Fréttablaðið - 22.12.2012, Blaðsíða 126
22. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 102
BÍÓ ★★★★ ★
Life of Pi
LEIKSTJÓRN: ANG LEE LEIKARAR:
SURAJ SHARMA, IRRFAN KHAN, TABU,
ADIL HUSSAIN, GERARD DEPARDIEU,
RAFE SPALL
Sjaldan hefur sést ókræsilegri
stikla fyrir kvikmynd en sú sem
hefur auglýst myndina Life of Pi
undanfarnar vikur og mánuði.
Bókina þekkja allir, líka þeir sem
hafa ekki lesið hana, en af auglýs-
ingunni að dæma var myndin lítið
annað en vellulegt tölvubrellu-
mont. Og Coldplay-lagið sem ómaði
undir ýtti þessu endanlega yfir
gubbstrikið.
En mikið er nú alltaf hressandi
og hollt þegar maður fær fordóm-
ana beint í fésið, blauta og kalda.
Ef notkun broskarla í dagblöðum
væri ekki almennt talin gríðarlega
ófagmannleg, þá myndi ég setja
einn hér.
Myndin segir frá indverska
drengnum Pí, sem ásamt for-
eldrum sínum, bróður, og sirkus-
dýrum föður síns, lendir í sjóslysi
þar sem nær allir farast. En Pí
kemst undan í björgunarbát, ásamt
tígris dýrinu Richard Parker, og
aleinir úti á ballarhafi munu þeir
eyða dögum, vikum og mánuðum
saman.
Leikstjórinn Ang Lee fer hér
alla leið í dúlleríi, skrúfar alla
liti upp í ellefu, og aldrei lét ég
það fara í taugarnar á mér hversu
„gervileg“ sviðsmyndin er. Hún
er að miklu leyti tölvuteiknuð og
styður vel við draumkennt mynd-
málið, og svo er glæsileg þrívíddin
punkturinn yfir i-ið.
Eini sjáanlegi lösturinn á þess-
ari prýðilegu og gullfallegu mynd
er lokaspretturinn. Þar er kjötið
brytjað niður leiðinlega smátt,
svo örugglega enginn þurfi nú að
nota höfuðið og draga sínar eigin
ályktanir um sögulokin. Það er
leiðinlegt að láta tala niður til sín.
Áhorfendur eru skarpari en flestir
halda :) Haukur Viðar Alfreðsson
NIÐURSTAÐA: Óvæntasti glaðningur
ársins.
Óvæntur glaðningur
MIKIÐ DÚLLERÍ Gervileg sviðsmyndin styður við draumkennt myndmálið.