Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.10.2011, Qupperneq 20

Fréttatíminn - 21.10.2011, Qupperneq 20
T yrkland og Ísland eru í umsókn- arferli um aðild að ESB og því var blaðamönnum frá löndunum boðið til kynningarfunda í Lúx- emborg. „Þessir hópar mættust stundum enda vorum við á sama hóteli og Tyrkirnir. Við vorum samt lítið að blanda geði við þá, minnug örlaga Guddu,“ segir Malín og glottir og hvað hana varðar er ljóst, eftir á að hyggja, að henni var vart óhætt. „Næst síðasta kvöldið fóru flestir Íslending- arnir út á lífið og ég endaði ein með þessum manni í lobbíinu. Við vorum bara að spjalla og ég gerði þau einu mistök að sýna því sem hann hafði að segja um sjálfan sig áhuga. Hann var búinn að vera mjög almennilegur og virkaði mjög hress en virðist hafa misst það á einhverjum tímapunkti. Hann var í for- svari fyrir tyrkneska hópinn og var drjúgur með sig þegar við fórum að tala saman. Hann sagðist hafa gefið út átta bækur og væri opin- ber persóna og valdamikill í heimalandinu.“ Og Guð færði honum konu „Þegar við vorum orðin ein sagði hann mér að hann hefði verið að tala við Guð og hann hefði sagt sér að ég ætti að verða konan hans. Ég sprakk úr hlátri og sagði honum að mér væri alveg sama hvað guðinum hans fyndist. Mér fannst brjálæðislega fyndið að maður sem er eins fráhrindandi og gömul moppa teldi sig geta sagt mér að örlög mín væru ráðin.“ Maðurinn lét viðbrögð Malínar ekki stöðva sig og gerðist æ aðgangsharðari. Hann reyndi að kyssa hana og kjassa og hélt henni nauðugri í um klukkustund og tók á henni þannig að á sá. „Ég var öll blá og marin og grátbað hann um að hætta en þá sagði hann bara: „Hættu að gráta ástin mín. Það er svo sárt að sjá þig gráta.“ Ég er með mannfræðimenntun og hef áhuga á öllu sem viðkemur fólki og ég hef skrifað mikið um ofbeldi, kynferðislegt, and- legt og fjárhagslegt en ég hef sennilega ekki getað sett mig í spor þeirra sem verða fyrir ofbeldi og upplifa svo mikla skömm að þau vilja ekki segja frá. Fyrr en núna. Hann var mjög ágengur og það er magnað að ég skyldi ekkihníga í ómegin af skelfingu,“ segir Malín sem veit ekki betur en árásin sé til á eftirlits- myndböndum hótelsins. Umsátur um hótelherbergi „Við fengum lögregluna ekki á staðinn og vegna aðstæðna var þeim á hótelinu mikið í mun að afgreiða þetta eftir öðrum leiðum. Eftir að ég slapp frá honum áttaði ég mig á því að hann hafði stolið af mér lyklinum af hótelherberginu og þegar ég spurði hann að því hló hann rosalega.“ Lykillinn var gerður óvirkur og Malín komst inn á herbergið sitt en upplifði það ekki sem öruggt skjól. „Hann elti mig enda voru herbergin okkar á sama gangi og svo stillti hann sér upp fyrir framan herbergis- dyrnar og vaktaði það alla nóttina. Þannig að ég svaf ekki mikið og var ekki róleg.“ Maðurinn hringdi látlaust í herbergis- símann og farsíma Malínar þannig að hún brá að lokum á það ráð að taka símann úr sambandi og slökkva á farsímanum. „Ég hlóð svo húsgögnum upp við dyrnar og setti í mig eyrnatappa. Þegar ég kveikti á símanum morguninn eftir sá ég að hann hafði sent endalaust SMS um nóttina.