Fréttablaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 27. mars 2013 | SKOÐUN | 17
varpinu segir að áætlaðar tekjur
kísilmálmverksmiðjunnar muni
„tæpast einar og sér standa undir
kostnaði við nauðsynlega uppbygg-
ingu innviða“. Með öðrum orðum:
Framkvæmdin svarar ekki kostn-
aði. Jafnframt kemur þar fram að
hún hafi „þensluáhrif í för með sér
sem hækkar lítillega vaxtastigið
með smávægilegum neikvæðum
áhrifum á almenna atvinnuvega-
fjárfestingu“. Þar að auki er lagt
til í nefndaráliti sem fylgir frum-
varpinu að kísilmálmverksmiðjan
njóti sérstakrar undanþágu frá því
að greiða þá skatta og opinberu
gjöld sem öðrum fyrirtækjum
landsins ber að standa skil á.
Hljómar kunnuglega, ekki satt?
Kjúklingur og franskar
Erfitt er að sjá að kísilmálmverk-
smiðja á Bakka hafi marga aðra
kosti í för með sér en að skapa
399 störf á Húsavík og nágrenni
sem vill svo til að er einmitt í
Norð austurkjördæmi, kjördæmi
atvinnuvega- og nýsköpunarráð-
herra. Svo fullur af kosningamóð
er hins vegar atvinnuvegaráðherr-
ann að honum nægir ekki aðeins að
fólk og fyrirtæki greiði fyrir kjör-
dæmapot hans með hærra vaxta-
stigi, afleiðingu stóriðjustefnu sem
maður hefði haldið að bryti gróf-
lega í bága við „græna“ hlutann í
nafni flokks hans.
Á aðalfundi Samtaka verslunar
og þjónustu í síðustu viku benti
Margrét Kristmannsdóttir, for-
maður samtakanna, á þann sparn-
að sem innflutningur á landbún-
aðarvörum gæti haft í för með sér
fyrir heimili landsins. „Fjögurra
manna fjölskylda sem vildi fá sér
kjúklingabringur í kvöldmat ásamt
frönskum kartöflum þarf í dag
að greiða tæpar 1.900 krónur en
myndi greiða um ellefu hundruð
krónur ef versluninni stæði til
boða að flytja þetta inn án ofur-
álagna,“ sagði Margrét.
En nei. Landbúnaðarkerfið,
skjaldborg um hagsmuni nokkurra
atvinnurekenda á landsbyggðinni,
ber að vernda. Sér í lagi rétt fyrir
kosningar. Steingrímur J. Sigfús-
son lýsti yfir á sama fundi að hann
setti sig alfarið upp á móti frekari
innflutningi á landbúnaðarvörum.
Reykjavíkurflugvöllur og Mývatn
Hvort þörf sé á að einhver taki
sig til og stofni stjórnmálaflokk-
inn Latte-listann til höfuðs Lands-
byggðarflokknum skal ósagt látið.
En ljóst er að taka þarf fyrir ófor-
skammað kjördæmapot þing-
manna landsbyggðarinnar.
Rithöfundurinn Andri Snær
Magnason lýsir yfir áhyggjum
á heimasíðu sinni af afdrifum
Mývatns verði kísilmálmverk-
smiðja á Bakka að veruleika. Andri
Snær var einn háværasti and-
stæðingur Kárahnjúkavirkjunar.
Við hunsuðum aðvaranir hans og
annarra. Það væri landi og þjóð
til ævarandi skammar að endur-
taka mistökin. Auðvitað mega
stjórnmálamenn berjast fyrir því
að halda fjölbreytilegri byggð í
landinu með sértækum aðgerðum.
En fórnarkostnaðurinn má ekki
vera svo geigvænlegur að hann
sligi náttúruna, fólkið og fyrir-
tækin. Ef landsbyggðarfólk getur
gert kröfu um að fá að lenda á flug-
velli í hjarta Reykjavíkur þegar
það kemur í bæinn hljótum við
„borgarsveitalubbarnir“ að geta
gert kröfu um að Mývatn verði enn
á sínum stað næst þegar við sækj-
um Steingrím J. Sigfússon heim í
Norðausturkjördæmi.
En fórnarkostnaður-
inn má ekki vera svo
geigvænlegur að hann sligi
náttúruna, fólkið og fyrir-
tækin.
Borgarfulltrúinn Gísli Marteinn
Baldursson fékk eina traustustu
stuðningsyfirlýsingu stjórnmála-
ferils síns í síðustu viku þegar
þingmaðurinn knái Árni Johnsen
kallaði hann „borgarsveitalubba“
og fullyrti að þar færi „einhver
alvitlausasti borgarfulltrúi sem
hefur verið í sögu Reykjavíkur“.
Tilefnið var sú skoðun Gísla Mar-
teins að flytja eigi Reykjavíkur-
flugvöll burt úr Vatnsmýrinni.
