Fréttablaðið - 15.11.2012, Blaðsíða 48
KYNNING − AUGLÝSINGKrakkar FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 20128
GÆÐASTUNDIR Á
BÓKASÖFNUM
Laugardagar og sunnudagar
eru barnadagar í Gerðubergs-
safni og Aðalsafni Borgarbóka-
safns Reykjavíkur og þá er alltaf
eitthvað skemmtilegt um að vera
fyrir börn og fjölskyldur. Næsta
sunnudag mun félagið Origami
Ísland kenna japönsk pappírs-
brot í Aðalsafni og í Gerðubergi
verður fjölmenningarleg
sögustund.
Fjölmargt annað er í boði fyrir
börn og unglinga í söfnum
Borgarbókasafns Reykjavíkur og
má þar nefna fjölskyldumorgna
fyrir fjölskyldur barna á aldrinum
0-6 ára. Þeir eru á miðviku-
dögum milli kl. 10.30 og 11.30 í
Gerðubergi og á fimmtudögum
í Aðalsafni á sama tíma. Þar er
boðið er upp á óformlega dag-
skrá auk þess sem leikföng og
bækur eru á staðnum.
Þá geta nemendur í 5-10. bekk
fengið aðstoð við heimanám á
söfnunum auk þess sem notaleg
aðstaða er í sérstökum barna- og
unglingadeildum þar sem hægt
er að setjast niður, lesa bækur
og tímarit og láta fara vel um
sig. Börn yngri en 18 ára fá frítt
skírteini og mega hafa fimmtán
gögn að láni í einu.
SMÁFORRIT FYRIR BÖRNIN
FRÆÐSLUNÁMSKEIÐ
FYRIR UNGLINGA SEM
ANNAST YNGRI BÖRN
Rauði Kross Íslands býður
reglulega upp á fræðslunám-
skeið fyrir unglinga 12 ára og
eldri sem gæta yngri barna.
Námskeiðið heitir Börn og
umhverfi og þar er farið yfir
ýmsa þætti er varða umgengni
og framkomu við börn. Rætt
er um árangursrík samskipti,
aga, umönnun, leiki og leik-
föng. Einnig er lögð áhersla
á slysavarnir og algengar
slysahættur í umhverfinu. Aðal-
markmið námskeiðsins er að
þátttakendur læri að umgangast
börn á ýmsum aldri, þekki helstu
slysavarnir og gildi þeirra og geti
brugðist við algengum áverkum
og veikindum barna. Námskeiðið
er bæði gefandi og þroskandi og
til þess fallið að auka ábyrgðartil-
finningu gagnvart yngri
börnum. Eftir að hafa
setið námskeiðið
fá þátttakendur
viðurkenningu frá
Rauða krossinum.
Nánari upplýsingar
er að finna á
heima-
síðu
Rauða
krossins
www.
raudi-
kross-
inn.is
Nokkur íslensk snjallforrit (öpp) eru til sem
ætluð eru til að kenna ungum börnum fyrstu
skrefin í reikningi og íslenska stafrófinu. Eftir-
talin smáforrit eru til fyrir Android-síma. Þau
eru ókeypis og sérstaklega hentug til að nýta
í bílnum, í búðarferðinni eða bara í rólegheit-
unum heima við.
ReikniLeikni er ætlað þeim sem eru að stíga
fyrstu skrefin í reikningi. Þar eru reiknings-
dæmi í samlagningu, frádrætti og margföldun
sett upp á einfaldan og skemmtilegan hátt.
Auðvelt er að skrá svörin og um leið að óska
eftir erfiðari eða léttari dæmum. Einnig má
finna alla margföldunartöfluna í forritinu. Guð-
röður Atli Jónsson skrifaði forritið upphaflega
með dóttur sína í huga en rödd hennar
hljómar í forritinu þar sem hún leiðbeinir
notendum áfram.
Stafrófið er einfalt forrit eftir Soffíu Gísladóttur
sem ætlað er ungum börnum sem vilja læra
að þekkja íslensku stafina. Farið er í gegnum
stafrófið þar sem stafir og myndir eru pöruð
saman undir leiðsögn leiðbeinanda.
Stafaleit er einfaldur leikur frá Appverksmiðj-
unni fyrir börn sem vilja þjálfa sig í að læra
stafina. Markmið leiksins er að finna pör af
stöfum úr íslenska stafrófinu. Þegar búið er að
finna pörin kemst spilari á næsta borð.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tilnefnt til
Grímunar 2012
sem besta
barnasýningin
Fréttatíminn Morgunblaðið
Baunagrasið
og
Sun 18/11 kl. 13:00 ÖRFÁ SÆTI
Gói
Bráðskemmtileg og fyndin leiksýning
fyrir alla fjölskylduna
SÍÐASTA
SÝNING!