Fréttablaðið - 22.12.2012, Blaðsíða 106
22. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 82
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari er
í stuttu jólafríi á Íslandi. Frá því í
ágúst hefur hún gegnt tímabundinni
stöðu konsertmeistara við Konung-
legu dönsku óperuna í Kaupmanna-
höfn og verður þar fram í febrúar.
Hún segir það í raun hafa verið röð
tilviljana sem teygja sig rúmlega
tuttugu ár aftur í tímann.
„Það er svolítið skondið hvernig
lífið fer með mann í hringi,“ segir
hún. „Árið 1988 tók ég þátt í alþjóð-
legri fiðlukeppni í Óðinsvéum sem
kennd er við Carl Nielsen tónskáld
og var svo heppin að ná þar fimmta
sæti. Þar varð á vegi mínum ungur
danskur fiðluleikari, sem þá var
að læra í Juilliard-tónlistarskólan-
um. Hann hitti ég ekki aftur fyrr
en rúmum tuttugu árum síðar,
árið 2010 nánar tiltekið, þegar ég
var að spila Sibelius með Bern-
harði Wilkinson og Sinfóníuhljóm-
sveit Færeyja. Það er hefð fyrir því
í Konunglegu dönsku óperunni að
tónlistarmenn fari og leggi Sinfóní-
unni í Færeyjum lið þegar hún er
að spila. Þarna hittumst við aftur
og það urðu fagnaðarfundir.“
Í kjölfar tónleikanna í Færeyjum
vildi fiðluleikarinn danski fara til
Grænlands og bað Sigrúnu að leysa
sig af í einu verkefni með Konung-
legu dönsku óperunni, sem hún og
gerði.
„Það gekk mjög vel og var frá-
bærlega skemmtilegt en síðan fór
ég bara heim og hugsaði ekki meira
um það. Þá gerist það að Konung-
lega óperan býður mér árssamning
sem konsertmeistara árið 2011. Mér
fannst það auðvitað ótrúlega spenn-
andi og freistandi tilhugsun en það
hittist hins vegar á að á sama tíma
var Sinfóníuhljómsveit Íslands að
flytja í Hörpu. Mér fannst því ekki
hægt að yfirgefa hljómsveitina á
þessum tímamótum og afþakk-
aði boðið en með miklum trega
því svona tilboð koma ekki oft á
ævinni.“
Sigrún segist ekki hafa átt von á
að heyra í Konunglegu dönsku óper-
unni aftur. „En þá fæ ég óvænt bréf
þar sem mér var boðin staða kons-
ertmeistara í hálft ár á seinni hluta
þessa árs og fram í febrúar. Það var
of gott tilboð til að hafna. Ég fór út
í ágúst síðastliðinn, fer aftur út á
nýársdag og tek þátt í uppfærslu á
Carmen en verð svo alkomin heim
um miðjan febrúar.“
Sigrún segir dvölina í Kaup-
mannahöfn hafa verið endurnær-
andi og hleypt í hana nýju lífi sem
listamanni. „Þetta er umfangsmeira
hjá Konunglegu óperunni, eins og
gefur að skilja, enda spila þeir líka í
ballettsýningum. Þeir eru með fjóra
konsertmeistara en við tvo; það er
mikil rótering á milli þeirra og ég
hef unnið mjög náið með þeim sem
er gulls ígildi.“
Vistaskiptin eru ekki síst mikil-
væg fyrir samanburðinn.
„Ég kom heim í október og nóvem-
ber og tók viku með Sinfóníuhljóm-
sveitinni og ég heyrði mjög greini-
lega muninn: það er margt gott og
annað síðra hjá báðum sveitum, það
var alveg greinilegt. En ég fann líka
hvað mér fannst gott að koma aftur
og spila með Sinfóníuhljómsveit-
inni, ég var farin að sakna hennar
og það var gott að vera minnt á það.
Ég myndi tvímælalaust endurtaka
leikinn ef ég hefði kost á því. Þetta
er brjáæðislega gott tækifæri.“
En hvað um tónlistarhúsin, hvern-
ig stenst Harpa samanburð við
Dönsku óperuna, sem tekin var í
notkun árið 2005? „Ég verð að segja
að Harpa er margfalt betri. Danska
óperan er mjög gott hús en það eru
ákveðnir hönnunargallar og Harpa
býður upp á svo miklu fleiri mögu-
leika í Eldborgarsalnum og betri
hljómburð.“
bergsteinn@frettabladid.is
Brjálæðislega gott tækifæri
Eggert Pétursson myndlistar-
maður áritar bókina Málverk í
Bókabúð Máls og menningar milli
klukkan 16 og 17.
Málverk hefur að geyma öll
helstu verk Eggerts undanfarna
tvo áratugi og hefur fengið frá-
bærar viðtökur gagnrýnenda. Til
dæmis gaf gagnrýnandi Frétta-
blaðsins fimm stjörnur af fimm
mögulegum.
Eggert hefur dvalist erlendis að
undanförnu en kemur heim yfir
hátíðarnar og áritar í bókabúðinni.
Sýning á verkum Eggerts í i8
galleríi hefur staðið frá 1. nóvem-
ber en lýkur nú á Þorláksmessu.
Eggert áritar í dag
Yfi rlitssýningu í i8 lýkur á Þorláksmessu.
EGGERT PÉTURSSON Hefur dvalist
erlendis en er á landinu um jólin og
áritar í Bókabúð Máls og menningar á
Laugavegi í dag.
Sigrún Eðvaldsdóttir fi ðluleikari hefur undanfarna
mánuði gegnt tímabundinni stöðu konsertmeistara
við Konunglegu dönsku óperuna. Hún segir þetta
ómetanlegt tækifæri sem hafi endurnýjað hana sem
listamann. Harpa er að hennar mati þó mun betra
mannvirki en Óperan í Kaupmannahöfn.
En ég fann líka
hvað mér fannst gott að
koma aftur og spila með
Sinfóníuhljómsveitinni,
ég var farin að sakna
hennar og það var gott
að vera minnt á það.
SIGRÚN EÐVALDSDÓTTIR Var boðin staða konsertmeistara við Konunglegu dönsku óperuna til eins árs árið 2011 en afþakkaði, þar sem Sinfóníuhljómsveit Íslands var að flytja í Hörpu um sömu mundir. Hún hélt
að hún hefði misst af gullnu tækifæri en fékk síðar annað tilboð sem hún gat ekki hafnað. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mótettukór Hallgrímskirkju
Alþjóðlega barokksveitin í Den Haag
Stjórnandi: Hörður Áskelsson
29. des. kl. 17: kantötur I-IV
30. des. kl. 17: kantötur I,II,V,VIELDBORG, HÖRPU
U
PP
SE
LT
!
Í
SV
Æ
Ð
I
2
O
G
3
á
l
au
.
****
****
****
****
****
****
***
****
****
****