Fréttablaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 58
27. mars 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 34
Fyrsta plata Justins Timberlake í
sjö ár, The 20/20 Experience, fór
beint í toppsætið í Bretlandi og
velti þar með nýjustu plötu Davids
Bowie úr sessi. Á sama tíma missti
popparinn efsta sætið á smáskífu-
listanum því lagið hans Mirrors
lenti neðar en What About Us með
The Saturdays.
Búist er við því að The 20/20
Experience fari einnig beint á topp-
inn á bandaríska Billboard-list-
anum á miðvikudaginn. Reiknað
er með því að platan hafi þá selst
í tæplega einni milljón eintaka á
aðeins einni viku.
Milljón plötur
vestanhafs
VINSÆLL Justin Timberlake er að gera
góða hluti á nýju plötunni. NORDICPHOTO/GETTY
Ársfundur Byggðastofnunar föstudaginn
5. apríl 2013 Miðgarði, Skagafirði
Dagskrá ársfundar:
Kl. 13:00 Setning fundarins, Þóroddur Bjarnason, formaður
stjórnar Byggðastofnunar.
Kl. 13:05 Ávarp atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra,
Steingrímur J. Sigfússon.
Kl. 13:20 Þóroddur Bjarnason, ræða formanns stjórnar
Byggðastofnunar.
Kl. 13:35 Aðalsteinn Þorsteinsson, skýrsla forstjóra Byggðastofnunar.
Kl. 13:50 Afhending „Landstólpans“ samfélagsviðurkenningar
Byggðastofnunar.
Kl. 14:00 Kynning og undirritun nýrra samninga um atvinnu- og
byggðaþróun við atvinnuþróunarfélögin.
Brothættar byggðir – ný nálgun
Kl. 14:15 Verkefni um framtíð Raufarhafnar. Hvernig tókst til?
Sigríður K. Þorgrímsdóttir, þróunarsviði Byggðastofnunar.
Kl. 14:30 Sjónarmið íbúa í brothættri byggð. Ása Dóra Finnbogadóttir
frá íbúasamtökum á Bíldudal.
Kl. 14:45 Ferðaþjónusta sem ylrækt. Edward Huijbens,
forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála.
Kl. 15:00 Ævintýrið á Siglufirði. Sigríður Róbertsdóttir
framkvæmdastjóri Rauðku.
Kl. 15:15 Fundarlok.
Allir velkomnir.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið magga@byggdastofnun.is
Fyrrverandi knattspyrnuhetjan
Paul Gascoigne, sem er edrú þessa
dagana eftir dvöl á meðferðarheim-
ili í Bandaríkjunum, var hræddur
um að hann myndi deyja fyrr í
mánuðinum þegar hann var lagður
inn á spítala í byrjun mánaðarins.
Gascoigne þjáðist af svo alvar-
legum fráhvarfseinkennum fyrst
um sinn að honum var vart hugað
líf. „Ég heyrði einhvern inni á
sjúkrastofunni segja að ég myndi
líklega ekki lifa af,“ sagði Gasco-
igne í fyrsta sjónvarpsviðtali sínu
á ITV-stöðinni eftir meðferðina.
„Ég grátbað hann um að láta mig
ekki deyja því ég ætti eftir að
vökva blómin. Mér fannst blómin
skipta meiru máli. En blómin dóu
og ég lifði af,“ bætti hann við.
Hafði áhyggjur
af blómunum
PAUL GASCOIGNE Óttaðist um líf sitt.
Mario Armando Lavandeira Jr. hélt
upp á 35 ára afmælið sitt á laugar-
dagskvöldið. Fáir þekkja manninn
undir því nafni en flestir kannast
þó við hann undir nafninu Perez
Hilton. Hann er líklega þekktasti
bloggari heimsins og heldur úti
síðunni perezhilton.com en þar
skrifar hann daglegar fréttir af
fína og fræga fólkinu í Hollywood.
Þrátt fyrir að hafa eignast sitt
fyrsta barn, Mario Armando
Lavandeira III, eða Perez Hilton
Jr., með aðstoð staðgöngumóður í
lok febrúar, sló Perez ekki slöku
við í afmælishöldum þetta árið.
Hann sló upp risastóru náttfata-
partíi í L.A.-leikhúsinu og mörg
þekkt andlit gerðu sér lítið fyrir og
skelltu sér út á náttfötunum til að
fagna deginum með honum.
35 ára afmælinu
fagnað á náttfötunum
Bloggarinn Perez Hilton bauð til afmælisveislu í L.A. á laugardagskvöldið.
Í STÍL Afmælisbarnið lét útbúa náttföt í stíl handa sér og mömmu sinni. Sonur
hans, Perez Hilton Jr., fékk líka galla með sama munstri þrátt fyrir að vera of ungur
til að fá að koma í partíið. NORDICPHOTOS/GETTY
KRÚTTLEG Leikkonan unga Bella
Thorne var krúttleg í Mínumúsar-
náttgallanum sínum.
SÆT OG KÁT Söngparið Jordin Sparks
og Jason Derulo stillti sér upp.
TÖFFARI Hin fjölhæfa Ciara Princess
Harris var algjör töffari í afmælisboðinu.
SKVÍSA Glee-Leikkonan Alex Newell var
sæt í rauða silkisloppnum sínum.