Fréttablaðið - 22.12.2012, Blaðsíða 34
22. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34
Loftslagsmál hafa verið í deiglunni síðustu ár og það er ekki bara vegna umhverfissjónarmiða heldur einnig vegna sívax-andi orkuþarfar mann-
kyns og tengsla hennar við stöðuna
á sviði alþjóðastjórnmála. Banda-
ríkjamenn höfðu til dæmis lengi
haft áhyggjur af því hve þeir voru
háðir orku frá útlöndum, sem setti
meðal annars mark sitt á samskipti
þeirra við olíuríkin í Mið-Austur-
löndum, og Rússland hefur um ára-
bil haft tangarhald á ríkjum Mið-
og Austur-Evrópu vegna yfirburða
sinna í gasframleiðslu og -sölu.
Hins vegar kom ný tækni fram á
sjónarsviðið upp úr aldamótum sem
hefur gerbylt jarðgasvinnslu, sér-
staklega í Bandaríkjunum, en önnur
ríki hyggjast fylgja í þeirra fótspor.
Tæknibylting ruddi leiðina
Nýja tæknin, sem komst ekki á fullt
skrið fyrr en um 2008, felst í því að
borað er niður í gasrík leirsteins-
lög, sem eru á um eins til tveggja
og hálfs kílómetra dýpi, og sveigja
svo til hliðar og bora lárétt í gegn-
um lagið allt að þrjá kílómetra í
viðbót. Þar eru sprengdar fíngerð-
ar sprungur út í steininn og vökva-
blöndu dælt ofan í holuna með mikl-
um þrýstingi til að sprengja enn
lengra út í bergið. Það losar um
metangas sem hefur verið bundið í
jarðlög um milljónir ára og streym-
ir svo upp úr borholunni þar sem
það er unnið í vökvaform. Þessi
aðferð hefur reynst vel til fram-
leiðslu, er ódýr valkostur og hefur
örvað orkuframleiðslu víða. Fram-
leiðendur hampa sérstaklega þeirri
staðreynd að bruni jarðgass til
orkuframleiðslu sé mun umhverf-
isvænni en kola.
Afleiðingin er sú að samkvæmt
nýjustu spám Orkustofnunar í
Bandaríkjunum mun gasfram-
leiðsla þar í landi aukast um nær
helming fram til 2040.
Ýmis álitamál um umhverfisþætti
Eins og áður sagði hafa sumir tekið
auknu vægi gassins í orkufram-
leiðslu heimsins fagnandi, enda
gefur jarðgasbruni frá sér allt að
helmingi minni koltvísýring en
kolabruni sé miðað við framleiðslu
á ákveðnu magni af rafmagni.
Nýja tæknin er þó ekki gallalaus
og fráleitt óumdeild. Til dæmis
hefur mikill styr staðið um rann-
sóknarboranir í Bretlandi síðustu
vikur. Óæskilegar hliðar verkanir
eru meðal annars auknar jarð-
hræringar, þörf á gríðarlegu magni
vatns, enda þarf að dæla milljónum
lítra niður í hverja holu, og ekki
síst sú áhætta sem tekin er með því
að blanda ýmiss konar kemískum
efnum saman við vatnið og sandinn
sem eru send niður í brunninn. Þar
á meðal eru tærandi efni og efni
sem er vitað til þess að eru krabba-
meinsvaldandi.
Loks hafa sumir bent á að þegar
horft er á vinnslu leirsteinsgassins
heildrænt skilji hún eftir sig kolefn-
isfótspor sem sé litlu minna en kol-
anna, sérstaklega vegna vöruflutn-
inga á vatninu til niðurdælingar
og eins flutninga á gasinu frá upp-
sprettunum.
Áhrif á alþjóðasviðið
Ein mestu áhrif leirsteinsgass-
ins verða ef til vill á sviði alþjóða-
stjórnmála. Bandaríkjunum hefur
lengi verið legið á hálsi fyrir að
einblína um of á Mið-Austurlönd í
utanríkisstefnu sinni vegna orku-
hagsmuna; aðgengis að olíu og gasi.
Öðlist Bandaríkin frekari sjálf-
bærni í orkumálum, er ljóst að vægi
Persaflóaríkjanna á alþjóðasviðinu
gæti dvínað nokkuð.
