Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.10.2011, Qupperneq 42

Fréttatíminn - 21.10.2011, Qupperneq 42
U ndanfarin miss-eri hafa lands-menn horft á í forundran þegar „bisnessmenn“, sem stundað hafa glæfralegar fjárfestingar og fengið afskrifaðar milljónir, ef ekki milljarða, halda áfram eins og ekkert hafi ískorist. Fyrirtækin skila stórfelldu tapi en ekkert lát virðist á athafnasemi þeirra sem að þeim stóðu. Hvernig gengur þetta upp? Hvernig geta þessir menn rekið fyrirtækin sín í þrot en haldið samt ótrauðir áfram? Er þetta ekki í mótsögn við grunn- atriðin í viðskiptum? Mælikvarði á velgengni í við- skiptum er einfaldur. Fyrirtæki í rekstri þarf að skila hagnaði til þess að hluthafar fái greiddan arð af sinni fjárfestingu. Þegar reikningar fyrirtækis eru gerðir upp er miðað við að fyrirtækið ætli að halda áfram rekstri (e. going concern), en ekki að það verði lagt niður eða leyst upp. Miðað við þann mæli- kvarða hafa þessir menn fallið á prófinu – og það margoft. En í mæli- kvarðanum liggur misskilningur okkar. Þeirra „going concern“ er ekki fyrirtækið og hefðbundnir mælikvarðar viðskipta. Þeir stunda nefnilega ekki við-skipti, heldur eitthvað sem frekar mætti kalla sjálf-skipti. Grunnkenning sjálf- skiptafræðanna: Við- skipti má skilgreina sem gagnkvæman hagnað margra. Sjálf- skipti miða að hagnaði eins á kostnað margra. Eigandi sjoppu getur örugglega fengið sér kók og prins án þess að það veki athygli í bókhaldi fyrirtækis- ins. Kók og prins er nefnilega ekki stórt hlutfall af tug- milljónarekstri. En langi sjoppueig- andann í meira en kók og prins, til dæmis flotta bíla, stór hús, sumar- bústað, tíðar utanlandsferðir og málsverði á fínum veitingastöðum, getur hann ekki tekið slíka fjár- muni út úr rekstrinum. Sjoppa sem veltir 50 milljónum á ári stendur ekki undir 20 milljóna launum eins manns eða 40 milljónum í ferðakostnað, risnu, bílanotkun, fundarhöld, veislur og sölukostnað. Sjoppurekstur telst til viðskipta og því eru takmörk sett hversu miklu er hægt að moka í eigin vasa úr rekstrinum. Hefðbundin velta eins fyrirtækis stendur nefnilega ekki undir arðvænlegum sjálfskiptum. Regla númer eitt í sjálfskiptum: Í viðskiptum er markmiðið að auka hagnað fyrirtækis. Í sjálfskiptum þarf að auka veltuna. Í stað þess að reka „bara sjoppu“ færir eigandinn út kvíarnar og breytir nafninu á fyrirtækinu í Sjoppan-eignarhald ehf. Hann slær þau lán sem hann mögulega getur og stækkar efnahagsreikninginn með skuldsettum yfirtökum á ýmiss konar fyrirtækjum. (Þegar þú kaupir rekstur án þess að eiga fyrir honum kallast það skuldsett yfirtaka). Hann fer með stækk- aðan efnahagsreikning í fleiri banka og fær enn hærri lán en áður. Því fjármagni breytir hann umsvifalaust í hlutafé í enn fleiri uppblásnum efnahagsreikningum. Þannig nær okkar maður að marg- falda þá veltu sem hann stýrir. Ef bankar eru tregir til að lána gerir hann sitt besta til að eignast hlut í banka svo að auðveldara verði að fjarlægja slíkar hindranir. Þegar heildarveltan í eignarhaldsfélagi og dótturfélögum telur orðið milljarða er grunnurinn lagður að arðvæn- legum sjálfskiptum. Þótt afkoman í hverju félagi fyrir sig sé á núlli eða í mínus, skiptir það ekki máli. Heild- armyndin er það eina sem skiptir okkar mann máli; ekki rekstur og afkoma einstakra félaga. Sölukostn- aður, ferðakostnaður, fundarkostn- aður, bílakostnaður eða ráðgjafar- greiðslur upp á tugi milljóna vekja enga sérstaka athygli lengur vegna þess að upphæðin dreifist á mörg félög. Sem starfsmaður, launþegi eða verktaki getur okkar maður nú sótt sér margar milljónir á löglegan hátt. Hlutfallslega tekur hann ekki meira úr veltu samstæðunnar eða heildarinnar en sem nemur kók- flösku og prins í sjoppunni góðu. En fyrir hann sjálfan er þetta sama hlutfall orðið svo miklu verðmætara í krónum talið. Regla númer tvö í sjálfskiptum: Eigin