Fréttablaðið - 22.12.2012, Page 10

Fréttablaðið - 22.12.2012, Page 10
22. desember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10 Þjófagengi stöðvað 1REYKJANESBÆR Lögreglan á Suður-nesjum hefur stöðvað stórvirkt þjófagengi. Tveir karlmenn á fertugs- og fimmtugsaldri voru handteknir vegna málsins og sátu í gæsluvarðhaldi frá því fyrr í mánuðinum en eru nú lausir úr haldi. Gerðar voru umfangsmiklar húsleitir og lagt hald á tæki, tól og farartæki. Mennirnir eru grunaðir um aðild að innbrotum og þjófnuðum, fjárdrætti, skjalafalsi og nytjastuldi. Engin óvissa á Norðurlandi 2AKUREYRI Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að aflétta óvissustigi vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi. Þetta er gert í samráði við Veðurstofu Ís- lands og lögreglu- stjóra á Norður- landi. Óvissustigi var lýst yfir 24. október. Nú hefur dregið úr skjálftavirkni þó hún sé enn yfir meðallagi. Áfram verður fylgst grannt með framvindunni. Góður gróði á Grenivík 3GRENIVÍK Útsvarstekjur á Grenivík verða um 140 milljónir í ár, sem er um 20% aukning frá síðasta ári. Sveitar- stjóri þakkar þessu íbúafjölgun, góðu atvinnustigi og háum tekjum sjómanna í samtali við Vikudag. Ýmsar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á árinu svo auknar tekjur nýtast vel. Með því að kaupa FRIÐARLJÓSIÐ styrkir þú hjálparstarf og um leið verndaðan vinnustað. FRIÐARLJÓSIN verða seld við eftirtalda kirkjugarða um jól og áramót. Þau fást einnig víða í verslunum. GUFUNESS- OG FOSSVOGSKIRKJUGARÐUR 23. des. kl. 13–17 24. des. kl. 1O–17 31. des. kl. 13–17 KIRKJUGARÐURINN VIÐ SUÐURGÖTU 23. des. kl. 13–16 24. des. kl. 1O–16 KIRKJUGARÐUR AKUREYRAR 24. des. kl. 1O–17 31. des. kl. 13–17 P IP A R \T B W A - 1 02 97 5 LÁTUM FRIÐARLJÓSIÐ LÝSA UPP AÐVENTUNA SAMKEPPNISMÁL Samkeppniseftir- litið hefur sektað Sorpu bs. um 45 milljónir króna fyrir brot á sam- keppnislögum. Eftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Sorpa hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að veita sveitar- félögunum sem eiga félagið hærri afslátt en öðrum stóðu til boða. Sorpa er félag í eigu sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu sem flokkar og meðhöndlar úrgang. Félagið braut að mati Sam- keppnis eftirlitsins lög með því að veita sveitarfélögunum sem eiga Sorpu hærri afslátt en öðrum sorp- hirðufyrirtækjum sem eiga við- skipti við Sorpu. Samkeppniseftirlitið telur brot Sorpu hafa haft skaðleg áhrif í að minnsta kosti tveimur tilvik- um. Eftirlitið gefur lítið fyrir rök Sorpu þess efnis að með því að veita eigendum sínum hærri afslátt væri félagið að greiða arð til eigendanna og bendir á að ekk- ert í lögum heimili slíka útfærslu á arðgreiðslum. Sorpa jafnaði ekki kjör við- skiptavina sinna á meðan á rann- sókn Samkeppniseftirlitsins stóð. Eftirlitið hefur því skipað stjórn- endum fyrirtækisins að endur- skoða gjaldskrá Sorpu svo við- skiptakjör verði samkvæmt gagnsærri gjaldskrá. - bj Sorpa veitir eigendunum óeðlilegan afslátt að mati Samkeppniseftirlitsins: Sorpa sektuð um 45 milljónir SORP Sopa braut lög með því að veita eigendum sínum hærri afslátt en öðrum sem áttu meiri viðskipti við félagið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI BANDARÍKIN „Það eina sem getur stöðvað illmenni með byssu er góð- menni með byssu,“ segir Wayne LaPierre, framkvæmdastjóri Landssamtaka bandarískra byssu- eigenda (NRA). Hann skorar á Bandaríkjaþing að útvega án tafar fé til þess að hægt verði að ráða vopnaða verði í hvern einasta skóla í Bandaríkjun- um. Þetta vonast hann til að verði orðið að veruleika strax eftir ára- mótin, þegar börnin koma aftur í skólana eftir jólafríið. „Er einhver sem efast um að næsti Adam Lanza sé nú þegar byrjaður að undirbúa árás á næsta skóla?