“ Eftir svefnlitla nótt fór Malín í kynnisferð með hópnum morguninn eftir. Madame Lefebeure á flótta „Ég var enn skjálfandi af við- bjóði á leiðinni út í rútu og hvítnaði upp þegar ég sá hann aftur. Það var að vísu gler á milli okkar en hann myndaði orðin I LOVE YOU með vör- unum og mér fannst alveg ótrúlegt að hann væri ekki enn af baki dottinn. En þetta er í síðasta skipti sem ég sá hann.“ Tölvupóstar og SMS héldu þó áfram að berast og Malín taldi öryggi sínu ógnað og gerði hót- elstjóranum grein fyrir áhyggj- um sínum. Ég gaf upp nafnið á honum og hótelstjórinn sagði að hann vissi alveg hvernig svona karlar væru og þau hefðu reynslu af svona „valda- mönnum“ sem telji sig geta komist upp með allt í skjóli valdsins. Hann bauðst því til þess að flytja mig í snarhasti á annað hótel og það yrði séð til þess að enginn vissi hvar ég væri. Þetta var eins og að vera komin í vitnaverndarprógramm. Aðeins tveir úr íslenska hópnum vissu hvar ég var og ég fékk meira að segja nýtt nafn. Ég var skráð á hitt hótelið sem Madame Lefebeure og þannig var ég ávörpuð þegar ég kom þangað. Það fór vel um mig þar en ég var hrædd og fór ekkert út. Enda var kjötbollan, ofsækjandi minn, komin á stúfana og byrjuð að leita að mér. Hann sendi mér þetta SMS: „Ástin mín. Hvar ertu? Þú veist ég elska þig. Ég finn þig ekki og er búinn að leita út um allt.“ Ég svar- aði engu. Aldrei. En hann hringdi stöðugt í farsímann og var búinn að finna netfangið mitt og sendi mér pósta um að hann myndi alltaf elska mig. Og að hann vissi ekki hvað kom fyrir og hvar okkur sinnaðist. Hann hefði áhyggjur og væri furðu lostinn.“ Skelfilegt hneyksli Malín segir íslenska blaðamannahópinn hafa verið mjög samheldinn og brotthvarf hennar hafi ekki farið framhjá ferðafélögunum. Mér fannst allt í lagi að þau fengju að vita hvað hafði komið fyrir. Hópur- inn var svo samankominn í lobbíinu og þau komu auga á Tyrkjann þar sem hann sat við barinn. Þá vatt fréttamaður á RÚV og mikill meistari, sér að honum og spurði hann hvað hann hefði gert við vin þeirra og var mjög ákveðinn. Tyrkja- num var illa brugðið, varð hvumsa og yfirgaf svæðið. Hann sendi mér svo SMS þar sem hann spurði hvað ég hefði eiginlega verið að segja vinum mínum. Hann væri núna grát- andi í herberginu sínu út af þessu. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa eignast svona góða vini í þessum hóp.“ Eftir uppákomuna á hótel- barnum fréttu hinir tyrknesku blaðamennirnir af framferði forystusauðsins og hugs- uðu honum þegjandi þörfina. „Allir tyrknesku blaðamenn- irnir snerust gegn honum. Einn kom til mín með tárin í augunum og bað mig afsök- unar á þessu og sagði allan hópinn skammast sín fyrir þetta. Hann sagði að þetta væri skelfilegt hneyksli og hann vissi ekkert hvernig yrði tekið á þessu þegar hópurinn kæmi aftur heim til Tyrklands en einhver eftirmál hlytu að verða.