Fréttatíminn - 21.10.2011, Page 2
Turninum | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi
Sími 575 7500 | www.veisluturninn.is
Muammar Gaddafi felldur
Áform ríkisstjórnarinnar um að
klára aðildarviðræður við ESB í
tæka tíð fyrir alþingiskosningar
vorið 2013 eru að renna út í sand-
inn. Viðræður eru ekki hafnar í
mikilvægustu málaflokkunum, um
byggðamál, landbúnað, gjaldmiðils-
samstarf og sjávarútveg, og hefjast
ekki fyrr en á næsta ári. Á ríkjaráð-
stefnu í desember er gert ráð fyrir
að sex til átta veigaminni kaflar
verið opnaðir. Ísland getur í fyrsta
lagi gengið í ESB árið 2015. Evran
fæst ekki fyrr en 2017.
Danir, sem taka við formennsku í
ESB um áramót, hafa ekki ákveð-
ið hvort þeir kappkosti að komast
sem lengst með samninginn eða þá
að draga málið á langinn. Auknar
efasemdir hafa grafið um sig meðal
margra fulltrúa ESB um að nægjan-
lega traustur pólitískur bakstuðning-
ur sé fyrir málinu hér heima fyrir.
Töfin skýrist þó fremur af því að
íslensk stjórnvöld hafa dregið lapp-
irnar. Í nýlegum rýniskýrslum ESB
segir að ekki sé hægt að hefja efnis-
legar viðræður í landbúnaðarmálum
og í byggðamálum fyrr en Ísland
skilgreini eigin samningsmarkmið.
Kallað er eftir tímasettri innleið-
ingaráætlun sem landbúnaðarráðu-
neytið hefur ekki enn gefið út.
Embættismenn ESB hafa enn
fremur furðað sig á því hve mikill
munur sé á hæfni íslensku samn-
ingamannanna. Sumir séu afburða-
menn en ekki sé hægt að halda
uppi vitrænum samræð-
um við aðra. Dæmi
séu um að fulltrúar
Íslands skilji ekki
tungumálið sem við-
ræðurnar
fari fram á. Þetta er byggt á heim-
ildum dr. Eiríks Bergmanns sem
fjallar um stöðuna í aðildarviðræð-
um Íslands í hinum vikulega
þætti Heimurinn (bls. 46)
sem er samstarfsverkefni
Fréttatímans og Háskólans
á Bifröst. -jk
Heimurinn eSB-viðræður dragaSt fram yfir koSningar
Vitrænar samræðum ekki mögulegar
við suma samningamenn Íslands
Ísland þykir hreyfa sig mjög
hægt í samningaviðræðum við
fulltrúa ESB. Ljósmynd/
Nordicphotos Getty-Imgaes
Þjóðarráð Líbíu segir Muammar Gaddafi, fyrrverandi einræðisherra landsins, hafa
látist af sárum sínum gær. Gaddafi mun hafa verið í felum í heimaborg sinni, Sirte.
Síðustu hverfi borgarinnar féllu í hendur þjóðarráðsins eftir harða bardaga í gær-
morgun. Talsmaður þjóðarráðsins segir bílalest Gaddafis hafa reynt að flýja borgina
en þá hafi herlið Atlantshafsbandalagsins varpað sprengjum á hana. Hersveitir
þjóðarráðsins hafi handsamað Gaddafi, illa særðan, en hann hafi fljótlega látist af
sárum sínum. Sagt var að hann hefði fengið skot í báða fætur og höfuð. Myndir voru
birtar sem sagðar voru af líki Gaddafis en myndirnar birtust fyrst á á líbísku sjón-
varpsstöðinni Al-Ahrar. Aðrar fréttastofur birtu síðan myndirnar sem þóttu staðfesta
fregnir dagsins þess efnis að einræðisherrann væri fallinn. Gaddafi komst til valda í
Líbíu árið 1969 með byltingu sem herinn stóð fyrir. Hann stjórnaði landinu í 42 ár. - jh
Muammar Gaddafi, fyrrum einræðisherra í Líbíu, var felldur í gær. Ljósmynd Nordic
Photos/Getty Images.
