Fréttablaðið - 22.12.2012, Qupperneq 98
22. desember 2012 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 74TÍMAMÓT
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN VALGEIR GUÐMUNDSSON
Hjallastræti 32, 415 Bolungarvík,
lést miðvikudaginn 19. desember
á Sjúkraskýlinu í Bolungarvík. Jón Valgeir
verður jarðsunginn frá Hólskirkju
í Bolungarvík, laugardaginn 29. desember kl. 14.00.
Rannveig Snorradóttir
Elísabet Jónsdóttir Þór Sigurjón Ólafsson
Snorri Hildimar Jónsson Þórhildur Sigurðardóttir
Guðrún Jónína Jónsdóttir Halldór Jón Hjaltason
Lára Kristín Jónsdóttir Lúðvík Karlsson
Selma Guðmunda Jónsdóttir Guðmundur Ólafur Birgisson
Erna Jónsdóttir Þorvaldur Þorvaldsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginkona mín, móðir og tengdamóðir,
ÓLÖF DÓMHILDUR
JÓHANNSDÓTTIR
Kópavogsbraut 1a,
lést á hjartadeild Landspítalans þriðjudaginn
18. desember. Útför hennar fer fram frá
Kópavogskirkju fimmtudaginn 27. desember
kl 15.00.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Guðmundur Sigurðsson
Aldís Unnur Guðmundsdóttir Jörgen L. Pind
Jóhann Þ. Guðmundsson Þórunn Ólafsdóttir
Ólafur Ó. Guðmundsson Sigríður Eyjólfsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
VIKTOR DAÐI BÓASSON
Malarási 7, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 19. desember. Útför hans fer
fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
28. desember nk. kl. 13.00.
Guðrún Þorsteinsdóttir
Aðalheiður Eva Viktorsdóttir
Þorsteinn Viðar Viktorsson Helga Hrönn Lúðvíksdóttir
Elvar Örn Viktorsson Sigríður Ólafsdóttir
Elísabet Björk og Karen Lind.
Okkar ástkæri
TRYGGVI ÞÓRIR HANNESSON
Bakkastöðum 165,
112 Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
fimmudaginn 27. desember kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Valdís Vilhjálmsdóttir
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem
sýndu okkur samhug og stuðning í
veikindum og við andlát okkar ástkæra,
DAVÍÐS ARNARS ARNARSSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar
Landspítalans, Lambhaga, Lukku, Hallgríms,
Stefáns og Sigurlínar. Einnig til þeirra
fjölmörgu sem komu að og aðstoðuðu við útför Davíðs.
Megið þið eiga gleðileg jól og gæfuríkt nýtt ár.
Karen Björk Guðjónsdóttir
Brynja Vigdís Hrafnkatla Rún
Arnar Sigurbjörnsson Sigrún Sverrisdóttir
Guðrún S. Jóhannesdóttir
systkin, frændsystkin og tengdafjölskylda.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Ástkær sonur okkur, bróðir,
mágur og frændi,
NJÁLL SKARPHÉÐINSSON
Hverfisgötu 16, Hafnarfirði,
varð bráðkvaddur á heimili sínu þann
8. desember. Útför hans hefur farið fram.
Þökkum samúð, vináttu og hlýhug.
Skarphéðinn Njálsson Erla Gestsdóttir
Gestur Skarphéðinsson Fanney Ásgeirsdóttir
Guðrún Signý Gestsdóttir
Erla Gestsdóttir
Helga Magnea Gestsdóttir
Guðjón Máni Ívarsson
SIGURVALDI ÓLI INGVARSSON
Gullengi 37, 112 Reykjavík,
lést 15. október sl. Jarðarförin fór fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Hjálmar Hrafn Sigurvaldason
og aðstandendur.
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
Elskuleg eiginkona mín,
JOSEFINE PEREZ JÓNSSON
Reykjavíkurvegi 10, Hafnarfirði,
andaðist þann 18. desember sl. á
kvennadeild Landspítalans. Bálför fer fram
28. des. kl. 13.00 frá Landakotskirkju.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks á deild
21A fyrir góða umönnun.
Fyrir hönd fjölskyldu og skyldmenna,
Finnbogi Þórir Jónsson.
30 ára afmæli
Elsku Matti okkar,
innilega til haming ju með þrítugs-
afmælið þitt þann 26. desember!
