Fréttablaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 12
27. mars 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12
HREIN SNILLD
Í ELDA-
MENNSKUNA
EKKERT MSG!
ENGIN TRANSFITA
!
ENGIN LITAREFNI!
SKÝRSLAN SKOÐUÐ Erla Bolladóttir var yfirheyrð að
minnsta kosti 105 sinnum á níu mánuðum á meðan hún sat í
varðhaldi. Hér skoðar hún skýrslu hópsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNSÝSLA Að minnsta kosti helmingur
sakborninga í Guðmundar- og Geirfinns-
málunum reyndi, hótaði eða hugsaði um
sjálfsvíg á meðan á gæsluvarðhaldi stóð.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um
málin.
Kristján Viðar Viðarsson reyndi í tví-
gang að stytta sér aldur um jólin 1976 til
1977. Hann reyndi bæði að skera sig á púls
og kveikja í klefa sínum. Í kjölfarið var
tekin upp sólarhringsgæsla yfir honum
því talið var líklegt að hann myndi reyna
sjálfsvíg aftur. Ekki er að sjá af fangelsis-
dagbók að hann hafi notið aðstoðar fanga-
læknis, fangaprests eða annarrar sálgæslu
á þessu tímabili, að því er fram kemur í
skýrslunni.
Þá kemur fram að Erla Bolladóttir hafi
verið talin í sjálfsvígshættu seinni hluta
ársins 1976. Fram kemur í athugasemdum
þýska rannsóknarlögreglumannsins Karls
Schütz að eftir yfirheyrslu í október það ár
hafi hún hótað sjálfsmorði.
Í dagbók Guðjóns Skarphéðinssonar frá
árinu 1976 koma fram hugleiðingar hans
um sjálfsvíg og óskir um dauða. „Mikið
vildi ég að Guð tæki mig til sín, ég er alveg
að gefast upp,“ skrifaði hann á gamlárs-
dag árið 1976. Í viðtölum starfshópsins við
fangaverði kemur fram að öllum sakborn-
ingunum sex hafi liðið mjög illa í varð-
haldinu.
Fram kemur í skýrslu starfshópsins
að hann telur líklegt að fjöldi gagna, sem
hafi orðið til við rannsókn málanna, hafi
ekki enn fundist. Meðal þessara gagna eru
frekari gögn frá Schütz og rann sóknar-
nefnd Reykjavíkur. „Hópurinn telur lík-
legt miðað við umfang rann sóknarinnar
að fleiri gögn hafi verið þýdd á þýsku fyrir
Schütz en ella má draga þá ályktun að
hann hafi ekki haft nægilega góða yfirsýn
yfir rannsóknina á tungumáli sem hann
skildi.“
Einnig hefur komið í ljós að Schütz hafi
haldið daglega fundi með rannsóknar-
nefnd Reykjavíkur og ritaðar hafi verið
fundargerðir, sem hafa ekki fundist.
Þá hafa lögregluskýrslur og minnis-
punktar, bæði um yfirheyrslur yfir fjór-
menningunum svokölluðu, og er varða
rannsókn Guðmundarmálsins, ekki
fundist. Að auki hafa lyfjaskrár, um lyf í
Síðumúlafangelsi, ekki fundist.
Nokkur fjöldi gagna sem varð til við
rannsóknina rataði aldrei fyrir dóm og
verjendur og dómarar höfðu ekki aðgang
að þeim. Þetta þarf að sögn hópsins ekki
að vera óeðlilegt. Þó hafa ekki fengist
skýringar á öllum þeim gögnum sem tekin
voru út. thorunn@frettabladid.is
Hótuðu eða reyndu
sjálfsvíg í fangelsinu
Helmingur sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálum reyndi, hótaði eða hugsaði um
sjálfsvíg í gæsluvarðhaldi. Starfshópur um málin telur að fjöldi gagna, sem gerð voru við rann-
sóknina, sé enn týndur. Meðal þeirra séu gögn frá Schütz. Margt gagna kom aldrei fyrir dóm.
LÁGMARKSFJÖLDI YFIRHEYRSLA
Kristján Viðar
Viðarsson
a.m.k. 160 yfirheyrslur
á einu og hálfu ári.
Ekkert talað um lög-
mann.
Tryggvi Rúnar
Leifsson
a.m.k. 95 yfirheyrslur
á tæpum tveimur
árum. Hitti lögmann
25 sinnum samkvæmt
fangelsisdagbók.
Erla Bolladóttir
a.m.k. 105 yfirheyrslur
á níu mánuðum.
Lögmaður þrisvar við-
staddur.
Guðjón
Skarphéðinsson
a.m.k. 75 yfirheyrslur
á tveimur mánuðum.
Hitti lögmann sinn 27
sinnum.
Sævar Ciesielski
a.m.k. 180
yfirheyrslur á tveimur
árum. Ekkert talað
um lögmann.
Albert Klahn
a.m.k. 26 yfirheyrslur
á 87 dögum. Hitti lög-
mann fjórum sinnum.
„Ljóst er þó að
upplýsingar um
fj ölda og lengd
yfi rheyrsla og
annarra samskipta
milli rannsakenda
og sakborninga eru
frekar van- en of-
taldar því í málun-
um báðum liggja
ekki fyrir upp-
lýsingar um tíma-
lengd yfi rheyrsla í
fj ölda tilvika og þá
liggur oft ekki fyrir
hvort um formlega
skýrslutöku var að
ræða eða óform-
legt samtal.“
Úr skýrslu starfshópsins