Fréttablaðið - 22.12.2012, Page 104

Fréttablaðið - 22.12.2012, Page 104
22. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 80MENNING Mýs og menn eftir John Steinbeck er einhver kunnasta skáldsaga 20. aldar og hefur hlotið einróma lof um víða veröld. Hún fjallar um farandverkamennina George og Lennie og draum þeirra um að eignast jarðarskika með svolitlu húsi. Lennie er risastór og einfald- ur rumur sem Georg gætir eins og bróður síns og bjargar þeim iðu- lega úr vandræðum. Þeir ráða sig á stóran búgarð og draumurinn virðist loksins ætla að rætast en þá breytist allt. Times Literary Supplement kall- aði Mýs og menn „meistaraverk“, gagnrýnandi Chicago Tribune lét svo um mælt að hér blandaðist saman „miskunnarleysi og við- kvæmni á sérkennilega hrífandi hátt“. Í umsögn New York Times mátti lesa að þetta væri „spenn- andi saga“ sem þú legðir ekki frá þér fyrr en þú hefðir lokið henni. Breski rithöfundurinn Nick Hornby sagði einfaldlega að Mýs og menn væri „fullkomin skáld- saga“. Skáldsagan Mýs og menn kom upphaflega út árið 1937 og Stein- beck skrifaði sjálfur leikritið sem er tíður gestur á fjölum leik- húsa heimsins. Sagan hefur einn- ig tvisvar verið kvikmynduð við góðan orðstír. Kvikmyndaútgáfa sögunnar var tilnefnd til fjölda Óskarsverðlauna árið 1939 og ný útgáfa hennar keppti svo um Gullpálmann í Can- nes árið 1992. Í myndinni frá 1939 lék Burgess Meredith George og Lon Chaney Jr. lék Lennie. Gary Sinise leikstýrði myndinni 1992 og lék sjálfur hlutverk George en hlutverk Lennies var í höndum Johns Malkovich. Í sýningu Borgarleikhússins fara þeir Ólafur Darri Ólafsson og Hilmar Guðjónsson með hlutverk Lennies og George og Jón Páll Eyj- ólfsson leikstýrir. Frumsýnt verð- ur 29. desember. Miskunnarleysi og viðkvæmni Jólasýning Borgarleikhússins er Mýs og menn eft ir John Steinbeck sem hann byggði á samnefndri bók sinni. Verkið hefur átt stöðugum vinsældum að fagna frá útgáfu bókarinnar árið 1937 og aðalleikararnir tveir, Hilmar Guðjónsson og Ólafur Darri Ólafsson, segja þessa sígildu sögu svo sannarlega eiga erindi við áhorfendur dagsins í dag. Þar séu spurningar sem öllum er hollt að velta fyrir sér. LITLI OG STÓRI Hilmar Guðjónsson og Ólafur Darri Ólafsson eru sammála um að boðskapur verksins eigi brýnt erindi við nútímafólk. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hvernig maður er George? „Hann er eins og svo margir í nútímanum. Hann er að reyna að standa sig í samfélaginu, vinna sína vinnu og vera duglegur. Mjög samviskusamur maður.“ Hann er líka með þennan böggul í farteskinu? „Já, og það er hans vandamál í þessum heimi þar sem hann þarf að vera svona duglegur og vinna svona mikið að hann er með þennan vin sinn með sér. Hann getur ómögulega losað sig við Lennie, en getur samt ekki útskýrt af hverju.“ Kemur það fram í verkinu hvers vegna hann telur sig bera ábyrgð á Lennie? „Nei, það er í rauninni ein af aðalspurningum verks- ins: Af hverju erum við að taka ábyrgð á og hugsa vel um meðbræður okkar? Svarinu við þeirri spurningu kemur George ekki í orð.“ Hefur þetta verk frá 1937 eitthvað að segja okkur í dag? „Ég vil síður tjá mig um hvað verkið á að segja okkur, vil hafa þá spurningu opna fyrir áhorfendur að svara hver fyrir sig. En þetta verk á svo sannarlega erindi í dag og boðskapurinn sem ég les út úr því skiptir mig miklu máli. Ég vona bara að sem flestir sjái sýninguna og að hún breyti að einhverju leyti sýn fólks á þessi mál.