Fréttablaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 2
13. nóvember 2012 ÞRIÐJUDAGUR2 SAMFÉLAGSMÁL Íslendingum stend- ur til boða þátttaka í samnorrænni hönnunarkeppni sem hverfist um að hanna vistvænar endurbætur á byggingum á Norðurlöndunum. Auglýst hefur verið eftir hönnun á fimm byggingum, þar á meðal á Höfðabakka 9 sem oft er kölluð Bogabyggingin eða Watergate. „Þetta er opin, þverfagleg sam- keppni sem ekki bara arkitektar heldur allir geta tekið þátt í. Í boði er myndar- legt verðlaunafé sem Norræna ráðherranefnd- in útvegar og alþjóðleg dóm- nefnd mun velja verðlaunahafa,“ segir Guðmund- ur Tryggvi Sigurðsson, forstöðu- maður eignaumsýslusviðs Fast- eignafélagsins Reita, en Reitir eiga Höfðabakka 9. Guðmundur Tryggvi segir að Norræna ráðherranefndin hafi síðustu ár beitt sér fyrir þróun vistvænna bygginga á Norðurlönd- um. „Með það fyrir augum hefur nefndin sett á fót verkáætlun í nokkrum skrefum. Einn hluti er þessi keppni,“ segir Guðmundur Tryggvi og bætir við að í keppn- inni sé einnig lögð áhersla á að draga fram sérnorræn einkenni bygginganna. Höfðabakki 9 er sjö hæða skrif- stofuhús frá árinu 1980. Endur- bóta er þörf á húsinu en markmið Fasteignafélagsins Reita er að búa til „vistvæna skrifstofugarða“ fyrir tæknifyrirtæki og skylda starfsemi. Að sögn Guðmundar Tryggva voru Reitir þegar byrjað- ir að skipuleggja endurinnréttingu á húsinu, í samstarfi við Opin kerfi sem hafa haft aðstöðu í húsinu um árabil, þegar fyrirtækið var beðið um að leggja til byggingu í keppn- ina. „Okkar hugmyndir féllu mjög vel að keppninni. Fasteignafélagið Reitir og Opin kerfi urðu því fús- lega við bóninni.“ Auk Höfðabakka 9 hefur verið auglýst eftir endurhönnun á bygg- ingum í Stokkhólmi, Ósló, Ball- erup í Danmörku og Tampere í Finnlandi. Skilafrestur á tillögum í keppnina er til 8. febrúar. Í kjöl- farið verða fjórar tillögur fyrir hverja byggingu valdar og þróað- ar áfram. Allar tuttugu tillögurn- ar verða verðlaunaðar og þá mun hönnunarteymið að baki þeirri tillögu sem að lokum verður valin best allra hljóta milljón norskra króna skattfrjálst í verðlaunafé, jafngildi 22,5 milljóna íslenskra króna. magnusl@frettabladid.is Íslenska Watergate verður vistvænt hús Norræna ráðherraráðið hefur blásið til samnorrænnar hönnunarkeppni þar sem markmiðið er að hanna vistvænar endurbætur á byggingum á Norðurlönd- unum. Ein bygginganna er á Íslandi en fyrstu verðlaun eru 22,5 milljónir. HÖFÐABAKKI 9 Til stendur að gera gagngerar endurbætur á Höfðabakka 9 og búa til vistvæna skrifstofubyggingu sem hentar vel tæknifyrirtækjum og skyldri starfsemi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL GUÐMUNDUR TRYGGVI SIGURÐSSON DANMÖRK Aflýsa hefur þurft tíu rannsóknum á Kolding-sjúkra- húsinu í Danmörku þar sem tækjum til rannsókna á maga og ristli var stolið um helgina. Þegar starfsmenn mættu til vinnu á mánudag voru skáparnir þar sem tækin voru geymd galtómir. Haft er eftir yfirlækninum Lynge Kirkegaard á vef Politiken að ólíklegt sé að hægt verði að hagnast á sölu tækjanna í Dan- mörku en þau eru metin á 5 millj- ónir danskra króna eða um 112 milljónir íslenskra króna. Krabbameinsrannsóknum