Fréttablaðið - 22.12.2012, Blaðsíða 22
22. desember 2012 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 22
Allir stjórnmálamenn
í öllum flokkum ásamt
öllum svokölluðum álits-
gjöfum hafa verið og eru
sammála um það ein-
asta eitt, að til þess að ná
árangri í þýðingarmestu
viðfangsefnum íslensku
þjóðarinnar þurfi að beita
meiri aga í stjórn efna-
hagsmála. Þeir sem vilja
notast áfram við íslensku
krónuna eru eindregið
þeirrar skoðunar. Þeir sem vilja
taka upp evruna segja að til þess
að það sé hægt þurfi að auka aga í
meðferð efnahagsmála. Þeir sem
vilja taka einhliða upp banda-
rískan dollar, kanadískan dollar,
norska eða danska krónu – nú eða
japanskt jen – tala líka um nauð-
syn meiri aga. Meiri agi í efna-
hagsmálum. Um það eru allir
sammála.
Hins vegar vill það gleymast
í þessari umræðu að agaleys-
ið í meðferð efnahagsmála er
ekki bundið við stjórnmálamenn
eina. Spurningin er ekki einvörð-
ungu um hvort stjórnmálamenn
umgangast fjárlagagerð eða við-
fangsefni ríkisrekstrar af ábyrgð
eða ábyrgðarleysi. Agabeiting
pólitíkusa við meðferð almanna-
fjár mun engum árangri skila ef
agaleysi ríkir um aðra þætti er
lúta að stjórn efnahagsmála, sem
þeir hafa engin tök á.
Á mestu uppgangsárum í
íslensku efnahagslífi – þegar
ríkissjóður var orðinn skuldlaus
– voru sextán þúsund
íslensk heimili komin á
vanskilaskrá. Sextán þús-
und heimilanna lifðu sem
sé langt um efni fram í
miðju „góðærinu“. Það er
ekki agi í efnahagsmál-
um.
Kauphækkanir úr takti
Í kjarasamningum eftir
hrun var samið um kaup-
hækkanir úr takti við
samtímaverðmætasköpun í sam-
félaginu en í ljósi vona um fram-
tíðarvöxt. Það er ekki agi í efna-
hagsmálum.
Í anda neytendaverndar á Evr-
ópska efnahagssvæðinu var leidd
í lög tilskipun um tryggingasjóð
innistæðueigenda þar sem bank-
ar voru skikkaðir til þess að stofna
sjóð til verndunar innistæðna
sparifjáreigenda, sem þeim hafði
verið trúað fyrir. Bankarnir hirtu
ekki um að fullnægja neytenda-
verndarskilmálunum. Það er ekki
agi í efnahagsmálum.
Efnaðir einstaklingar stofnsettu
gervihlutafélög og skúffufyrir-
tæki sem höfðu engan rekstur
með höndum en það eina viðfangs-
efni að dylja slóð peninga í skatta-
skjól erlendis á sama tíma og þeir
sömu efnuðu einstaklingar létu
lífeyrisþega og skattborgara létta
af sér skuldum sem nema samtals
fleiri hundruðum milljarða króna.
Það er ekki agi í efnahagsmálum.
Þetta eru aðeins nokkur dæmi
af fjölmörgum um agaleysi
íslensku þjóðarinnar í efnahags-
málum – agaleysi sem kom þessari
þjóð í koll og mun áfram gera ef
ekki verður á breyting. Það dugir
skammt að stjórnmálamenn beiti
meiri aga í sínum viðfangsefnum –
rekstri ríkisins – ef agaleysi ríkir
áfram í öðrum þáttum í meðferð
efnahagsmála, sem stjórnmála-
mennirnir hafa lítil eða engin
áhrif á.
Stjórnmálamenn ráða ekki við
það ef fjöldi fólks vill endilega lifa
langt um efni fram. Stjórnmála-
menn ráða ekki við það ef aðilar
vinnumarkaðarins vilja semja
um launahækkanir sem ekki er
innistæða fyrir. Stjórnmálamenn
ráða ekki heldur við það hvernig
íslenskir fjárglæframenn telja sér
sæmandi að haga sér gagnvart
samfélaginu.
Spara fyrst og kaupa svo
Oft er litið til Þjóðverja eða Norð-
manna sem fyrirmyndar um sam-
félög sem ástunda skynsamlega
og agaða stjórn efnahagsmála.
Þeir sem þekkja þar til vita að sú
skynsemi nær ekki aðeins til þess
hvernig pólitíkusar og stjórnvöld
vilja haga sér heldur ekki síður
til aga í efnahagsákvörðunum
heimila og aðila vinnumarkað-
ar. Norsk heimili spara fyrst og
kaupa svo. Kaupa ekki fyrst og
geta svo ekki borgað. Enda búa
þau fæst jafn vel að margvísleg-
um „hlutum“ og kollegar þeirra
hér á landi. Munurinn er bara sá
að Norðmenn eiga það sem þeir
eiga í miklu meira mæli en tíðk-
ast hér.
