Fréttablaðið - 27.03.2013, Side 50

Fréttablaðið - 27.03.2013, Side 50
| SMÁAUGLÝSINGAR | Tilkynningar Atvinna 27. mars 2013 MIÐVIKUDAGUR26 Vík í Mýrdal Fjölskylduvænt samfélag í fallegu umhverfi. Mýrdalshreppur er tæplega 500 manna sveitarfélag. Í Vík er öll almenn þjónusta svo sem grunn- leik- og tónskóli heilsugæsla, dvalar og hjúkrunarheimili og frábær aðstaða til íþrótta- iðkunar. Náttúrufegurð er rómuð í Vík og nágrenni og sam- göngur greiðar allt árið. Ferðaþjónusta er öflug og vaxandi í sveitarfélaginu og fjölbreyttir möguleikar á því sviði fyrir fólk með ferskar hugmyndir. Við Víkurskóla, Vík í Mýrdal sem er sameinaður grunn- leik- og tónskóli Mýrdalshrepps eru eftirtaldar stöður lausar til umsóknar. Staða skólastjóra. Starfssvið: • Skipulagning og áframhaldandi þróun nýrrar skólastofnunar. • Fagleg forusta á sviði kennslu og skólaþróunar. • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi, fjárhagsáætlun og rekstri. • Leiðtogi í faglegu starfi nemenda, starfsmanna og skólasamfélagsins í heild. Menntunar og hæfniskröfur: • Kennsluréttindi, framhaldsmenntun í stjórnun og/eða uppeldis og kennslufræðum æskileg. • Reynsla af stjórnun, rekstri og þróunarstarfi. • Sjálfstæði i starfi og skipulögð vinnubrögð. • Hæfni í mannlegum samskiptum. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur einlægan áhuga á og kraft til forustu í skapandi skólastarfi. Staða íþróttakennara. • Tímabundin ráðning næsta skólaár. Hluti starfssviðs íþróttakennara er umsjón íþróttamannvirkja. Staða leikskólakennara. • Föst staða leikskólakennara við leikskóladeild Víkurskóla. Í deildinni eru 25 börn í tveimur deildum og er hún í nýju húsnæði. Þetta er spennandi tækifæri fyrir hugmyndaríkan og jákvæðan kennara til að taka þátt í mótun starfsins á nýjum stað. Umsóknarfrestur er til 5. apríl n.k. Umsóknir skal senda til sveitarstjóra Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870, Vík. Nánari upplýsingar veita: Ásgeir Magnússon sveitarstjóri S. 898-3340, sveitarstjori@vik.is Anna Björnsdóttir skólastjóri S. 487-1242, anna@vik.is Mýrdalshreppur - Austurvegi 17 - 870 - Vík sími 4871210BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071 Auglýsing um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér með auglýstar tillögur að breytingum á deiliskipulagi í Reykjavík. Grandavegur 44. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Lýsisreits vegna lóðar nr. 44 við Grandaveg. Í breytingunni felst heimild til að byggja fjölbýlishús með allt að 144 íbúðum. Á nyrðri hluta verði heimilt að byggja sex til níu hæða byggingu og á syðri hluta, tveggja til fjögurra hæða byggingu. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Rauðarárholt, Brautarholt 7. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Rauðarárholt v/ lóðarinnar nr. 7 við Brautarholt. Í breytingunni felst að horfið er frá atvinnustarfsemi/ stofnun á lóðinni nr. 7 við Brautarholt, en þess í stað rísi á lóðinni byggingar sem hýsi litlar íbúðir / einingar fyrir stúdenta. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 27. mars 2013 til og með 13. maí 2013. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðunni, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega, til umhverfis – og skipulagsviðs, b.t. skipulagsfulltrúa, eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 13. maí 2013. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Reykjavík 27.mars 2013 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Reykjavíkurborg Umverfis- og skipulagssvið Tillaga að breytingum á Stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs auglýsir hér með, skv. 12. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007 og í samræmi við 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006, tillögu að breytingum á Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Vatnajökuls- þjóðgarð ásamt umhverfisskýrslu fyrir breytingarnar. Tillagan er unnin í samræmi við 12. gr. laga um Vatnajökuls- þjóðgarð og byggir á tillögum að breytingum unnum af svæðisráðum fjögurra rekstrarsvæða þjóðgarðsins og á samráði við fjölmarga aðila. Stjórnunar- og verndaráætlunin er stefnumótandi áætlun um stjórnun, skipulag, náttúruvernd og aðra landnotkun í þjóðgarðinum. Um er að ræða fyrstu breytingu á Stjórnunar- og verndar- áætlun frá því að hún var staðfest af umhverfisráðherra þann 28. febrúar 2011. Breytingin felur í sér stækkun vestur- svæðis þjóðgarðsins auk breytinga á vegum og ákvæðum um hefðbundna landnýtingu, tjöldun, hjólreiðar og fleira. Hluti breytinganna varðar atriði sem bundin eru í reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 608/2008 m.s.br. og því gert ráð fyrir að henni sé breytt til samræmis. Tillagan er kynnt með eftirfarandi gögnum: • Stjórnunar- og verndaráætlun með öllum breytingum, sem lagðar eru til frá staðfestri útgáfu, skýrt auðkenndum. • Stjórnunar- og verndaráætlun í breyttri mynd samkvæmt tillögunni, aðeins birt á vef Vatnajökulsþjóðgarðs. • Greinargerð um breytingar samkvæmt tillögunni ásamt umhverfismati áætlunarinnar. • Uppfærður skýringaruppdráttur. Ofangreind gögn má sjá á vefnum www.vatnajokulsthjodgardur.is Gögnin munu liggja frammi til sýnis, á opnunartíma, á eftir- farandi stöðum, frá og með 27. mars til og með 10. maí 2013: Á starfsstöðvum þjóðgarðsvarða í Jökulsárgljúfrum, á Skriðuklaustri í Skaftafelli og á Kirkjubæjarklaustri, á skrifstofu Vatnajökulsþjóðgarðs, Klapparstíg 25-27, 4. hæð, Reykjavík, hjá Skipulagsstofnun Laugavegi 166, Reykjavík og á skrifstofum Þingeyjarsveitar, Skútustaðahrepps, Norðurþings, Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshrepps, Sveitarfélagsins Horna- fjarðar, Skaftárhrepps og Ásahrepps. Allir sem hagsmuna eiga að gæta og aðrir sem áhuga hafa, eru hvattir til að kynna sér tillögugögnin og senda athuga- semdir og ábendingar. Síðasti skiladagur athugasemda er 9. maí 2013. Athugasemdum skal skilað skriflega til Vatnajökulsþjóðgarðs, Klapparstíg 25-27, 101 Reykjavík eða í tölvupósti á net- fangið sogv@vjp.is, með nafni, kennitölu og heimilisfangi viðkomandi. Að loknum athugasemdafresti gengur stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs frá endanlegri tillögu að breytingu á Stjórnunar- og verndaráætlun, til staðfestingar umhverfis- og auðlindaráðherra. 27.3.2013 Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.