Fréttablaðið - 15.11.2012, Blaðsíða 82
15. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR66
FÓTBOLTI Forráðamenn enska D-
deildarliðsins AFC Wimbledon vilja
að MK Dons breyti um nafn og hætti
að nota Dons-nafnið. Þessi lið mæt-
ast í fyrsta sinn í sögunni í ensku
bikarkeppninni í næsta mánuði.
Bæði félög voru stofnuð í kring-
um flutning Wimbledon FC til
Milton Keys árið 2003. Stuðn-
ingsmenn Wimbledon voru afar
óánægðir með þá tilhögun og
stofnuðu AFC Wimbledon árið
2002. Um leið hættu þeir að mæta
á leiki gamla félagsins sem kláraði
tímabilið á Selhurst Park í Lund-
únum áður en það flutti til Milton
Keys í september 2003.
Sumarið 2004 var félagið form-
lega endurnefnt MK Dons og hafa
stuðningsmenn gamla félagsins
alla tíð verið afar ósáttir við þessa
tengingu við sinn gamla klúbb.
Þess má þó geta að Wimbledon
FC fór aldrei á hausinn og fyrstu
árin litu forráðamenn MK Dons
á sögu Wimbledon FC sem sína
eigin. En því var hætt árið 2007 og
nú er litið svo á að MK Dons hafi
verið stofnað árið 2004.
Sá maður sem er hvað óvinsæl-
astur meðal stuðningsmanna AFC
Wimbledon er Pete Winkelman.
Hann sat í stjórn Wimbledon FC
sem ákvað árið 2001 að flytja
félagið og fór svo fyrir hópi fjár-
festa sem keypti félagið þremur
árum síðan. Þá var það í greiðslu-
stöðvun.
„Ég mun aðeins taka í hönd
Winkelman ef ég fæ viðurkennt
að hegðun þeirra hafi verið röng
og að félagið ætli að hætta að nota
Dons-nafnið,“ sagði Erik Samu-
elson, framkvæmdastjóri AFC
Wimbledon. „MK Dons hefur ekk-
ert að gera með Wimbledon en
þessi ákvörðun yrði að koma frá
þeim – ekki mér,“ bætti hann við.
AFC Wimbledon byrjaði í níundu
efstu deild á Englandi en fór upp
um fimm deildir á níu árum og er
nú í D-deildinni. Félagið er enn í
eigu stuðningsmanna Wimbledon
FC sem hafa ekki gleymt sögunni.
„Þetta er mikið tilfinningamál
og minnir alla á hvernig félagið
varð til. Við ætlum að gera okkar –
spila leikinn og ná vonandi í sigur.
Við fáum nú tækifæri til að sýna
knattspyrnuheiminum hversu
langt við höfum náð,“ sagði Samu-
elson. - esá
MK Dons og AFC Wimbledon mætast í fyrsta sinn:
Togast á um nafnið
MARKI FAGNAÐ Hermann Hreiðarsson spilaði með Wimbledon síðast þegar liðið
spilaði í efstu deild, frá 1999 til 2000. Hann er eini Íslendingurinn sem spilaði með
félaginu. NORDICPHOTOS/GETTY
HANDBOLTI HSÍ hefur aðeins átt
einn handboltadúk til þess að spila
á en sá dúkur var farinn að láta á
sjá og þurfti viðgerð. Var því kom-
inn tími á að kaupa nýtt gólf. Eftir
að hafa leitað fyrir sér tókst for-
svarsmönnum HSÍ að kaupa gólfið
sem var notað í úrslitunum á EM í
Serbíu í janúar síðastliðnum.
„Við vorum að leita víða í sumar
og duttum inn á þetta fína gólf.
Það fékkst á ágætis verði,“ sagði
Einar en hann vildi ekki gefa upp
nákvæmt kaupverð. Nýtt gólf kost-
ar 10-15 milljónir króna og gólfið
hefur því kostað skildinginn þó
notað sé.
„Það er skylda að spila alla leiki
á mótum EHF á gólfum sem eru
eingöngu með handboltalínum. Lit-
irnir skipta ekki í raun máli en það
verður að vera handboltagólf.“
Teipið er rándýrt
Það er talsvert verk að koma gólf-
inu inn í Laugardalshöll og það
tekur langan tíma að setja það upp.