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti sagði sjálfur í viðtali við tíma-
ritið Time að ný tækni við vinnslu
á jarðgasi og olíu hafi styrkt stöðu
Orkubylting eða loftkastalar?
Mikil umræða hefur verið í orkugeiranum síðustu misseri um vinnslu svokallaðs leirsteinsgass, það er jarðgass sem
er fengið úr jarðlögum á miklu dýpi með nýstárlegum og umdeildum aðferðum. Tilkoma þess hefur þegar breytt
landslaginu í orkuiðnaðinum og gæti auk þess haft veruleg áhrif á alþjóðastjórnmál á komandi árum og áratugum.
landsins. Minna sé nú flutt inn af
olíu og útlit sé fyrir að sú þróun
haldi áfram. „Og það held ég að gefi
okkur aukið frelsi til að tala fyrir
þeim Mið-Austurlöndum sem við
viljum sjá og þeim heimi sem við
viljum sjá.“
Annað stórt ríki mun þó vænt-
anlega líða fyrir aukna gasfram-
leiðslu Bandaríkjanna og annarra.
Rússland getur að miklu leyti þakk-
að uppgang sinn síðustu ár, sérstak-
lega fyrir hrun, því tangarhaldi
sem það hefur haft á Evrópuþjóðum
vegna sölu á gasi. Það mun þó óum-
flýjanlega breytast með tilkomu
annarra stórra söluaðila og líka ef
Evrópulöndin munu hefja gasnám
með sprunguaðferðinni.
Kína hefur verið rísandi heims-
veldi síðasta áratuginn en er um
margt háð öðrum löndum um orku-
gjafa þar sem það hefur flutt inn
ómælt magn af kolum og olíu. Kín-
verjar líta því til þess með glýju í
augum að geta nýtt sér hið gríðar-
lega magn leirsteinsgass sem ætlað
er að liggi þar í jörðu.
Kínverjar hafa lagt í miklar
fjárfestingar víða um heim til að
tileinka sér þá tækni sem þarf til
að nýta sér þá auðlind. Óvíst er
þó hvort gasvinnsla með sprungu-
aðferðinni muni nýtast þeim eins
vel og Bandaríkjamönnum því að
leirsteinslögin sem um ræðir eru
gljúpari en þau í Bandaríkjunum
og springa því síður, auk þess sem
aðgangur að vatni, sem er svo mik-
ilvægur þessu ferli, er miklum mun
minni í Kína en víðast hvar annars
staðar.
Ekkert í hendi
Málið er því margslungið og ekk-
ert í hendi þegar leirsteinsgas er
annars vegar. Í fyrsta lagi er ekki
komin löng reynsla á sprungu-
tæknina og hún mætir mikilli mót-
spyrnu hjá umhverfisverndarsinn-
um.
Fyrstu merki breytinga eru þó
auðsjáanleg, þó ekki sé nema í orð-
ræðunni um orkugjafa framtíðar-
innar. Hvort það verði til meirihátt-
ar sviptinga á sviði umhverfismála
eða stjórnmála kemur í ljós með tíð
og tíma.
Sprunguaðferðin– Gæti breytt orkumörkuðum heimsins
Ekkert íslenskt hugtak er um hydrolic fracturing, eða „fracking“, á ensku. Það mætti útleggja sem „sprunguaðferðina“ og í því felst
tvíþætt ferli til að vinna jarðgas úr setlögum á miklu dýpi. Annars vegar er borað niður í lagið og hins vegar er vatni, blönduðu
sandi og ýmsum efnum, dælt niður í holuna með miklum þrýstingi til að sprengja út setlagið og leysa þannig um jarðgas.
B O R F E R L I Ð
Borinn: Tíminn sem það tekur
frá því að borun hefst þangað
til komið er á endapunkt er á
bilinu þrjár til sex vikur. (Met-
tíminn á 4.00 metra holu er
rúmir sjö dagar.)
Vatnsgeng jarðlög: Vatnsgeng
jarðlög þar sem vatn rennur
nokkuð greitt um eru alla jafna
á um 100 metra dýpi.
Vatnsverndarráðstafanir:
Þreföld fóðring er um borholuna
til að koma í veg fyrir grunn-
vatnsmengun.
