Fréttablaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 64
27. mars 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 40
Þetta er rosaleg
pressa. Ef ég spila á
morgun (í kvöld) þá á
ég ekki eftir að gefa
boltann.
Birna Valgarðsdóttir
Opið frá kl. 11–20 alla daga
Engihjalla og Granda
& COKE
PIZZA
399kr. stk.
Tvöfalt pepperóní
399kr. stk.
Pizza með fajitakjúklingi
399kr. stk.
Pizza með skinku og osti
399kr. stk.
Fjögurra osta pizza
Ótrúlegt
verð
899kr. ks.
Coca Cola 33cl 12 dósir
Aðeins75 kr. dósin!ef þú kaupirkassa
KÖRFUBOLTI Birna Valgarðsdóttir
var jafnvel að hugsa um að hvíla
lúin bein í lokaumferð Dominos-
deildar kvenna í kvöld og safna
kröftum fyrir komandi úrslita-
keppni en það breyttist fljótt
þegar blaðamaður Fréttablaðs-
ins lét hana vita af því í gær að
hana vantaði bara 17 stig til þess
að bæta stigamet Önnu Maríu
Sveinsdóttur í efstu deild kvenna
á Íslandi.
Birna hefur líklega bara einn
leik til þess að ná því – hér er
aðeins um stig í deildarleikjum
að ræða en stig í leikjum í úrslita-
keppni eru ekki talin hér með.
Birna er orðin 37 ára gömul og var
plötuð til að taka eitt ár í viðbót.
Það er því allt eins líklegt að hún
sé að spila sinn síðasta deildarleik
í kvöld.
Deildarmeistarar Keflavíkur
spila þá lokaleik sinn í deildar-
keppninni þegar liðið mætir Fjölni
í Toyota-höllinni í Keflavík. Það er
þegar ljóst að liðin enda í 1. og 8.
sæti og því ekkert undir í leiknum
nema kannski það að Birnu takist
að slá metið.
Búin að missa af síðustu leikjum
Birna ætti kannski að vera komin
með metið en hún hefur misst af
tveimur síðustu leikjum liðsins
vegna meiðsla. Birna lék síðast á
móti KR 16. mars og var þá með
26 stig. Síðasta stig hennar í þeim
leik var númer 4.984 frá því að hún
lék sinn fyrsta leik í efstu deild
kvenna með Tindastóli 9. október
1992.
„Þetta er rosaleg pressa. Ef ég
spila á morgun (í kvöld) þá á ég
ekki eftir að gefa boltann,“ sagði
Birna hlæjandi þegar hún var
búin að frétta af því hvað væri
undir í leik kvöldsins. Birna lék
með Keflavík þegar Anna María
Sveinsdóttir kom til baka í einn
leik 1. mars 2006 til þess að ná
þeim fjórum stigum sem hana
vantaði upp í 5.000 stigin.
„Ég man það. Við vorum þarna
allar þvílíkt að láta hana skjóta,“
rifjar Birna upp og bætir við:
„Ég hugsaði bara þá að ég yrði nú
löngu hætt áður en ég næði þessu.
Ég bjóst ekki við að þrauka svona
lengi,“ sagði Birna sem var þá
1.810 stigum á eftir Önnu Maríu.
Nú, tæpum sjö árum síðar, er bilið
næstum því brúað.
„Nú fer ég bara og segi við stelp-
urnar í liðinu: Stelpur, nú þurfið
þið bara að hjálpa mér, þetta er
ekki flókið,“ sagði Birna og ef ein-
hver hefur unnið sér það inn að fá
eitthvað af stoðsendingum í kvöld
þá er það hún enda búin að fórna
ýmsu fyrir körfuboltann á liðnum
árum.
Græt þetta ekki núna
Birna var eiginlega hætt eftir síð-
asta tímabil en segir að Sigurður
Ingimundarson hafi kjaftað hana
til og á endanum var hún bara
mætt á æfingu. „Ég græt þetta
ekki og ég væri löngu hætt ef að
mér þætti þetta ekki svona svaka-
lega gaman. Það er svo erfitt að
ákveða að hætta og það er meira en
að segja það að ég sé hætt,“ segir
Birna sem hefur bætt deildar-
meistara- og bikarmeistaratitlum
í safnið í vetur og Keflavíkur liðið
er síðan með heima vallar rétt út
alla úrslitakeppnina.