Það er líka dýrt eða nálægt hálfri
milljón.
„Það fer hátt í það. Bara teipið
sem fer á dúkinn kostar um 120
þúsund. Þetta eru ansi margir
metrar sem fara undir gólfið og
í samskeytin. Við þurfum að nota
sérstakt tvöfalt teip sem er ekki
til hér á landi. Við pöntum það því
hjá fyrirtækinu sem býr til þessi
gólf. Svo kostar að fá vana menn
í að leggja þetta því það er ekki
sama hvernig þetta er gert. Starfs-
menn sambandsins hafa líka farið
í þetta og lækkað kostnaðinn,“
sagði Einar en svo þarf að þrífa,
gera við og annað tilfallandi.
„Við leggjum gólfið á daginn
fyrir leik svo dúkurinn leggist
almennilega að gólfinu. Svo teip-
um við. Þetta getur tekið sex til
átta klukkutíma hjá vönum mönn-
um. Það er svo um tveggja tíma
verkefni að ganga frá gólfinu eftir
leiki. Þetta er mikil vinna sem
menn almennt gera sér ekki grein
fyrir. Það hjálpa margir til sem
betur fer.“ henry@frettabladid.is
Það kostar hálfa milljón
að leggja gólfið á Höllina
Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, er nýbúið að kaupa nýtt handboltagólf
sem var frumsýnt á leik Íslands og Hvíta-Rússlands. Gólfið sjálft er mjög dýrt og
það kostar einnig skildinginn að leggja gólfið fyrir hvern einasta landsleik.
GULA SKRÍMSLIÐ Ísland lék sinn fyrsta leik á gula gólfinu gegn Hvít-Rússum. Það
reyndist ágætlega. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Eyjólfur Sverrisson,
þjálfari U21-landsliðs Íslands,
hefur valið 45 leikmenn í æfinga-
hóp sem mun koma saman í Kórn-
um um helgina. Leikmennirnir
45 koma alls frá 20 félögum víðs
vegar um landið.
Ísland komst ekki í úrslita-
keppni EM 2013 sem fer fram í
Ísrael næsta sumar. Undirbún-
ingur er því hafinn fyrir næstu
undankeppni en þó liggur ekki
fyrir hvort Eyjólfur verði áfram
landsliðsþjálfari. Samningur
hans rennur út um áramótin.
Þess má geta að FH á flesta
leikmenn í hópnum eða sex tals-
ins. Keflavík og Fylkir eiga fjóra
leikmenn hvort. Eingöngu leik-
menn sem spila með íslenskum
liðum eru í æfingahópnum að
þessu sinni. - esá
U21-landslið karla:
45 leikmenn í
æfingahópi
EYJÓLFUR Hefur stýrt U21-landsliðinu
síðan 2009 en hann stýrði því einnig frá
2003 til 2005. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SUND Anton Sveinn McKee mun
ekki keppa á EM í 25 m laug sem
fer fram í Frakklandi síðar í mán-
uðinum. Hann missti úr eina viku
í æfingum eftir að hafa runnið til
í fjallgöngu.
„Við vorum að labba niður
Botnsúlur í Hvalfirðinum þegar
ég rann á íshellu. Ég rann niður
einhverja metra og lenti á grjóti,“
sagði Anton sem fékk skekkju á
spjaldhrygginn við fallið.
„Það var lagað í sjúkraþjálfun
en þar sem ég missti úr æfingar í
eina viku taldi ég mig ekki tilbú-
inn fyrir EM, enda tekur tíma að
komast aftur í sitt besta form. Ég
dró mig því úr hópnum og verð
því heima og æfi í staðinn.“
Hann segist gera nokkuð af því
að labba á fjöll. „Við félagarnir í
bekknum höfum farið nokkrum
sinum – þetta er skemmtileg úti-
vist,“ segir hann en Anton Sveinn
keppti á sínum fyrstu Ólympíu-
leikum í sumar. Hann er átján ára
gamall. - esá
Anton Sveinn ekki á EM:
Rann á íshellu
í fjallgöngu
ANTON SVEINN Keppir ekki á EM í Frakk-
landi í næsta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG