Fréttablaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 38
13. nóvember 2012 ÞRIÐJUDAGUR30
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
Tónlistarkonan Björk Guðmunds-
dóttir sendi í gærkvöldi frá sér
glænýtt myndband við lagið
Mutual Core. Myndbandið var
tekið upp hér á landi í byrjun
sumars þar sem 30 manna töku-
lið lagði undir sig stúdíó Saga
Film í tvo daga. „Þetta var mjög
skemmtileg vinna og mikið lagt í
allt. Við vorum 30 manna lið, allt
Íslendingar nema leikstjórinn og
aðstoðartökumaðurinn sem komu
að utan,“ segir Árni Björn Helga-
son hjá Saga Film.
Þrátt fyrir að myndbandið sé
tölvugert að stórum hluta var
mikið lagt í sviðsmyndina. Meðal
annars var Björk grafin í sand.
„Sandurinn, eldfjöllin og stein-
arnir eru meðal þess sem búið var
til fyrir sviðsmyndina. Þetta var
mjög flott og allir stóðu sig með
prýði.“
Leikstjóri myndbandsins er
Andrew Thomas Huang en hann
hefur unnið til fjölda verðlauna
fyrir verk sín. Hægt er að skoða
myndbandið á vefrás MOCAtv
undir slóðinni Youtube.com/
mocatv.
Mutual Core er eitt af 13 lögum
á plötunni Bastards, sem bygg-
ist á endurhljóðblönduðum lögum
af plötunni Biophilia. Bastards
kemur út þann 19. nóvember næst-
komandi. - áp
Björk grafin niður í sand í myndbandinu
LITADÝRÐ Myndband við lag Bjarkar Guðmundsdóttur, Mutual Core, var frumsýnt í
gærkvöldi á netinu en myndbandið var tekið upp hér á landi í sumar.
„Þetta er eitthvað sem okkur
finnst öllum leiðinlegt, að tón-
listin sé komin út úr Kastljósi.
Þetta er gert út af sparnaði
og ég held að þetta sé ákvörð-
un sem enginn er sáttur við að
taka,“ segir Sigmar Guðmunds-
son, ritstjóri þáttarins.
Samningur sem Ríkissjónvarpið
gerði við Félag íslenskra hljóm-
listarmanna, FÍH, fyrir fjórum
árum hefur sökum niðurskurðar
hjá RÚV orðið til þess að tón-
listarmenn eru hættir að spila
í Kastljósinu. Ástæðan er sú
að þátturinn getur ekki lengur
borgað tónlistarmönnum fyrir
að koma þar fram.
Þrátt fyrir að tónlistarmönn-
unum sjálfum sé flestum sama
þótt þeir fái ekkert greitt, svo
lengi sem þeir fái kynninguna,
getur Kastljósið ekki orðið við
ósk þeirra vegna samnings-
ins við FÍH. Hann kveður á um
að hver tónlistarmaður fái um
22 þúsund krónur fyrir hverja
framkomu. Ef um fimm manna
hljómsveit er að ræða nemur
samanlögð greiðsla því 110 þús-
und krónum. „Þetta er skrít-
in staða að vera með óánægða
tónlistarmenn sem vilja spila.
Við viljum fá þá en það er ekki
hægt. Það eru allir að tapa á
þessu ástandi,“ segir Sigmar.
Endurskoðun kemur til greina
Fréttablaðið hefur heyrt af
óánægju á meðal tónlistar-
manna vegna málsins því þeir
hafa ekki lengur tækifæri til að
koma tónlist sinni á framfæri í
Kastljósi. Aðspurður segist Sig-
mar kannast við þessa óánægju.
„Í staðinn hefur verið lagt upp
með að finna tónlistinni stað í
öðrum þáttum Sjónvarpsins,“
segir hann og á þar líkast til við
þætti á borð við Hljómskálann,
Dans, dans, dans og Djöflaeyj-
una.
Róbert Þórhallsson, stjórnar-
maður í FÍH, segir að samning-
urinn við RÚV hafi verið gerður
til að stuðla að því að tónlistar-
menn fái greidd lágmarkslaun
fyrir vinnuna sína.
„Ef einn aðili gefur út plötu og
ræður fólk til að spila með sér
og kynna efnið, kannski fjög-
urra manna hljómsveit, hefur
okkur í FÍH alltaf þótt óréttlátt
að þessir fjórir menn hafi engan
beinan hagnað af auglýsingu
fyrir plötuna.“
Aðspurður segir Róbert vel
koma til greina að endurskoða
samninginn í ljósi ástands
mála hjá RÚV. „Vissulega væri
ekki ógáfulegt að setjast aftur
að samningaborðinu. En við
höfum ekki staðið þarna niður
frá og meinað fólki að spila. En
að sjálfsögðu setjast menn að
samningaborðinu ef þetta er
farið að hamla því að menn geti
auglýst tónlistina sína.“
freyr@frettabladid.is
SIGMAR GUÐMUNDSSON: ÁKVÖRÐUN SEM ENGINN ER SÁTTUR VIÐ
Engin tónlist í Kastljósi
vegna samnings RÚV og FÍH
ENGINN SAMNINGUR GERÐUR VIÐ STÖÐ 2
Á sama tíma og FÍH samdi við RÚV
um að greiða tónlistarmönnum
var enginn slíkur samningur gerður
við Stöð 2. „Það hefur staðið svo-
lítið í RÚV-mönnum. Stöð 2 hefur
alla tíð tekið fyrir að borga fyrir
þessa framkomu og það er engin
rosalega ánægja hjá FÍH með það,“
segir Róbert. Samt sem áður gerði
RÚV sinn samning og að sögn
Róberts var hann mjög fínn. „Þeir
hafa kannski meira menningargildi
á markaðnum fyrir íslenska tónlist
en Stöð 2,“ segir hann og bætir við
að RÚV hafi einnig fengið með í
pakkanum frían endurspilunarrétt
á öllu því efni sem þeir eiga til í
safni.
SKRÍTIN
STAÐA
Sigmar Guð-
mundsson segir
það leiðinlegt að
engin tónlistaratriði
séu lengur í Kastljósi.
Róbert Þórhallsson
segir koma til greina
að endurskoða
samninginn við
RÚV.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Ég horfi ekki mikið á sjón-
varpsþætti og helst með öðru
auganu, en fléttan í Homeland
er mjög flott.“
Sigríður Heimisdóttir hefur hannað fylgi-
hluta-, fata- og heimilislínu úr mokka-
skinni fyrir fyrirtækið Varma.