Fréttablaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 18
FÓLK|HEILSA Margir Norðmenn sleppa því að fara í tanneftirlit árum saman vegna þessa ótta. Norskur tannlæknir, Jon Nordmo, segir að flestir uppgötvi þegar þeir komi loks að tækninni hefur fleygt fram í tækjum sem nútímatannlæknar nota. „Fólk verður hissa yfir hversu auðvelt það er í raun að koma til tannlæknis,“ segir Jon sem hefur starfað sem tannlæknir í 24 ár í samtali við NRK. Hann hvetur fólk til að panta tíma til skoðunar. Þá er hægt að taka röntgenmyndir og meta ástand viðkomandi. Flestir tannlæknar þekkja þennan ótta. Sumir þora vart að opna munninn, aðrir svitna og skjálfa og enn aðrir eru óttaslegnir við sprautu. Einnig er til fólk sem fær innilokunarkennd í stólnum. Best er að koma reglulega til tannlæknis því það kemur í veg fyrir meiriháttar viðgerðir. Hægt er að halda tönnunum heilbrigðum með reglulegu eftirliti. Tannlæknirinn segir að margir kostir séu í boði fyrir þá sem þjást af alvarlegum kvíða. Hægt sé að gefa lyf sem hefur róandi áhrif en stundum gagnast að hafa róandi tónlist í eyr- unum á meðan viðgerð er framkvæmd. Tannlæknirinn metur hvað hentar hverjum og einum. Gott er að láta vita af hræðslunni strax. Þá er hægt að grípa til nauðsynlegra hjálpargagna og heimsóknin verður þægileg fyrir alla aðila. ÓTTAST TANNLÆKNINN Rannsóknir sýna að einn af hverjum tíu Norðmönnum er hræddur við að fara til tannlæknis og fer því ekki til hans árum eða áratugum saman. NÚTÍMA TANN- LÆKNASTOFA Á undanförnum árum hefur tækjabúnaður tannlækna breyst mikið jafnframt því sem tækninni hefur fleygt fram. JÓLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS KEMUR ÚT 27. NÓVEMBER Meðal efnis Í blaðinu: Jólaljósin, kökur, sætindi, skraut, föndur, matur, borðhald, jólasiðir og venjur. Bókið auglýsingar tímanlega: Atli Bergmann atlib@365.is 512 5457 Benedikt Freyr Jónsson benni@365.is 512 5411 Elsa Jensdóttir elsaj@365.is 512 5427 Jónína María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is 512 5432 ENN TÍMI Jónína Ó. Kárdal, náms- og starfsráðgjafi hjá HÍ, segir nemendur enn hafa nægan tíma til að búa sig undir prófin sem brátt skella á. MYND/ANTON Nú fer tími prófa að renna upp hjá mörgum. Margir finna fyrir einhverri spennu eða kvíða fyrir próf en það þarf ekki endilega að vera neikvætt. Gera þarf greinarmun á milli hvetjandi kvíða sem gerir það að verkum að við erum tilbúin að leggja meira á okkur en alla jafna og hins vegar kvíða sem er lamandi og kemur í veg fyrir árangur. „Ein ástæða streitu á próftímabili getur verið sú að nemandi telur sig vera illa undirbúinn undir próf- ið og verður þar af leiðandi óöruggur varðandi efnið. Það er ýmislegt hægt að gera til að gera próftímabil markvisst og árangursríkt,“ segir Jónína Ó. Kár- dal, náms- og starfsráðgjafi hjá Háskóla Íslands. Nú um miðjan nóvember er enn nægur tími til að undirbúa sig fyrir prófin með því að skipuleggja sig vel og forgangsraða fyrirliggjandi verkefnum. Náms- og starfsráðgjafa er að finna á öllum skólastigum og hægt er að leita til þeirra ef viðkomandi vill fá aðstoð við undirbúning prófa. „Prófundirbún- ingi má skipta í þrennt; skipulag og námstækni, efnislegan undirbúning og persónulegan undirbúning. Skipulag og námstækni fela meðal annars í sér að gera tímaáætlanir, forgangsraða verkefnum og rifja námsefnið reglulega upp. Einnig er nauðsynlegt að gæta að lengd á vinnulotum og velja heppilegt námsumhverfi.“ Jónína segir nemendur á öllum skólastigum fá margar vísbendingar frá kennurum um hvað eigi helst að leggja áherslu á í námsefninu og hvernig eigi að undirbúa sig efnislega. Vísbending- arnar geta meðal annars falist í þeim glærum sem kennarar láta nemendum í té, kennsluáætlunum og eldri prófum. „Hægt er að líta á próf sem ákveðið verkefni eða mælikvarða á þekkingu. Hver og einn reynir að hafa áhrif á gengi í prófum með því að undirbúa sig bæði námslega og persónulega, eins vel og hann getur. Persónulegur undir- búningur felst meðal annars í jákvæðri hugsun og sjálfstali. Þegar við höfum undirbúið okkur vel og segjum við okk- ur sjálf að við ætlum að gera eins vel og við getum á prófi erum við að hugsa á uppbyggilegan hátt. Rétt er að forðast neikvæðar hugsanir sem einkennast af fullyrðingum á borð við „þetta get ég aldrei“ eða „ég mun aldrei ná að komast yfir allt efnið“ og svo framvegis,“ segir Jónína. Ekki má gleyma að hvíld, góð hreyfing, slökun og hollt mataræði eru þættir sem stuðla að velgengni og huga þarf vel að á próftíma sem og öðrum tímum. Frekari upplýsingar um prófundir- búning má meðal annars nálgast á vef- síðu Náms- og starfsráðgjafar Háskóla Íslands, nshi.hi.is. ■ lilja.bjork@365.is PRÓFIN NÁLGAST ÁLAGSTÍMI Um leið og jólaundirbúningur fer að hefjast fara þeir sem eru í námi að huga að prófum. Þá er mikilvægt að hugsa vel um sál og líkama. FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.