“ Malín losnaði ekki undan áreitinu þótt hún væri komin heim til Íslands. Áfram héldu SMS-in og tölvupóstarnir að berast. „Þetta endaði með því að Sigurður Már Jónsson, sem leiddi íslenska hópinn í gegnum fundina, sendi greinargerð til European Journalism Centre, lét vita af framferði mannsins. Réttir aðilar fengu þannig vitneskju um málið og mér er sagt að ef hann hafi samband við mig aftur sé hann í vondum málum en ég fékk ekki nánari skýringar á því hvað í því felst,“ segir Malín sem hefur verið laus við ónæði frá ástsjúka Tyrkjanum frá því Sigurður Már sendi EJC erindið. Þolendur eru töffarar Malín segir að rétt eins og fólk telji sig geta forritað sig og ákveðið fyrirfram hvernig það muni bregðast við óvæntum og slæmum aðstæðum hafi hún alltaf séð fyrir sér að ef hún yrði fyrir áreiti eða árás ofbeldisfulls einstaklings þá myndi hún verjast og berjast. „Ég var viss um að ég myndi tryllast og ráða niðurlögum viðkomandi. Ég læt ekki halda mér fastri en svo gat ég hvorki hreyft legg né lið og upplifði þetta fullkomna varnarleysi. Ég er enginn ræfill en þetta er stór og mikill kall þannig að þetta var eins og að vera föst undir vörubíl.“ Þar sem Malín hefur látið kynbundið of- beldi sig varða og fjallað um mál tengd slíku hefur hún fylgst af athygli með biskupsmál- inu og sótti í vikunni málþing í Háskólanum þar sem dr. Marie M. Fortune var aðalfyrir- lesari. „Mér fannst það sem Marie Fortune sagði um það sem menn gera í skjóli valds, klerkar eða yfirboðarar og einhverjir sem maður heldur að maður geti treyst, mjög áhugavert. Hvernig þessir menn nýta vald sitt til þess að ræna fólk frelsinu. Kjarninn í þessu er að tala um þetta. Gerendur ganga oft ansi langt til þess að varðveita leyndar- málin þannig að það má ekki þegja. Ég er ekkert í hjólastól eftir þetta og hann nauðg- aði mér ekki en það skiptir ekki máli hversu alvarleg brotin eru, með því að þegja höldum við þessum verndarhjúpi utanum rasshaus- ana. Ég vil ekki vera fórnarlamb, enda er ég það ekki og finnst þetta orð ekki eiga við í þessum málum. Fólk er engin jarmandi lömb. Þolendur, sem stíga fram og segja frá, eru töffarar en ekki aumingjar. Til þess að upp- ræta skömmina verðum við að sjálfsögðu að tala enda er þetta ekkert til þess að skamm- ast sín fyrir í raun og veru. Skömmin liggur hjá gerendunum. Ég er til dæmis búin að velta því fyrir mér hvað þessi maður hlýtur að vera búinn að komast upp með í heimaland- inu fyrst hann brást svona við höfnun. Ég er ekki sú fyrsta og Guð hefur pottþétt talað við hann áður. Það er á hreinu.“ Mér fannst brjálæðis- lega fyndið að maður sem er eins fráhrindandi og gömul moppa teldi sig geta sagt mér að örlög mín væru ráðin. Malín Brand, aðstoðarritstjóri bleikt.is, er kona sem lætur sér fátt fyrir brjósti brenna en var nokkuð brugðið þegar hún lenti í klóm tyrknesks blaða- manns sem áreitti hana og ofsótti í Lúxemborg í siðasta mánuði. Malin sótti þar fundaröð um Evrópusambandið á vegum Evrópsku fjölmiðlamiðstöðvarinnar ásamt hópi íslenskra blaðamanna. Tyrkinn var þar í sömu erindum en gat ekki séð Malín i friði eftir að Guð hafði tjáð honum að hún ætti að verða konan hans. Malín Brand komst í hann krappan í blaðamannaferð til Lúxemborgar þar sem hún var ofsótt og áreitt af tyrkneskum kollega þannig að um tíma þurfti hún að fara huldu höfði. Hún hafnar því að vera fórnarlamb og segir mikilvægast af öllu að fólk segi frá gerendum sem brjóti á því. Ljósmynd/Hari Ofsótt af ástaróðum tyrkneskum blaðamanni Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is 20 viðtal Helgin 21.-23. október 2011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.