Fréttablaðið - 27.03.2013, Síða 38

Fréttablaðið - 27.03.2013, Síða 38
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013Brúðkaup12 Húsið þitt Útsýni innifalið Bókaðu nú þegar. Sendu fyrirspurn á radstefnur@harpa.is eða hringdu í síma 528 5060. www.harpa.is Björtuloft eru glæsileg og óvenju leg umgjörð fyrir hvers konar mannamót, staðsett á efstu hæðum Hörpu — með stórbrotnu útsýni til allra átta. Snætt með guðsgöfflunum Snittur og fingrafæði er sívinsælt í brúðkaupsveislum og á einkar vel við í sumarbrúðkaupum. Auðvelt er að útbúa slíkan veislukost heima og útfærslurnar eru óþrjótandi, eftir smekk og lyst hvers og eins. Hér er að finna fáeinar hugmyndir að ljúffengu veislusnarli fyrir stóra daginn. Nautasteik, medium rare, á grófu, ristuðu snittubrauði með sýrðum rjóma og rós- maríni. Lostæt gæsa- lifrarkæfa á hring- skornu brauði með döðlum og ávaxtamauki. Nautakjöt, velt upp úr sojasósu og sesam- fræjum, grillað á teini. Freistandi kokkteilpylsur í smjördeigsrúllum pensluðum með eggi og sesamfræjum ofan á. Kjúklingabitar, vafðir inn í bakaða, skinnlausa papriku með kapers. Grilluð satay-kjúk- lingaspjót með bragð- mikilli hnetusósu. Unaðslegir jarðar- berjahattar með geitaosti og graslauk.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.