Birna segist hafa gaman af að
sjá unga leikmenn Keflavíkur-
liðsins blómstra en margar þeirra
voru ekki fæddar þegar Birna
spilaði sinn fyrsta leik í deildinni.
Birna viðurkennir alveg að hún
sé allt annar leikmaður í dag en
þegar hún var „aðeins“ yngri.
Ekki eins frek á boltann núna
„Ég er ekki eins frek á boltann og
ég var því einu sinni fannst mér
ég eiga hann. Nú hugsar maður
kannski meira um að þær geti þetta
kannski líka þessar elskur sem eru
með manni. Ég verð því aðeins að
gefa hann á þær,“ sagði Birna í
léttum tón. En verður þetta síðasti
deildarleikur hennar í kvöld?
„Nei, ég er ekki búin að gefa það
út að þetta sé síðasta tímabilið en
maður er að undirbúa sig hægt og
rólega. Maður er alltaf að fara að
hætta en svo er maður alltaf svo
góður í skrokknum eftir sumar-
pásuna að maður er tilbúinn í
slaginn aftur. Ef ég næ þessu ekki
í kvöld, þá kem ég aftur þó að það
væri ekki nema í einn eða tvo
leiki,“ sagði Birna skellihlæjandi
að lokum.
Birna hefur skoraði stigin sín
fyrir fjögur félög: Tindastól (419
stig í 28 leikjum), Breiðablik
(169/18), Grindavík (203/15) og
Keflavík (3.865/260).
ooj@frettabladid.is
Stelpur, nú þurfi ð
þið að hjálpa mér
Birnu Valgarðsdóttur vantar sextán stig til að komast í 5.000 stigin í efstu deild
kvenna og jafnframt bara eitt stig til viðbótar til að slá stigametið í deildinni.
Hún fær kannski síðasta tækifærið í lokaumferðinni á móti Fjölni í kvöld.
BIRNA VALGARÐSDÓTTIR Hefur skorað 4.984 stig í 339 leikjum frá 1992 til 2013
eða 14,7 stig að meðaltali í leik. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SPORT
FÓTBOLTI Íslenska U-21 landsliðið hóf
undankeppnina fyrir EM 2015 af miklum
krafti þegar strákarnir unnu 2-1 sigur
á Hvíta-Rússlandi ytra í gær. Jón Daði
Böðvars son og Emil Atlason komu Íslandi
í 2-0 forystu en Hvít-Rússar minnkuðu
muninn með marki úr vítaspyrnu á 72.
mínútu, eftir að fyrirliðinn Sverrir Ingi
Ingason hafði verið dæmdur brotlegur
innan teigs.
Sverrir Ingi fékk einnig að líta rauða
spjaldið og því lá talsvert á íslenska liðinu
síðustu mínútur leiksins. En strákarnir
héldu út til leiksloka og fögnuðu góðum
sigri.
Þetta var fyrsti sigur U-21 liðsins í
eitt og hálft ár eða síðan að það hafði
betur gegn Belgíu, 2-1, í fyrsta leik undan-
keppni EM 2013. Liðið tapaði hinum sjö
leikjunum í riðlinum með markatölunni
2-20, auk þess sem það tapaði fyrir Wales
í vináttuleik, 3-0. Strákarnir mæta
næst Armeníu á útivelli þann 6. júní
næstkomandi.
Eyjólfur Sverrisson er þjálfari
U-21 liðsins og hefur verið síðan
í árslok 2008. Hans helsta afrek
var að koma því í úrslitakeppni
EM sem fór fram í Danmörku
árið 2011. Lykilmenn liðsins þá
eru margir hverjir í aðalhlutverki
A-landsliðsins í dag. - esá
Frábær byrjun strákanna í Hvíta-Rússlandi