Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.10.2011, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 21.10.2011, Blaðsíða 24
... ég vil endilega eyða þeim fordómum að Ljósið sé eitthvert gráthús þar sem bara er verið að ræða um krabba- mein. Það er fjarri lagi. E rna Magnúsdóttir hug- myndasmiðurinn á bak við Ljósið er glæsileg kona. Hún er í rauðum kjól þegar hún tekur vinalega á móti mér og býður upp á kaffi áður en hún sýnir mér húsið við Langholtsveg. Ljós- ið er draumur sem varð að veruleika. „Ég hafði verið að vinna við að byggja upp endurhæfingu fyrir krabba- meinsgreinda á Landspítalanum,“ segir hún. „Deildin var starfrækt suður í Kópavogi og með mér var sjúkra- þjálfari. Starfsemin blómstraði og við vorum til dæmis með listasmiðju, garð- rækt, hreyfingu og sjálfstyrkingar- námskeið. Þetta var svona sveit í borg, en deildinni var lokað eftir tveggja ára starf vegna sparnaðar. Þá fluttum við á Borgarspítalann í tvö lítil herbergi, Mínar hugmyndir voru miklu stærri og meiri en að vera í tveimur litlum herbergjum á spítala. Ljósið byggir á hugmyndafræði iðjuþjálfunar, þar sem umhverfið skiptir miklu máli. Maður horfir heildrænt á einstaklinginn, fjöl- skyldu hans og allt umhverfið og þess vegna er Ljósið eins og það er.“ Úr djúpum dal upp á fjall Árið 2005 ákvað Erna að stökkva út í djúpu laugina, hvorki með kút né kork og fékk húsnæði í kjallara Neskirkju. „Ég fann að sú aðferðarfræði sem ég vildi nota, virkaði ekki á sjúkra- húsi. Mín hugsjón var nákvæmlega eins og Ljósið er rekið núna: þetta er fjölskylduhús, fólk kemur á eigin for- sendum, er að vinna með sínar sterku hliðar og efla lífsgleðina og orkuna. Mig langaði að láta gott af mér leiða og ég sé að þetta er að virka. Ég fékk fullt af fólki með mér, við bjuggum til viðskiptaáætlun og settum upp stjórn. Við héldum stofnfund í janúar 2006 og stofnuðum sjálfseignarstofnunina Ljósið. Með mér allan tímann hefur verið gott fólk, meðal annars Margrét Frímannsdóttir og Tómas Hallgríms- son sem hafa staðið þétt við bakið á mér. Fyrstu vikuna í Ljósinu í Nes- kirkju komu 20 manns, og svo varð þetta ótrúleg stækkun á mettíma. Um áramótin voru komnir um 70 manns og þá ákvað ég að fara í fullt starf í Ljós- inu. „Ótryggt var með laun en þetta var hugsjón.“ Hún segir Ljósið byggja fyrst og fremst á því að fólk hugi að eigin heilsu: „Fólk á að setja sig í fyrsta sæti, hugsa heildrænt; hvernig er umhverfi þess, vinnan, fjölskylduaðstæður og hvað það getur gert til að byggja sig upp. Við erum ekki að velta okkur upp úr fortíðinni, henni er ekki hægt að breyta. Hingað kemur fólk inn á eigin forsendum, það þarf ekki læknis- vottorð og við tökum á móti þeim með hlýju, bjóðum upp á kaffi, sýnum húsið og segjum frá dagskránni. Við erum þrír iðjuþjálfar sem tökum á móti fólk- inu í fyrsta viðtal, kynnumst því og fólk setur sér markmið með endurhæfing- unni. Þá velur það hvað það vill gera. Þetta er líf þess og heilsa. Sumir mæta einu sinni í viku, aðrir mæta alla daga í allt sem er í boði. Sumir karlmannanna mæta bara á fræðslufundi fyrir karl- menn og það er þeim nóg. Þeir hafa hitt og kynnst öðrum í sömu sporum og það skiptir mjög miklu máli. Margir halda að þeir séu einir með eitthvert vandamál, einhverjar áhyggjur eða hugsanir, en þegar þeir koma í hópinn þá sjá þeir að þeir eru aldeilis ekki einir. Við erum líka með námskeið fyrir nýgreindar konur sem sjá þá að þær eru ekki einar. Oft sjáum við fólk koma niðurbrotið