Agi í meðferð efnahagsmála
er okkur brýn nauðsyn – hver
svo sem gjaldmiðillinn er. Sá agi
næst hins vegar aldrei ef hann á
einungis að ná til viðfangsefnis
stjórnmálamanna. Þjóðin sjálf
– heimilin, fyrirtækin og aðil-
ar vinnumarkaðarins – ræður
meiru um þróun efnahagsmála en
stjórnmálamennirnir. Ef nást á
meiri agi í meðferð efnahagsmála
á Íslandi verður sá agi að ná líka
til heimilanna, fyrirtækjanna og
aðila vinnumarkaðarins. Þetta
þora stjórnmálamenn sjaldnast
að segja. Kjósendur vilja nefni-
lega helst geta kennt öðrum um
allt sem miður fer – stjórnmála-
mönnunum helst af öllu. En svona
er þetta nú samt. Enginn agi mun
nást í íslenskum efnahagsmálum
nema þjóðin kjósi sér sjálf slíkt
hlutskipti – og fylgi því fast eftir.
Meiri aga í efnahagsmálum
Það er vandi að bera
saman rekstur, kostnað
og tekjur fyrirtækja og þá
sérstaklega þegar fyrir-
tækin eru ólík. Niðurstað-
an fer því alveg eftir því
hvað höfundurinn velur
að bera saman. Örn Bárð-
ur hefur í tveimur grein-
um borið saman tekjur
Nesklúbbsins og ríkis-
kirkjunnar. Þar er saman
ólíku að jafna og er fallið
til að valda misskilningi
og koma á misklíð.
Þegar Íslendingur fæðist er
hann skráður í trúfélag eða utan
trúfélags að honum forspurð-
um. Þegar hann vex úr grasi ber
honum að borga skatt, sóknar-
gjald, til trúfélags og þá sam-
kvæmt skráningu Hagstofunn-
ar. Þeir sem ekki eru í trúfélagi
borga sama gjald. Ríkisvaldið
innheimtir gjaldið og greiðir til
trúarfélaga og hirðir gjaldið til
sín af þeim sem ekki eru í trú-
félagi.
Varðandi golfklúbba þá eru
þeir eins og önnur íþróttafélög,
frjáls félagasamtök. Hver og einn
ákveður hvort hann vilji ganga í
íþróttafélag og það er engin ríkis-
stofnun sem sér um að innheimta
fyrir þau ársgjaldið. Ef trúfélög
og þá sérstaklega Þjóðkirkjan vill
hafa golfhreyfinguna að leiðar-
ljósi þá ætti hún að segja skilið
við ríkisvaldið, hætta að láta Hag-
stofuna skrá félaga og innheimta
sjálf félagagjaldið.
600 á biðlista
Nesklúbburinn er fimmti fjöl-
mennasti golfklúbbur landsins. Í
honum eru 650 félagar en það eru
600 manns á biðlista eftir að kom-
ast í klúbbinn. Vegna tregðu bæj-
aryfirvalda á Seltjarnarnesi þá
hafa þau ekki leyft stækkun vall-
arins þrátt fyrir nægt land, land
sem enginn notar. Þess má geta
að varpfuglar hafa flutt
sig yfir á Suður nesið til
að verpa í kringum golf-
brautir klúbbsins. Á biðl-
istanum í Nesklúbbinn eru mörg
börn og flest þeirra búa á Sel-
tjarnarnesi. Það er samfélagslegt
úrlausnarefni yfirvalda að leyfa
stækkun vallarins til að Nes-
klúbburinn geti tekið við fleiri
börnum og félögum. Öll börn eiga
að fá að njóta útvistar og hreyf-
ingar.
Rekstur golfhreyfingar innar
vekur athygli. Íþróttin er tiltölu-
lega ung og hefur vaxið mjög
hratt. Golfhreyfingin í heild
sinni ætti að fá viðurkenningu
fyrir einstakan árangur og góðan
rekstur á erfiðleikatímum. Golf-
vellir hafa verið byggðir upp um
allt land. Flestir ef ekki allir vell-
irnir er byggðir í sjálfboðavinnu
og með styrk og stuðningi félaga
í klúbbunum. Rekstur golfklúbba
gengur misvel, sumir bera skuld-
ir og aðrir hafa borð fyrir báru.
Nesklúbburinn skilaði skuldlaus-
um ársreikningi í ár. Ársreikn-
ingar eru samt aldrei tæmandi
yfirlit. Þar kemur t.d. ekki fram
rekstur sem stjórn hefur boðið
út eins og rekstur matsölu og
kennslu. Þar kemur heldur ekki
fram vinna sjálfboðaliða. Golf-
völlurinn er opinn allt árið fyrir
félaga í klúbbnum og það eru
stundaðar æfingar innanhúss
yfir vetrartímann. Æfingaaðstaða
að vetri til er verkefni sem Nes-
klúbburinn er að reyna að bæta.