“ Nálgist þið verkið á nýjan hátt? „Það var snemma tekinn sá póll í hæðina að vera ekkert að eltast við einhverja fyrir fram gefna hugmynd um það hvernig eigi að setja Mýs og menn upp. Við höfum rannsakað verkið upp á nýtt og skoðað hvað felst í því. Það er nefnilega alveg rosalega mikið sem býr í þessu verki og við erum stöðugt að kynnast því betur.“ Þannig að þú mælir með því að fólk losi sig við allar fyrir fram gefnar hugmyndir um verkið áður en það mætir í leikhúsið? „Já, algjörlega. Það eru margir sem hafa lesið bókina og myndað sér mjög ákveðnar skoð- anir á henni, en ég er alveg viss um að þessi sýning á eftir að veita fólki nýja sýn á þetta verk.“ Hilmar Guðjónsson: George Höfundur: John Steinbeck | Leikstjórn: Jón Páll Eyjólfsson | Þýðing: Ólafur Jóhann Sigurðsson | Aðstoðarleik- stjórn: Jón Atli Jónasson | Leikmynd og búningar: Ilmur Stefánsdóttir | Aðstoðarmaður: Anna Kolfinna Kuran | Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson | Tónlist: Davíð Þór Jónsson | Hljóð: Thorbjörn Knudsen | Gervi: Margrét Benediktsdóttir |Leikarar: Ólafur Darri Ólafsson, Hilmar Guðjónsson, Álfrún Örnólfsdóttir, Þórir Sæmundsson, Hall- dór Gylfason, Theodór Júlíusson, Þröstur Leó Gunnarsson, Valur Freyr Einarsson, Sigurður Þór Óskarsson og Kjartan Guðjónsson. Aðstandendur sýningarinnar Hvernig maður er Lennie? „Hann er bara ofsalega góð sál. Kannski það sem við mundum kalla einfaldur, en afskaplega góður maður. Trúr og tryggur vini sínum George.“ Hver er dýnamíkin í sam- skiptum þeirra tveggja? „Ja, hver er dýnamíkin í sam- skiptum fólks yfirleitt? Ég held að dýnamíkin liggi bara í því að þarna eru tvær mann- eskjur sem sjá sér hag í því að ferðast saman og fyrir Lennie felst mikið öryggi í George sem hjálpar honum í þeim málum sem hann þarfnast hjálpar í. Er honum bæði félagi og eins konar foreldraímynd.“ En hvað fær George út úr samskiptum þeirra? „Ég held að George vilji ekki, frekar en við flest, vera einn í þessu lífi og í Lennie finnur hann félagsskap. Við þekkjum það öll sem höfum annast börn að í þeim samskiptum finnur maður djúpa væntumþykju og hefur endalausa þolinmæði.“ Hvaða skírskotun hefur verkið til samtímans? „Það náttúrulega gerist í kreppunni miklu og fjallar um farandverkamenn og þeirra aðbúnað sem er frekar kuldalegur og ekki mjög spennandi og ég held það sé okkur Vesturlandabúum hollt að leiða hugann að því sem farandverkafólk úti í hinum stóra heimi þarf að glíma við. Svo er það þessi áleitna spurning: Á maður að gæta bróður síns? Á maður að sjá um fólkið sem er í kringum mann? Kannski á maður aldrei að hugsa meira um það en þegar hlutirnir eru eins og þeir eru í dag.“ Jóhann Sigurðsson og John Malkovich hafa báðir leikið Lennie, þú óttast ekkert samanburð við þá? „Jói er náttúrulega bara pabbi minn, ég held hann hafi leikið pabba minn svona átta sinnum. Hann er eini maðurinn sem mér finnst ég vera lítill við hliðina á. Ég myndi ekkert skammast mín þótt ég yrði lítill við hliðina á honum eftir þetta. Jói er stórkostlegur listamaður og það er heiður bara að vera borinn saman við hann. Ég sá myndina með Malkovich fyrir mörgum árum og ég held ég geti fullyrt að fólk muni sjá mikinn mun á henni og þessari sýningu.“ Ólafur Darri Ólafsson: LennieFriðrika Benónýsdóttir friðrikab@frettabladid.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.