á sál og líkama í fyrsta skiptið. Iðjuþjálfarnir bjóða upp á styrkjandi viðtöl en við getum líka bent á sálfræðinga á Landspítalanum eða geðlækna. Snorri Ingimarsson geðlæknir hefur hjálpað okkur gríðar- lega mikið. Það besta við Ljósið og svo gott fyrir okkur og starfsemina, er að við sjáum fólk blómstra. Það er oft niðri í djúpa dalnum þegar það kemur, en kemur upp fjallið. Það verður kannski aldrei eins og það var, en við sjáum það dafna, og sérstaklega þá sem gefa sér tíma í endurhæfinguna. Ég mæli með því við alla sem greinast með krabba- mein að koma í Ljósið, fá upplýsingar og leiðbeiningar. Sumir eru smeykir við að taka sér frí frá vinnu; en það er enginn ómissandi og vinnuveitendur sem hafa ekki skilning á aðstæðum fólks eftir að það hefur þurft að kljást við krabbamein, ættu að líta sér nær. Maður veit aldrei hver er næstur. Þetta er eins og fara í flugvél þar sem loft- þrýstingurinn fellur. Þú verður fyrst að setja grímuna á þig og svo að sinna umhverfinu.“ Ljósið er ekki gráthús Þegar komið er inn í þetta hús, tekur á móti manni mikil hlýja og ef hægt er að segja að hús umfaðmi mann, þá gerir þetta hús það. „Já, það er gott að þú kemur inn á þetta, því ég vil endilega eyða þeim fordómum að Ljósið sé eitthvert grát- hús þar sem bara er verið að ræða um Það lætur ekki mikið yfir sér húsið við Langholtsveginn, þangað sem þúsundir hafa komið til að sækja sér styrk, gleði og endurhæfingu. Þetta er húsið sem hýsir Ljósið. Þar er forstöðukona Erna Magnúsdóttir en hún er líka hugmyndasmiðurinn á bak við verkefnið og yfiriðjuþjálfi staðarins. Draumur sem varð að veruleika Anna Kristine ritstjorn@frettatiminn.is krabbamein. Það er fjarri lagi. Við höfum heyrt að fólki sé ráðlagt að koma ekki til okkar, því hér sé bara rætt um krabba- mein, en það er algjör firra. Hér er fólk að byggja sig upp og gleyma veikindunum, við notum lífsgleðina og það er mikið hleg- ið hér. Þeir sem hafa fengið krabbamein og koma hingað eru á aldrinum 18 ára upp í 82 ára. Við höldum námskeið fyrir börn krabbameinsveikra frá sex ára aldri og upp í tvítugt og fyrir aðstandendur yfir 20 ára. Barnanámskeiðunum er stýrt af list- meðferðarfræðingi og iðjuþjálfa sem er með sérmenntun í ævintýrameðferð. Þá er farið í tilfinningarnar í gegnum skemmti- leg, uppbyggjandi verkefni.“ Spörum ríkinu tugi milljóna á ári Í ljósi þess þeir sem heimsækja Ljósið í hverjum mánuði eru 300, en þar sem margir koma daglega fer fjöldinn upp í nokkur þúsund á mánuði er ekki annað hægt en velta fyrir sér hvernig starfsemin er fjármögnuð. „Ég hef bara getað fjármagnað fimm stöðugildi, sem er alltof lítið, og ræð svo verktaka en fyrir stærstum hluta launa söfnum við. Það sem mig langar að sjá núna og ætti að vera löngu komið, er þjón- ustusamningur við ríkið. Við höfum í sex ár verið að sanna okkur og sýna og það eru allir sammála um að við séum að vinna mjög gott starf. Þetta er grasrótarhreyf- ing, frumkvöðlastarf og svona miðstöð eins og þessi er ekki til á hinum Norður- löndunum. Við erum alltaf að eyða tíma, krafti og orku í að safna inn styrkjum til að láta ljósið loga. En það er ekki um auð- ugan garð að gresja, það er varla hægt að fá styrki frá fyrirtækjum lengur. Við erum Erna Magnúsdóttir er hugmyndasmiður- inn á bakvið Ljósið: Oft sjáum við fólk koma niðurbrotið á sál og líkama í fyrsta skiptið. Ljósmynd/Hari Framhald á næstu opnu 24 viðtal Helgin 21.-23. október 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.