Ofmetið
orkuframboð
Hörður Arnarson, forstjóri Lands-
virkjunar, segir samningaviðræður
við Alcoa um raforkukaup vegna
Bakkaálvers hafa verið á frumstigi,
ólíkt því sem forstjóri Alcoa hefur
haldið fram, að því er Ríkisútvarpið
greindi frá í gær. Alcoa hafi ekki
getað lagað sig að orkuframboði
og Landsvirkjun ekki getað boðið
lægra raforkuverð. Þá hafi álrisinn
viljað sitja einn að samningaborð-
inu og skapa miklar væntingar til
verkefnisins áður en gengið yrði
til samninga. Haft er eftir Herði að
óheppilegt hafi verið hversu ógæti-
lega hafi verið talað um orkuna í
Þingeyjarsýslum, orkuframboð þar
hafi verið ofmetið. - jh
Seðlabankinn fær
ekki fasteignirnar
Bið verður á því að Seðlabankinn fái fasteignirnar
sextíu sem samið hafði verið um í skuldauppgjöri
Seðlabankans og þrotabús SPRON. Heimildir
Fréttatímans herma að uppgjörssamningurinn,
vegna fyrirgreiðsluláns Seðlabankans til SPRON
fyrir hrun, sé í uppnámi þar sem honum hafi
verið mótmælt á fundi kröfuhafa um miðjan
mánuðinn. Fréttatíminn sagið frá því fyrir þremur
vikum að Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ)
væri við það að leysa til sín tuttugu íbúðir og
fjörutíu eignir í atvinnuhúsnæði úr þrotabúi
SPRON. Samkvæmt svörum Seðlabankans þá var
ekki búist við mótmælum á kröfuhafafundinum.
Magnús Pálmarsson hjá eignaumsýslu Dróma,
sem fer með eignir SPRON og dótturfélaga, segir
uppnámið ekkert. Fulltrúi margra kröfuhafa hafi
einungis óskað frekari upplýsinga áður en hann
samþykkti gjörninginn. - gag
HæStiréttur Óvenjuleg uppákoma við málflutning
Samdómararnir Jón
Steinar og Eiríkur
Tómasson tókust á
Til snarpra orðaskipta kom milli samdómara við Hæstarétt í miðjum málflutningi í síðustu viku.
Í fyrri viku varð sá óvanalegi atburður í Hæstarétti að í brýnu sló milli tveggja dómara í miðju
réttarhaldi. Tókust þar á hæstaréttar-
dómararnir Eiríkur Tómasson og Jón
Steinar Gunnlaugsson. Þessir nú-
verandi samdómarar eiga sér reyndar
átakasögu utan réttarsala en þeir hafa
verið vinnufélagar frá því Eiríkur tók
sæti við dóminn fyrr á þessu ári.
Málflutningur stóð yfir í máli ákæru-
valdsins gegn konu sem hafði fengið
tvígreitt fyrir bíl inn á reikning sinn og
nýtt féð, sem var ranglega greitt, í eig-
in þágu. Málið flutti Daði Kristjánsson
saksóknari en verjandi konunnar var
Haukur Örn Birgisson hæstaréttarlög-
maður. Auk Jóns Steinars og Eiríks
var Greta Baldursdóttir dómari í
málinu, en hún var, eins og Eiríkur,
skipuð dómari við réttinn í vor.
Samkvæmt heimildum Frétta-
tímans var aðdragandi átaka Jóns
Steinars og Eiríks ekki langur, að
minnsta kosti ekki í augum
þeirra sem voru á staðnum.
Jón Steinar var að spyrja
málflytjendur þegar
Eiríkur greip fram í fyrir
honum, sem Jóni Stein-
ari mislíkaði augljóslega
mjög. Kom til snarpra orðaskipta milli
samdómaranna og þóttust viðstaddir
jafnvel greina að Jón Steinar hefði gefið
Eiríki olnbogaskot í hita leiksins.
Þegar Fréttatíminn hafði samband
við Jón Steinar vildi hann ekki ræða
þessa uppákomu. „Ég hef ekkert um
málið að segja,“ sagði hann. Svipað var
uppi á teningnum þegar rætt var við
Eirík Tómasson. „Ég tjái mig ekki um
þetta mál,“ sagði hann.
Þegar Eiríkur var spurður hvort sú
lýsing væri rétt að hann hefði fengið
olnbogaskot frá Jóni Steinari, hló hann
við og sagði hana ekki standast: „Nei,
ekki kannast ég við að samdómarar
hafi gefið olnbogaskot.“
Niðurstaða málsins sem var til með-
ferðar hjá Hæstarétti var á þá leið að
dómur Héraðsdóms Vesturlands var
staðfestur með atkvæðum Eiríks og
Gretu. Jón Steinar vildi hins vegar
sýkna konuna af ólögmætri meðferð
fundins fjár.
Konan hafði verið dæmd í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi í
héraði og til að endurgreiða þær 810
þúsund krónur sem hún hafði slegið
eign sinni á. Þess má geta að fyrrum
eiginmaður hennar, sem hafði fengið
hluta af þessum peningum, hafði
verið dæmdur í héraði en ekki áfrýjað
dómnum. -jk
Jón Steinar
Gunnlaugs-
son varð
hæstaréttar-
dómari 2004.
Eiríkur Tómasson var skip-
aður hæstaréttardómari í vor.
Húsakynni Hæstaréttar við Arnarhól. Ljósmynd/Hari
2 fréttir Helgin 21.-23. október 2011