var ekki aflýst heldur voru þær fram- kvæmdar með tækjum sem feng- in voru að láni. -ibs Óvenjulegur þjófnaður: Tækjum stolið af sjúkrahúsi DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur manni fyrir kynferðislega áreitni gegn barni og brot gegn blygðunarsemi. Honum er gefið að sök að hafa í mars síðastliðnum, í gufubaðs- klefa í sundlaug í Eyjafirði, káfað innanklæða á kynfærum sjö ára stúlku, berað á sér getnaðarlim- inn og beðið stúlkuna að snerta sig. Aðalmeðferð í málinu fer fram síðar í mánuðinum í Héraðs- dómi Norðurlands eystra. Foreldri stúlkunnar krefur manninn um 800 þúsund krónur í bætur. - sh Sagður hafa áreitt 7 ára barn: Ákærður fyrir káf í gufubaði STJÓRNSÝSLA „Það eru nokkur mál á borðinu hjá okkur sem eru með þræði til Panama, þannig að þetta gæti skipt máli,“ segir Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknar- stjóri um nýundirritaðan upplýs- ingaskiptasamning við Panama sem fjármálaráðuneytið kynnti í gær. Bryndís segir hins vegar að nú taki við tímafrekt ferli við full- gildingu samningsins, sem verði líklega ekki lokið fyrr en í árs- byrjun 2014. Þá fyrst verði hægt að krefjast upplýsinga á grund- velli hans. „Þá mun til dæmis reyna á hvort það sé hægt að fá upplýsingar aftur í tímann,“ segir Bryndís. Panama er 39. ríkið sem Ísland gerir samning af þessu tagi við. „Við fögnum hverjum samningi sem gerður er og þetta er mik- ilvægur liður í að berjast gegn skattaflótta,“ segir Bryndís. Skúli Eggert Þórðarson ríkis- skattstjóri tekur í sama streng. „Það hefur verið mjög erfitt að fá upplýsingar frá þeim löndum þar sem svona mikil leynd ríkir. Þessir nýju samningar sem búið er að gera við ríki sem reka afla- ndsþjónustu gefa okkur góðar vonir um að það verði mun auð- veldara að fást við þetta í fram- tíðinni.“ - sh Skattrannsóknarstjóri fagnar upplýsingasamningi við Panama en býst við töfum: Panamaflækjur afhjúpast ekki strax BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR SKÚLI EGGERT ÞÓRÐARSON LÖGREGLUMÁL „Ég veit bara um einn Íslending sem hefur setið inni hérna í Prag, í öðruvísi fangelsi. Hann sagði að þetta væri engin paradís,“ segir Þórir Gunnarsson, ræðismaður Íslands í Tékklandi, um aðbúnað í þarlendum fang- elsum. Tvær átján ára íslenskar stúlkur sitja nú í gæsluvarðhaldi í Prag eftir að kókaín í kílóa vís fannst í farangri þeirra við kom- una þangað í síðustu viku. Til stóð að Þórir fengi að hitta stúlkurnar í gær en það gekk ekki eftir. „Yfirlögregluþjónninn sem sér um málið vill ekki að neinn tali við þær á meðan það liggur ekki fyrir nákvæmlega hvaða efni þetta var og hversu mikið magn,“ segir Þórir. Fyrstu fréttir hermdu að í tösk- unum hefðu verið átta kíló, en það mun samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins vera orðum aukið. Líklega séu kílóin ekki nema um þrjú. Lögreglunni í Prag þykir ljóst að smyglið hafi verið þaulskipu- lagt af vönum glæpamönnum. Það megi meðal annars sjá á því hversu rækilega efnin voru falin í töskunum. Stúlkurnar voru úrskurð- aðar í sjö mán- aða gæsluvarð- hald en gætu sloppið út eftir þrjá ef þær eru samvinnuþýðar. Þórir segir stundum koma fyrir að Íslend- ingar þurfi að gista