Haming juóskir
Tiina, mamma og pabbi, Arnór,
Pálmi og Guðrún
„Það eru aldeilis flottheit,“ segir Þor-
valdur Friðriksson fréttamaður, þegar
hann er beðinn um afmælisviðtal í til-
efni tuganna sex sem hann hefur lifað,
og rennir síðan huganum yfir ævi-
skeiðið.
„Ég er sonur Friðriks Sigurbjörns-
sonar og Halldóru Helgadóttur og ólst
upp til tíu ára aldurs í Bolungarvík
því pabbi var þar lögreglustjóri. Upp-
eldið mótaðist mikið af náttúruskoð-
un og svo vörðum við öllum sumrum
á Kiðafelli í Kjós þar sem pabbi átti
sumarbústað því föðurafi minn, Sig-
urbjörn Þorkelsson í Vísi, var þaðan.
Móðir mín er ættuð úr Skagafirði. Ég
var alltaf í sveit í Birkihlíð í Staðar-
hreppi, hjá gríðarlega góðu fólki og
stend í þeirri meiningu að Skagafjörð-
ur sé gleðilegasta sveit landsins.“
Þorvaldur gekk í MR og kveðst hafa
verið í skemmtilegum latínubekk. „Við
höldum hópinn og hittumst oft á vetri,“
segir hann og upplýsir að stórkostlegir
fundir séu haldnir milli falla í báta-
skýlinu í Gróttu. Í HÍ nam hann sögu
og bókmenntir hjá dr. Birni Þorsteins-
syni. „Björn kom öllum nemendum til
áhuga á sagnfræði,“ segir Þorvaldur
og kveðst hafa fengið sérstakan áhuga
á keltneskri húsagerð og keltneskum
áhrifum í okkar menningu, meðal
annars tungumálinu. Hann tekur sem
dæmi orðin hrútur, ær og gemlingur,
æska og heili og segir sum örnefni líka
mega rekja til írsku.
Þorvaldur vann mörg sumur á Þjóð-
minjasafninu ungur að árum og var
einar sjö vertíðir flensari í Hvalstöð-
inni. Þá vann hann sem kennari við
norræna lýðháskólann í Kungälv en
frá 1986 hefur rödd hans hljómað á
öldum ljósvakans, sem fréttamanns.
Eiginkona Þorvaldar er Elísabet
Brekkan og þau eiga þrjú börn, Estrid,
Brendan og Patrik. „Síðan eigum við
þrjú barnabörn, eitt á hvert stykki,“
segir afinn. En hvar ætlar hann að
halda upp á daginn? „Ég ætla að dvelja
á eyju þeirri sem Atlantshafið heitir
eftir,“ segir hann mjög leyndardóms-
fullur. „En ég er búinn að halda upp
á afmælið með bekkjarsystkinum
mínum úr sex ára bekk í Bolungar-
vík. Við erum náttúrulega öll sextug
á árinu og í tilefni af því fórum við að
Horni, gengum á bjargið og gistum í
húsi eins bekkjarbróður því foreldr-
ar hans voru síðustu ábúendur þar.“
gun@frettabladid.is
Dvelur á ónefndri eyju
Þorvaldur Friðriksson, fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, er sextugur í dag. Hann dvelur
á eyju sem Atlantshafi ð heitir eft ir á þessum merkisdegi í lífi sínu.
MERKISATBURÐIR
ÞORVALDUR Plássið á síðunni dugði
ekki til að lýsa áhuga afmælisbarnsins á
skrímslum en Þorvaldur telur allt benda
til að skrímsli séu óþekktar dýrategundir
því þær skilji eftir sig skít og spor.
1897 Stundaklukka er sett upp í turni
Dómkirkjunnar í Reykjavík. Hún var
gjöf frá Thomsen kaupmanni.
1945 Ný Ölfusárbrú er tekin í notkun.
1987 Ný lögreglusamþykkt fyrir
Reykjavík gengur í gildi og leysir af
hólmi aðra sem er meira en hálfrar
aldar gömul.
1988 New York-samningarnir eru
undirritaðir milli Kúbu, Angóla
og Suður-Afríku þar sem Sam-
einuðu þjóðirnar fá stjórn
Namibíu.
2010 Jón Bjarnason sjávarútvegs-
ráðherra skrifar undir reglugerð
um hámarksmagn transfitusýra í
matvælum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN