Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.10.2011, Blaðsíða 67

Fréttatíminn - 21.10.2011, Blaðsíða 67
dægurmál 63 Helgin 21.-23. október 2011 UPPLIFÐU JÓLIN Í EINUM GLÆSILEGASTA SAL LANDSINS Jólahlaðborð á LAVA - Bláa Lóninu Helgarnar 25. & 26. nóvember, 2. & 3. desember, 9. & 10.desember og 16. & 17 desember Verð 7.900 krónur á mann Innifalið: Jólahlaðborð, fordrykkur og boðsmiði í Bláa Lónið „Við viljum þakka fyrir alveg einstaklega vel heppnað jólahlaðborð. Við vorum alsæl með allt sem þessu kvöldi tengdist, maturinn var alveg æði, þjónustan framúrskarandi og veitingastaðurinn sjálfur svakalega flottur.“ Starfsfólks Frímerkjasölu Íslandsspósts www.bluelagoon.isBókanir í síma 420 8800 eða sales@bluelagoon.is A N TO N & B E R G U R Hundruð milljóna til góðgerðarmála Brúðarkjóll Kate Middleton hefur dregið 600 þúsund forvitna ferðamenn inn í bresku konungshöllina frá því í júlímánuði og miðasalan hefur halað inn tæpa tvo milljarða króna. Peningarnir áttu upp- haflega að renna í sjóð konungsfjölskyld- unnar sem ákvað þó að gefa meirihlutann til góðgerðarmála. Talsmaður konungsfjöl- skyldunnar lét svo eftir sér hafa að restin af peningunum yrði notuð til að endurnýja listaverk konungshallarinnar. Gagnrýnir holdafar Christinu Raunveruleikastjarnan og fyrrum dópist- inn Kelly Osbourne sýndi á sér klærnar fyrr í vikunni þegar hún gagnrýndi holdafar söngkonunnar Christinu Aguillera. Kelly vinnur á sjónvarpsstöðinni E! og stjórnar þætti sem heitir Fashion Police þar sem hún gagnrýnir stjörnur fyrir bæði fataval og holdafar. „Christina kallaði mig feita í mörg ár en nú er hún þögnuð. Ég var aldrei jafn feit og hún er núna,“ sagði Kelly í þættinum sínum. Y oko Ono er greinilega ein-staklega vel af guði gerð. Á 79. aldursári lætur hún sér ekki nægja að rokka af krafti með Plastic Yoko Ono Band held- ur sinnir hún listinni og ýmsum mannúðarstörfum af krafti. Nýjasta verkefnið á síðarnefnda sviðinu er liðsinni Yoko við Styrkt- arfélag lamaðra og fatlaðra (SLF) hér á Íslandi en hún hannar Kær- leikskúlu félagsins fyrir þessi jól. Þetta er í níunda skiptið sem SLF sendir frá sér Kærleikskúlu og ávallt hafa þekktir listamenn lagt verkefninu lið. Í fyrra var hönnunin í höndum listakonunnar Katrínar Sigurðardóttur, en þar áður hafa meðal annars Erró og Gabríela Frið- riksdóttir lagt verkefninu lið. Allir listamennirnir gefa vinnu sína en kúlurnar eru handgerðar, blásnar og eru því engar tvær nákvæmlega eins Allur ágóði af sölu kúlunnar fer í að auðga líf fatlaðra barna og ung- menna sem dvelja í dvalarbúðum félagsins í Reykjadal, en þar koma fötluð börn og ungmenni saman jafnt sumar sem vetur og sprella ýmislegt saman. Kúla Yoko heitir Skapaðu þinn eigin heim og er til sölu á fjöl- mörgum stöðum, þar á meðal Epal, Kokku, Casa og Þjóðminjasafninu. Þann 1. nóvember stendur Yoko svo fyrir íhugunarstund á heimsvísu til þess að beina athygli að barátt- unni gegn fátækt og hungri meðal barna. Stundina kallar hún „Imagine There's No Hunger“ og biður hún fólk um að staldra við klukkan 17 þetta þriðjudagssíðdegi og leiða hugann að þessu málefni. Kærleiksrík Yoko  Söfnun StYrktarfélag lamaðara og fatlaðra Þann 1. nóvember stendur Yoko fyrir íhugunarstund á heimsvísu til að minna á baráttuna gegn fátækt og hungri barna. Stundin kallast „Imagine There’s No Hunger“ og hefst klukkan 17 að íslenskum tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.