Brunngöngin:
11,4 cm
Heildarvídd:
24,5 cm
Jarðsteinslag:
Bergmyndanirnar eru um 1.000 til
2.500 metra undir yfi rborði jarðar.
Snúningurinn: Bornum er
snúið í lárétta stöðu um 150
metrum yfi r leirsteinslaginu.
Lárétti spottinn verður allt að 3.00
metra langur.
Aff alslón
Þar er leðja úr bor-
göngunum geymd.
Borgöngin: Steypufóðruð
stállögn.
Steypa
Leirsteinn sem
inniheldur
jarðgas
Götun: (jet perforation)
Göt eru slegin út í gegnum
lögnina og steypuna og inn í
bergið með sprengihleðslum.
Gatabyssan
Borun lokið
Borgöngin hreins-
uð og borbúnaður-
inn er fj arlægður.
S P R U N G U M Y N D U N A R F E R L I Ð
1 Sprungumyndandi vökvi á háum þrýstingi: Blöndu af vatni, sandi og aukaefnum er dælt niður í holuna með
gríðarháum þrýstingi, rífl ega 100 börum, eða um 1.500 psi.
2 Pumpað áfram: Vökvaþrýstingur-inn er aukinn og sprengir út í
bergið, um 200 til 300 metra.
Sand-
trukkur
Blandari
Dælubíll
Vatnstankbíll
3 Dæling Jafnan þarf um 20.000
rúmmetra af vatni,
að jafngildi um 500
tankbíla, auk 1.800
tonnum af sandi
og um 100 tonnum
af aukaefnum sem
stuðla að viðloðun.
Sprungu-
vökvinn:
95% vatn
4,5% sandur
0,5% aukaefni
4 Útrennsli: Vatninu er dælt út úr holunni. Því er annaðhvort
komið fyrir eða það endurnotað.
5 Gasfl æði: Sandurinn verður
eft ir og heldur sprungunum
opnum til að hleypa gasinu upp.
Sprungumyndunarferlið tekur
um tíu daga.
6 Framleiðsla: Holutoppurinn er áfram á sínum stað og lögn liggur
út að geymslutönkum. Ein borhola
getur skilað þúsundum rúmmetra af
jarðgasi á dag í 20 til 40 ár.
Holutoppur
Gaslögn að
geymslu-
tönkum
Heimildir: Ground Water Protection Council, Exxon Mobil, Austin Exploration Limited © GRAPHIC NEWS
Þrátt fyrir að ætla mætti
að flestir tækju nýjum
orkuuppsprettum fagnandi
eru enn uppi efasemdir
um ágæti leirsteinsgassins.
Til að mynda hertu bresk
stjórnvöld nýlega skilyrði
fyrir áframhaldandi til-
raunaborunum. Bann var
lagt við borunum fyrir
einu og hálfu ári eftir að
vart varð skjálftavirkni í
fyrri borunum og því var
ekki aflétt fyrr en í síðustu
viku. Í samtali við BBC
varaði Ed Davey orkumála-
ráðherra við of miklum
ákafa, þar sem útlit væri
fyrir að verkefnið gæti tekið langan tíma. „En það er fyrir öllu að þessi þróun
komi ekki niðri á dreifðum byggðum eða umhverfinu.“
Hinum megin við Ermarsund stöðvaði Francois Hollande Frakklands-
forseti allar rannsóknir í þessum efnum eftir gríðarlegan þrýsting frá
umhverfisverndar sinnum. Þá hafa þýsk stjórnvöld sömuleiðis neitað að gefa
leyfi fyrir slíkum borunum.
Hér á Íslandi eru ekki aðstæður til að vinna gas úr jörðu með þessum hætti
þar sem setlögin eru annars eðlis og geyma ekki í sér gas með þeim hætti sem
hér er fjallað um.
ALLUR ER VARINN GÓÐUR
VILJA EKKI SPRUNGUVIRKJANIR Andstaða er
meðal almennings í Bretlandi við fyrirhuguðum
borunum eftir leirsteinsgasi. Þó var banni á
tilraunaborunum nýlega aflétt eftir eitt og hálft ár.
NORDICPHOTO/AFP