættir nú ekkert svo auðveldlega. Þetta verður sumarkríli og ég verð kannski bara komin aftur næsta haust. Það er aldrei að vita,“ sagði Guðrún Ósk að lokum. - óój TRYGGVI GUÐMUNDSSON , markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi, gekk í gær frá eins árs samningi við Fylki og mun spila með liðinu í Pepsi-deild karla næsta sumar. Tryggvi sem er 38 ára gamall hefur skorað 129 mörk í 232 leikjum í efstu deild fyrir ÍBV, KR og FH þar á meðal 3 mörk í 11 leikjum með ÍBV síðasta sumar. Ég finn ekki fyrir mikilli pressu þó svo það gangi illa. Ég bjóst jafnvel við meiri pressu. ÓSKAR BJARNI ÓSKARSSON HANDBOLTAÞJÁLFARI Ég var farin að stíga frá boltanum í staðinn fyrir að fara fyrir hann. GUÐRÚN ÓSK MARÍASDÓTTIR MARKVÖRÐUR FRAM Í N1 KVENNA Lærdómsríkur og erfiður tími Handknattleiksþjálfarinn Óskar Bjarni Óskarsson stendur í ströngu í Danmörku. Hann hefur þurft að flytja stóra fjölskyldu milli landa á meðan að hvorki gengur né rekur hjá félaginu sem hann þjálfar. ÁLAG Í DANMÖRKU Veturinn verður væntanlega mjög lærdómsríkur fyrir Óskar Bjarna í Danmörku. Byrjunin hefur verið erfið en liðið vann mikilvægan leik um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Markvörðurinn Guðrún Ósk Maríasdóttir verður ekki meira með kvennaliði Fram í handboltanum í vetur: Hélt fyrst áfram þrátt fyrir morgunógleðina GUÐRÚN ÓSK MARÍASDÓTTIR Hefur staðið sig vel í marki Framliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Lengjubikar karla í körfu Skallagrímur-Grindavík 81-108 (43-56) Stigahæstir: Carlos Medlock 27, Páll Axel Vilbergsson 21, Trausti Eiríksson 8/14 fráköst, Birgir Þór Sverrisson 8, Davíð Ásgeirsson 7 - Jóhann Árni Ólafsson 24/6 stoðsendingar, Aaron Broussard 23, Þorleifur Ólafsson 17/7 fráköst/6 stoðsendingar, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 12, Ármann Vilbergsson 9, Samuel Zeglinski 8/5 stoðsendingar. Snæfell-Hamar 97-75 (44-28) Stigahæstir: Hafþór Ingi Gunnarsson 24, Stefán Karel Torfason 16/9 fráköst, Asim McQueen 13/8 fráköst, Jay Threatt 13, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 9, Jón Ólafur Jónsson 7 - Örn Sigurðarson 18/12 fráköst, Þorsteinn Már Ragnarsson 17, Halldór Gunnar Jónsson 16, Jerry Lewis Hollis 9. Stjarnan-Fjölnir 112-82 (56-37) Stigahæstir: Dagur Kár Jónsson 22, Brian Mills 16/8 fráköst, Sæmundur Valdimarsson 16/4 fráköst, Björn Kristjánsson 14/8 stoðsendingar, Fannar Freyr Helgason 8/6 fráköst, Sigurður Dagur Sturluson 8/4 fráköst, Jovan Zdravevski 8, Kjartan Atli Kjartansson 6/10 fráköst, Justin Shouse 6/12 stoðsendingar, Marvin Valdimarsson 6 - Arnþór Freyr Guðmundsson 15/5 stoðsendingar, Tómas Heiðar Tómasson 14/6 stoðsendingar, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 12/8 fráköst/5 stoðsendingar, Gunnar Ólafsson 11, Elvar Sigurðsson 9, Sylverster Cheston Spicer 7/5 fráköst, Smári Hrafnsson 6. Njarðvík-Valur 117-70 (63-37) Stigahæstir: Nigel Moore 17/4 fráköst/6 stoðsendingar, Óli Ragnar Alexandersson 16/5 stoðsendingar, Elvar Már Friðriksson 16/5 stoð- sendingar, Hjörtur Hrafn Einarsson 12/5 stolnir, Friðrik E. Stefánsson 11/6 fráköst, Magnús Már Traustason 10 - Chris Woods 20/6 fráköst, Hlynur Logi Víkingsson 11, Atli Rafn Hreinsson 10, Ragnar Gylfason 7, Rúnar Ingi Erlingsson 6. Bikar karla í handbolta Stjarnan 2 - Afturelding 19-35 Víkingur - Akureyri 34-35 (Framl.) Valur 2 - Valur 19-26 Afturelding 2 - Selfoss 27-40 (12-19) Stjarnan - Fram 23-22 ÚRSLIT Í GÆR KÖRFUBOLTI Mike D’Antoni er tekinn við sem þjálfari Los Angeles Lakers í NBA-deildinni en ekkert varð af því að Phil Jackson tæki við Lakers-liðinu í þriðja sinn. Jackson hafði áhuga á að taka við Lakers en kröfur hans voru alltof háar. Hann vildi meðal ann- ars fá sömu völd hjá félaginu og Pat Riley er með hjá Miami Heat. Lakers ákvað að gera frekar þriggja ára samning við D’Ant- oni með möguleika á fjórða árinu. D’Antoni fær tólf milljónir doll- ara fyrir þessi þrjú ár eða 1.550 milljónir íslenskra króna. Það vekur athygli að Lakers veðji á D’Antoni að taka við stórstjörnuliði sínu þar sem allt minna en NBA-titill eru vonbrigði. D’Antoni hefur aldrei komist með sín lið í lokaúrslitin (10 tímabil) og lið hans hafa tapað 12 af síðustu 15 leikjum sínum í úrslitakeppni (New York 2011 0-4, Phoenix 2008 1-4 og Phoenix 2007 2-4). D’Antoni var látinn fara frá New York Knicks í fyrra eftir 24 töp í fyrstu 42 leikjunum. Til samanburðar þá hefur Jackson unnið 11 meistaratitla og stýrt sínum liðum til sigurs í 69 prósent leikja í úrslitakeppni (229 af 333). - óój Los Angeles Lakers í NBA: Völdu D’Antoni frekar en Phil MIKE D’ANTONI Hefur ekki komist alla leið með sín lið. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.