Tólf ár eru síðan Reykvíkingar
kusu flugvöllinn burt. Enn þekur
þó grámóskan mýrina meðan rell-
urnar sveima yfir húsþökum mið-
borgarinnar svo hriktir í kofa-
skriflum þar sem við latte-lepjandi
„lubbarnir“ sitjum og sötrum líf-
rænt ræktaðan morgunsopann
gegnum þykka mjólkurfroðu uns
klukkan er langt gengin í hádegi.
Ítök sem þingmenn landsbyggðar-
innar hafa á hinum ýmsu sviðum
stjórnmálanna, í flugvallarmál-
inu sem fleirum, eru mikil og
hlutfallslega meiri en þingmanna
Reykjavíkursvæðisins miðað við
atkvæðavægi íbúanna. Það skýtur
því skökku við að fram er komið
nýtt stjórnmálaafl sem kallar sig
Landsbyggðarflokkinn. Á heima-
síðu flokksins segir: „Svo virðist
sem gömlu og nýju flokkarnir ætli
málefnum landsbyggðarinnar ekki
mikið pláss – ef þá nokkuð, og sam-
kvæmt hefðinni koma þau alltaf
síðust.“
Af öllum þeim glæfralegu lof-
orðum og firrtu fullyrðingum sem
vella upp úr stjórnmálamönnum í
kosningabaráttu hlýtur ofangreind
yfirlýsing að komast á topp tíu
listann. Því ef fréttir undanfarinna
vikna hafa kennt okkur eitthvað þá
er það hvernig óheftur sleikjuskap-
ur þingmanna við landsbyggðina
– óheflað kjördæmapot þeirra sem
berjast með kjafti og klóm fyrir
bitlingum heim í hérað í skiptum
fyrir áframhaldandi þingsetu –
hefur leitt hörmungar yfir náttúru
landsins, heimili og fyrirtæki.
Dýrasta daður sögunnar
Niðurstaða dýrasta daðurs stjórn-
málamanna við landsbyggðina
í sögu landsins liggur nú fyrir.
Kárahnjúkavirkjun var komið á
koppinn svo framleiða mætti orku
fyrir álver sem greiðir fyrir hana
svo lágt verð að upphæðin var um
langt skeið leyndarmál og, eins og
fram kom í fréttum síðustu viku,
greiðir nánast engan tekjuskatt
hér á landi. Fyrir þetta fengu
landsmenn að borga með þenslu
og himinháu vaxtastigi sem gerði
heimilum og fyrirtækjum erf-
itt um vik um árabil og – eins og
frægt er orðið – dauða Lagarfljóts.
Helsti ávinningur af Kárahnjúka-
virkjun, stærstu framkvæmd
Íslandssögunnar, virðist því sá að
í dag eru íbúar Reyðarfjarðar 544
fleiri en árið 2002 þegar smíðin á
virkjuninni hófst.
Úps. Við hefðum betur hlustað á
Andra Snæ og Draumalandið hans.
En við gerum það bara næst. Eða
hvað?
2,6 milljarða kosningavíxill
Guðmundur Hörður Guðmunds-
son, formaður Landverndar, sagði
í samtali við Viðskiptablaðið að
frumvarp Steingríms J. Sigfús-
sonar, atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðherra, um stóriðju á Bakka
við Húsavík væri einn stærsti
kosningavíxill sem nokkru sinni
hefði verið gefinn út. Frumvarpið,
sem kveður á um að 2,6 milljarðar
verði veittir í vegaframkvæmd-
ir, jarðgöng og hafnarbætur við
Húsavík til að þýska fyrirtækið
PCC megi reisa kísilmálmverk-
smiðju í nágrenninu, liggur nú
fyrir Alþingi.
En hver er ávinningurinn? Í
athugasemdum sem fylgja frum-
Latte-listinn: Gegn óforskömmuðu kjördæmapoti
Í DAG
Sif
Sigmarsdóttir
rithöfundur
frá aðeins kr.
75.900
með allt innifalið í 5 nætur
frá aðeins kr.
59.900
Flugsæti á mann
3. apríl í 8 eða 13 nætur
11. apríl í 5 nætur
16. apríl í 16 nætur
25. apríl – 4 nætur
Villa Adeje Beach
Frá kr. 75.900
með allt innifalið í 5 nætur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára,
í íbúð með allt innifalð. Netverð m.v. 2 fullorðna í studio
íbúð kr. 89.900 á mann. Sértilboð 11. apríl í 5 nætur.
Frá aðeins kr. 59.900
Flugsæti á mann 25.-29. apríl
89.800
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með
morgunverði. Tryp Macarena **** í 4 nætur.
Tenerife
Sevilla
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
m
sf
e
ei
m
rð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
á
s
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
A
th
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
b
t
án
fy
rir
va
ra
.
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
M
/
E
N
N
E
M
M
A
•
N
S
IA
M
55
14
7
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
55
14
7