laun, stjórnarsetugreiðslur, ráðgjafargreiðslur, risnu og dag- peninga má margfalda með fjölda stofnaðra fyrirtækja án þess að það veki athygli í bókhaldi hvers fyrirtækis. Ekki skiptir máli hvort framlag viðkomandi er í samræmi við greiðslurnar. Slíkt skiptir aðeins máli í viðskiptum, ekki sjálfskipt- um. Stóri lottóvinningurinn fyrir okkar mann í sjálfskiptum er svo arðgreiðslur. Tekjur og gjöld fyrirtækis eru vissulega eins og sí- streymandi fljót en af praktískum ástæðum þarf að taka stöðu á ákveðnum tímapunkti og gera upp tímabil sem kallast reikningsár. Þótt fyrirtæki skili tapi á heildar- líftíma sínum, og endi jafnvel í þroti, geta eigendur tekið út arð ef einstök tímabil koma út í plús til að byrja með. Með skapandi reikn- ingshaldi og frumlegum viðskipt- um á milli „ótengdra“ fyrirtækja er hægt að sýna hagnað í einstökum fyrirtækjum á stökum árum. Þaðan hefur okkar maður ríkulegan arð. Þótt sama fyrirtæki sýni bullandi tap á næstu árum verður hann ekki krafinn um útgreiddan arð aftur í tímann. Svona getur lífið gengið í nokkur ár, sérstaklega í góðæri eða bóluhagkerfi. Regla númer þrjú í sjálfskiptum: Með auknum fjölda fyrirtækja og „samspili“ við aðra sjálfskiptamenn er hægt að skapa tímabundinn hagnað til að greiða sér út arð. Endanleg gjaldþrot rekstrarfélag- anna eru lítið áfall fyrir okkar mann því velgengni í rekstri var aldrei hans markmið. Hann stundaði sjálf- skipti en ekki viðskipti. Eftir öll þessi ár af háum launum, bónus- greiðslum, risnu, ferðakostnaði, dagpeningum – og auðvitað arð- greiðslum – er persónuleg kenni- tala hans nefnilega í góðum málum og ábyrgðin nær ekki lengra en að innlögðu hlutafé. Lögin um takmarkaða ábyrgð hluthafa voru vissulega sett til að efla viðskipta- lífið en koma nú að góðum notum fyrir þann sem stundar sjálfskipti. Regla númer fjögur í sjálfskipt- um: Sjálfskiptum stafar ekki ógn af gjaldþrotum rekstrar- eða eignar- haldsfélaga. Slíkt skiptir bara máli í viðskiptum. Ef of margir fara að stunda sjálf- skipti í stað viðskipta er hætta á að hagkerfið standi ekki lengur undir sér og hrynji. Fjöldi rekstrar- og eignarhaldsfélaga verður gjald- þrota, afskrifa þarf lán og fjárfest- ingar og ríkið þarf hugsanlega að hlaupa undir bagga með fjármála- og atvinnulífi. Þegar uppbyggingin hefst á ný hefur veikburða við- skiptalíf ekki efni á miklum fjárfest- ingum og verð á fasteignum, fyrir- tækjum og gjaldmiðli snarlækkar. Sú staða hentar okkar manni vel því hann stundaði jú ekki viðskipti, heldur sjálfskipti. Regla númer fimm í sjálfskiptum: Vertu þolinmóður með sjálfskipta- fjármuni þína. Útsölurnar byrja bráðum. Viðskiptasiðferðið Ekki viðskipti ... heldur sjálfskipti Viðskipti má skilgreina sem gagnkvæman hagnað margra. Sjálfskipti miða að hagnaði eins á kostnað margra. Í viðskiptum er mark- miðið að auka hagnað fyrirtækis en í sjálf- skiptum þarf að auka veltuna. Gullsmiðadagurinn laugardaginn 22. október Kíktu til gullsmiðsins þíns. Hann tekur vel á móti þér. Komdu með uppáhaldsskartgripinn þinn og láttu hreinsa hann þér að kostnaðarlausu. Verið velkomin Hafnarfjörður Fríða, Strandgötu 43 Gullsmiðjan, Lækjargötu 34c Sign gullsmíðaverkstæði, við smábátahöfnina Kópavogur Carat, Smáralind Reykjanesbær Georg V. Hannah, Hafnargötu 49 Gull og hönnun, Njarðvíkurbraut 9 Reykjavík Anna María Design, Skólavörðustíg 3 Aurum ehf, Bankastræti 4 Gull og Silfur, á miðjum Laugavegi Gull og silfursmiðjan Erna, Skipholti 3 Gullkistan, Frakkastíg 10 Gullkúnst Helgu, Laugavegi 11 GÞ Skartgripir og úr, Bankastræti 12 Meba, Kringlunni Orr gullsmiðir, Bankastræti 11 Ófeigur, gullsmiðja og listmunahús, Skólavörðustíg 5 Tímadjásn, skartgripaverslun, Grímsbæ Leifur Kaldal gullsmiður www.gullsmidir.is Fjalar Sigurðarson ráðgjafi í almanna- tengslum BESTA TÓNLISTIN FRÉTTIR & SKEMMTILEGASTA FÓLKID 38 viðhorf Helgin 21.-23. október 2011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.