fangaklefa í eina nótt eða tvær í Prag. Maðurinn sem hann hafi hitt í vor hafi setið inni í rúman mánuð, en enginn hafi verið eins lengi og stúlkurnar horfa nú fram á. „Þetta er bara ömurlegur staður. Alls staðar er vont að vera í fang- elsi en þetta eru engin Norðurlönd. Þú ferð ekkert í skóla eða líkams- rækt,“ segir ræðismaðurinn. - sh Ræðismaður Íslands í Tékklandi fær ekki að hitta tvær átján ára íslenskar stúlkur: Fangelsin í Prag engin paradís ÞÓRIR GUNNARSSON FARANGURINN Efnin voru vandlega falin á milli laga í töskuefninu sjálfu. Stúlkurnar bera því við að bandarískur maður hafi fengið þær til verksins. VIÐSKIPTI Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, flutti mörg hundruð millj- ónir króna í erlendum gjald- eyri frá Íslandi á þessu ári og því síðasta í trássi við lög um gjaldeyris- höft. Þetta kom fram í DV í gær, þar sem sagði jafnframt að málið tengdist Guðmundi Erni Jóhannssyni, sem fór í leyfi sem framkvæmdastjóri Landsbjargar í síðustu viku vegna sambæri- legra ásakana. Jón Þorsteinn, sem nú afplánar fjögurra og hálfs árs fangelsis- dóm á Kvíabryggju vegna Exeter- máls sérstaks saksóknara, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann hafnar ásökununum. Við- skipti hans hafi ekki verið í trássi við gjaldeyrislög. - sh Sagður stórtækur braskari: Jón Þorsteinn hafnar frétt DV JÓN ÞORSTEINN JÓNSSON SAMFÉLAGSMÁL Hin árlega athafnavika, hátíð athafnasemi og framkvæmdagleði, hófst formlega með hringingu Kaup- hallarbjöllunnar í gærmorgun. Athafnavikan er haldin hátíðleg í 120 löndum í öllum heimsálfum. Einkenni vikunnar er svokölluð Athafnateygja, númerað gúmmí- armband sem þátttakendur eiga að vera með á meðan þeir fram- kvæma eitthvað verkefni. Ómar Ragnarsson fékk fyrstu Athafna- teygjuna þetta árið „Þetta er mjög gott framtak,“ sagði Ómar. „Við erum það lítil þjóð að framkvæmd einnar góðr- ar hugmyndar getur haft veruleg áhrif á þjóðarbúið. Þannig skapar til dæmis CCP fleiri störf en heilt álver.“ Það er Innovit, nýsköp- unar- og frumkvöðlasetur, sem stendur fyrir Alþjóðlegu athafna- vikunni hér á landi. - mþl Athafnavikan hringd inn: Ómar fékk fyrstu teygjuna ATHAFNAVIKAN SETT Ómar Ragnarsson fékk afhenta fyrstu Athafnateygjuna þetta árið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þjónustumiðstöð á Íslandi Norðmenn gera í nýrri skýrslu um olíuleit á Noregshluta Jan Mayen- hryggjarins ráð fyrir þeim möguleika að þjónustunni verði sinnt frá Íslandi. Þrefalt lengra er að þjónusta leitina frá Noregi. Sá flugvöllur sem næstur er svæðinu er við Þórshöfn á Langa- nesi og þar hafa sveitarstjórnarmenn áttað sig á tækifærunum. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. NOREGUR SPURNING DAGSINS Dóri og Jónas, voruð þið á kafi í þessu verkefni? „Já, menn voru að drukkna.“ Dóri Andrésson og Jónas Valtýsson hönn- uðu umslagið á nýrri plötu Péturs Ben. Myndin á umslaginu sýnir söngvarann á kafi í sundlaug en myndin var tekin í Varmárlaug í Mosfellsbæ. Þetta er opin, þver- fagleg samkeppni sem ekki bara arkitektar heldur allir geta tekið þátt í. GUÐMUNDUR TRYGGVI SIGURÐSSON FORSTÖÐUMAÐUR HJÁ REITUM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.