Kirkja og klúbbur
1.645
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER
Jólabón til Jóns Gnarr
Sif Sigmarsdóttir pistlahöfundur
563
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER
Já, þú varst að vekja mig
Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, forstöðumaður
Rannsókna-seturs HÍ á Vestfj örðum
465
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER
Húsnæðislán, Svíþjóð og Ísland
Oddur Steinarsson yfi rlæknir
437
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER
Ímyndað skuldafangelsi
Þórður Snær Júlíusson pistlahöfundur
354
ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER
Ja, mikið óskaplega ertu góð
Árný Guðmundsdóttir táknmálstúlkur
342
ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER
Ranghugmyndir yfi rvalda um
rjúpnaveiði
Dúi J. Landmark kvikmyndagerðarmaður
335
ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER
Lokasenna að Landsbankamáli
Sverrir Hermannsson fv. alþingismaður
309
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER
Staðreyndir um löggæslu á Íslandi
Runólfur Þórhallsson lögregluvarðstjóri
EFNAHAGSMÁL
Sighvatur
Björgvinsson
fv. ráðherra
➜ Hins vegar vill það
gleymast í þessari umræðu
að agaleysið í meðferð
efnahagsmála er ekki
bundið við stjórnmála-
menn eina. Spurningin er
ekki einvörðungu um hvort
stjórnmálamenn umgangast
fjárlagagerð eða viðfangs-
efni ríkisrekstrar af ábyrgð
eða ábyrgðarleysi.
FJÁRMÁL
Eggert
Eggertsson
fv. formaður
Nesklúbbsins
➜ Nesklúbburinn er
fi mmti fjölmennasti
golfklúbbur landsins.
Í honum eru 650
félagar en það eru 600
manns á biðlista eftir
að komast í klúbbinn.
Save the Children á Íslandi
Skoðun visir.is
Pekanhnetur og jurtir:
2 dl pekanhnetur
2–3 sellerístilkar, skornir í bita
1/2 blaðlaukur, skorinn smátt
1/2 rauð paprika, skorin í teninga
1 rauðlaukur, skorinn smátt
1 grænt epli, skorið í teninga
1/2 fenníka, skorin smátt
1 rauður chilipipar, fræhreinsaður, smátt
skorinn
4 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
4 msk fersk estragonblöð, skorin smátt
2 greinar rósmarín + 2 greinar timjan, heilar
250 g smjör, brætt
3 msk hvítvínsedik (eða annað úrvals vínedik)
1 msk hlynsíróp
kryddsalt og svartur og hvítur pipar úr kvörn
6–8 sneiðar heilhveitibrauð, skorið í teninga
Kastaníuhnetur, ávextir og beikon:
2 dl kastaníuhnetur
1/2 dl furuhnetur
4 plómur, 4 apríkósur, 2 nektarínur, flysjaðar,
steinninn fjarlægður og skornar í báta
1 dl vínber, steinlaus og skorin í tvennt
1 grænt epli, skorið í teninga
2 sellerístönglar, skornir smátt
8 sneiðar beikon, fínt skorið og steikt.
2 greinar rósmarín + 2 greinar timjan, heilar
250 g smjör, brætt
3 msk hvítvínsedik (eða annað úrvals vínedik)
1–3 msk hlynsíróp (fer eftir súrleika ávaxtanna)
kryddsalt og svartur og hvítur pipar úr kvörn
6–8 sneiðar heilhveitibrauð, skorið í teninga
Skolið fuglinn vel undir köldu vatni að innan og utan. Þerrið vel
með eldhúspappír. Saltið (gjarnan með kryddjurtasalti) að innan.
Að fylla kalkúna er ekki eingöngu sem meðlæti með hátíðarrétt-
inum heldur er það líka bragð- og kryddkeimurinn sem skiptir
máli.
Best er að matreiða kalkúnann við lágan hita og lengi í ofni.
Þumalfingursreglan er 120° og 40 mínútur á kíló. Pensla hann
stöðugt með bráðnu smjöri sem hefur verið kryddað með salti
og pipar. Einnig er vinsælt að væta viskustykki upp úr bræddu
smjörinu og leggja ofan á. Þá smyr fuglinn sig sjálfur.
Að loknum eldunartímanum er fuglinn tekinn út og ofninn
hækkaður upp í 220°. Þegar það hitastig er komið smellið þá
kalkúnanum í ofninn og brúnið við háa hitann í nokkrar mínútur.
Athugið að fara þá ekkert frá ofninum og fylgist mjög vel með
svo að kalkúninn brúnist ekki of mikið og brenni.
Pekanhnetur og jurtir. Blandið hnetunum og öllum jurtunum
saman, nema rósmarín og timjangreinunum í víða skál. Hellið
bræddu smjörinu yfir, kryddið og piprið rausnarlega með bæði
hvítum og svörtum pipar. Látið brauðteningana út í og blandið
vel saman með sleif. Rósmarín- og timjangreinarnar stingast
svo heilar með fyllingunni þegar hún fer í kalkúnann og verða
fjarlægðar að lokinni eldun. Kryddjurtagreinarnar gefa ilm og
angan í fyllinguna.
Kastaníuhnetur, ávextir og beikon. Blandið innihaldinu saman
eins og lýst er hér að ofan. Rósmarín og timjangreinar einnig not-
aðar á sama hátt.
KALKÚNI
OG TVÆR FYLLINGAR
5–6 kílóa kalkúni fyrir 10–12