Fréttablaðið - 22.12.2012, Blaðsíða 82
FÓLK|
Ellefti jólasveinninn, Gáttaþefur, kom til byggða í nótt og skildi eftir
góðgæti í skóm flestra barna. Heimsóknir Gáttaþefs og bræðra hans
hófust um árið 1930 en talið er að þessi siður hafi borist hingað til
lands með íslenskum sjómönnum sem sigldu um Norðursjó. Í Hol-
landi og nágrenni tíðkaðist á þeim tíma sá siður að setja skóinn
út í glugga aðfaranótt 6. desember, sem er messudagur heilags
Nikulásar, verndara barna og sæfara í kaþólskum sið.
Þar sem heimsóknir jólasveinanna þróuðust innan afmarkaðra
hópa hérlendis var töluvert ósamræmi milli fjölskyldna er sneri að
komudegi þeirra og hversu mikið var gefið í skóinn í hvert skiptið.
Jólasveinarnir heimsóttu tiltölulega fá heimili fyrst um sinn en um
miðja síðustu öld urðu heimsóknir þeirra algengari. Fyrstu árin
var misjafnt eftir heimilum hvaða dag skórinn var settur fyrst út í
glugga. Sums staðar tíðkaðist meira að segja að byrja 1. desember.
Jólasveinarnir voru svo misgjafmildir og af einhverjum ástæðum
tengdist það oftast efnahagi foreldra barnanna. Í lok 7. áratugar síð-
ustu aldar var ástandið orðið svo slæmt að tilefni þótti til að leita
til þjóðháttasafns Þjóðminjasafnsins um hvernig mætti bregðast
við slíku ósamræmi. Í kjölfarið var rekinn mikill áróður í fjöl miðlum
og leikskólum þess efnis að fyrst jólasveinarnir væru þrettán kæmu
þeir til byggða einn í einu, þrettán dögum fyrir jól. Framvegis
myndu þeir gefa hóflegar gjafir og gæta betur samræmis í gjöfum til
barna. Það hefur að mestu gengið eftir síðan þá þótt stundum eigi
það vissulega til að gleymast.
Heimildir: Saga daganna og Saga jólanna eftir Árna Björnsson.
14 | FÓLK | JÓL
Undanfarin ár hafa börn úr leikskólum höfuðborgar-svæðisins skreytt strætisvagna að utan með fallegum jólateikningum. Hugmyndin fæddist fyrir nokkrum árum,
segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætós, og á sér
danska fyrirmynd. „Þetta eru þriðju jólin sem við fáum börn
á leikskólaaldri til að skreyta strætisvagna okkar. Hugmyndin
fæddist í umræðu hér innanhúss fyrir nokkrum árum síðan
en á sér danska fyrirmynd. Þar í landi fá leikskólar stundum
strætisvagna í heimsókn sem börnin mega skreyta. Börn hér
á landi elska strætisvagnana og það er ein skemmtilegasta og
eftirminnilegasta afþreying leikskólabarna að taka lítinn rúnt í
strætisvagni.“
ALLAR MYNDIR Á BORÐA
Börnum á leikskólum höfuðborgarsvæðisins var boðið að senda
inn jólamyndir og var tekið vel í bón fyrirtækisins að sögn
Reynis. Um 1.100 myndir bárust frá 4-6 ára börnum úr rúmlega
40 leikskólum. „Við skönnuðum allar myndirnar inn og létum
útbúa borða sem límdur er utan um hvern vagn. Síðan létum
við útbúa plakat þar sem allar myndirnar mynda bókstafinn „S“.
Plakötin sendum við síðan á alla leikskóla sem tóku þátt. Segja
má að þetta sé samfélagslegt framlag okkar til þessa hóps.“
MYNDIR Á VEFNUM
Strætó dró síðan einn leikskóla úr hverju byggðarlagi á höfuð-
borgarsvæðinu úr pottinum og hafa þeir skólar fengið heim-
sókn í desember. „Þá mætir einn strætisvagn í heimsókn og
jólasveinn fylgir með. Þar hafa börnin fengið að skreyta vagninn
að innan með ýmsu sem þau hafa föndrað sjálf í leikskólanum.“
Skrautlegu jólavagnarnir munu aka um höfuðborgarsvæðið fram
til 6. janúar en þá verðu borðunum skipt út fyrir hefðbundna
auglýsingaborða að sögn Reynis. „Viðbrögðin við þessu verkefni
okkar hafa verið góð, sérstaklega hjá börnunum sjálfum og leik-
skólunum sem fá vagnana í heimsókn. Inn sendum teikningum
hefur fjölgað milli ára og ég hvet alla foreldra til að skoða mynd-
irnar inn á vefnum okkar, www.straeto.is/jolamyndir.“
SKRAUTLEGIR STRÆTISVAGNAR
JÓLASTRÆTÓ Strætisvagnar höfuðborgarsvæðisins eru óvenju fallegir þessa dagana, en fallegar jólamyndir leikskólabarna prýða
nú vagnana. Myndirnar má einnig skoða á vef Strætós.
STRÆTÓJÓL
Reynir Jónsson,
framkvæmdastjóri
Strætós.
MYND/STEFÁN
SKÓR Í GLUGGA
REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR
10” ANDROID 4.0
SPJALDTÖLVUR
Vegna mikilla vinsælda erum við að fá
aukasendingu af bæði Sharper Image og
United. Lenda í byrjun vikunnar. Hægt
að tryggja sér eintak úr sendingunni í
verslunum okkar eða á tl.is.
Cortex A8 örgjörvi, 5 punkta snertiskjár og
sterkbyggð umgjörð. Taska með standi fylgir auk
4GB microSD korti og heyrnartólum. Android 4.0
Sharper Image M18A
United TAB 1012
Cortex A9 örgjörvi. Nett og
létt með 5 punkta snertiskjá.
19.990
19.990