“ spyr LaPierre, og segir að vopnaðir verðir séu við flugvelli, banka, skrifstofubyggingar, dóm- hús og jafnvel íþróttavelli. „En þegar kemur að því mikil- vægasta, sem er að verja börnin okkar, þá leggja stjórnmálamenn og fjölmiðlar áherslu á að skólarn- ir séu byssulausir, og segja þar með öllum brjáluðum morðingj- um í Bandaríkjunum að öruggasti staðurinn til að valda sem mest- um óskunda og tjóni séu skólarnir okkar.“ Þetta eru viðbrögð samtakanna við fjöldamorðunum, sem hinn tví- tugi Adam Lanza framdi í barna- skóla í Newtown á föstudag í síð- ustu viku. Þar myrti hann tuttugu börn ásamt kennurum, skólastjóra og sálfræðingi skólans. Morðin hafa vakið hörð viðbrögð í Bandaríkjunum og sterkari kröf- ur en oft áður um að snúið verði af þeirri braut, að sem flestir geti verið með skotvopn heima hjá sér. Barack Obama forseti sagðist í gær taka mikið mark á þeim kröf- um. Hann ítrekaði að hann væri staðráðinn í að gera allt sem í sínu valdi stæði til að „vernda börnin okkar“ með því að herða reglur um skotvopnaeign. Hann hvatti jafn- framt almenning í Bandaríkjunum til að láta í sér heyra: „Ef okkur á að takast þetta, þá þurfa mæður og feður, synir og dætur, lögreglu- þjónar og ábyrgir byssueigendur að leggja sig fram, bindast sam- tökum, láta í sér heyra, hringja í þingmenn sína eins oft og til þarf, standa upp og segja fyrir hönd barnanna okkar: Nú er nóg komið.“ gudsteinn@frettabladid.is Vilja vopnaða verði í hvern einasta skóla Samtök bandarískra byssueigenda segja fleiri fjöldamorðingja strax farna að undir- búa árás á næsta skóla. Þau skora á þingið að útvega fé til þess að skólarnir geti varist. Obama forseti er hins vegar staðráðinn í að herða reglur um byssueign. VOPNIN SKOÐUÐ Í Bandaríkjunum er byssueign almennings útbreiddari en í flestum löndum heims. NORDICPHOTOS/AFP „Í Landssamtökum bandarískra rifflaeigenda eru fjórar milljónir mæðra og feðra, sona og dætra,“ segir í yfirlýsingu sem NRA-samtökin sendu frá sér fyrr í vikunni. Forsvarsmenn samtakanna stæra sig af því að síðan fjöldamorðin voru framin í barnaskóla í Newtown á föstudag í síðustu viku hafi átta þúsund nýir félagar bæst í hópinn á degi hverjum. Samtökin voru stofnuð árið 1871, upphaflega með það markmið að útvega fólki kennslu og þjálfun í byssunotkun. Fljótlega tóku þau að berjast á vettvangi stjórnmála fyrir réttindum byssueigenda og eru nú ein öflugustu hagsmunavörslusamtök Bandaríkjanna. Árstekjur þeirra eru meira en 200 milljónir dala og þau njóta stuðnings margra fjársterkra einstaklinga og fyrirtækja. Peningavöld sín nota sam- tökin óspart til að hafa áhrif á stjórnmálamenn og styðjast í baráttu sinni einkum við annan viðauka bandarísku stjórnarskrárinnar, sem túlkaður er þannig að hann banni hreinlega þinginu að leggja hömlur á rétt einstak- linga til að eiga og bera skotvopn. Samtök bandarískra byssueigenda LANDIÐ 1 2 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.