Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.10.2011, Side 68

Fréttatíminn - 21.10.2011, Side 68
Við lífrænt án rotvarnarefna enginn viðbættur sykur Komdu á skemmtilegt námskeið í konfektgerð hjá Matreiðslunámskeið.is. Nú geta allir komið saman á námskeið bæði börn og full orðnir, vinir, saumaklúbbar og vinnuhópar. Hvert námskeið stendur í um tvær klukkustundir. Öll námskeið byrja klukkan 18:00. Námskeiðin eru haldin í viðurkenndu kennslueldhúsi. Þátt- takendur læra grunnatriði súkku laði fræða og búa til sitt eigið konfekt. Allir fara heim með fullt af konfekti. Það er fátt skemmtilegra en að vinna saman í eldhúsinu. Allar upplýsingar og skráning á www.matreidslunamskeid.is DAGSETNINGAR Í BOÐ I 3. nóvember 10. nóvember 17. nóvember 22. nóvember 24. nóvember – BIÐLIS TI Takmarkaður fjöldi þát ttakenda á hvert námskeið Lærðu að gera þitt eigið jólakonfekt Verslun Spilavinir ehf Kostur lágvöruverslun ehf IKEA SI verslun og raflagnir ehf MacLand Klapparstíg 30 Langholtsvegi 126 Dalvegi 10 Hafnargötu 61 2 ummæli 3 ummæli 20 ummæli 12 ummæli 11 ummæli 1 2 3 4 5 Efstu 5 - Vika 42 Topplistinn Jólavökur með Ástu og Valgeiri  HafnarHvoll GlæsileGar stássstofur í söGufræGu Húsi e itthvert stásslegasta hús höfuðborgarinnar er Hafn-arhvoll sem stendur á horni Tryggvagötu og Geirsgötu. Húsið var byggt af stórhug árið 1944 í tengslum við útgerð far- og fisk- veiðiskipa. Tæpum sjötíu árum eftir að það reis er enn ein hæð, sú fjórða, í nánast upprunalegu horfi. Brjóstpanell á veggjum og fiski- beinsparkett á gólfum er tákn um horfinn tíma sem fólk getur nú upp- lifað á nýjan leik fyrir tilstilli Ástu Kristrúnar Ragnarsdóttur og Val- geirs Guðjónssonar. Þau ákváðu að endurvekja stemningu betri stofa eftirstríðsáranna og bjóða svo fólki afnot af húsnæðinu fyrir minni og stærri samkomur. Að sögn Ástu var ekki einfalt að ná saman gömlum húsmunum í svo margar stofur sem fjórða hæðin í Hafnarhvoli geymir. Þau gripu því til þess ráðs að mublera upp með eigin munum sem þau hafa safnað á löngum tíma og eru sumir gamlir ættardýrgripir. „Við erum til dæmis með postu- lín frá langömmu og langafa, Mag- dalenu og Ellerti Schram, sem var skútuskipstjóri. Plussgardínurnar eru úr Hljómskálanum og hafa örugglega engar gardínur á landinu hlustað jafn mikið á tónlist. Ég er með þær í langtímafóstri og þær fá líka að heyra tónlist hér,“ segir Ásta. Sumir munir og húsgögn á staðn- um eru hátt í 300 ára gamlir og því er andrúmsloftið í ætt við safn nema hvað mikið líf er í NemaForum eins og Ásta og Valgeir kalla þetta setur sitt. Þar fara fram jafnt og þétt ýms- ir árstíðabundnir viðburðir, fyrir- lestrar og námskeið en fram undan er einmitt einhver annasamasti tími ársins þegar jólavökur Ástu og Val- geirs fara af stað. Ásta segir að jólavökurnar hafi í byrjun verið haldnar til að gefa er- lendum gestum innsýn í íslenska jólamenningu á íslensku heimili og hafi þá verið haldnar heima hjá þeim hjónum. „Tiltækið spurðist út og smám saman fóru að berast óskir um jólavökur frá vinnustöð- um, vinahópum og stórfjölskyldum, en stærðarinnar vegna eru ekki öll heimili sem bjóða upp á mögu- leikann á að hóa öllum til sín á sama tíma. Á jólavökunum geta líka allir slappað af og notið samverunnar, sem er oftast ekki raunin þegar einn úr fjölskyldunni býður heim því að gestgjafahlutverkið kallar alltaf á sitt,“ segir Ásta. Og það er heimilislegt andrúms- loft á jólavökunum hjá þeim hjón- um. Sögur, söngur og spil með jóla- legri hressingu eftir óskum hópa. Súkkulaði með rjóma og smákökur, jólabrauð eða annað sem bæði yljar og kætir. Nánari upplýsingar er að finna á nemaforum.com. Ásta og Valgeir hafa komið sér fyrir við gömlu höfnina í einu fallegasta húsi borgarinnar: Hafnarhvoli á horni Tryggvagötu og Geirsgötu. Ljósmynd/Hari l eikarinn Orlando Bloom var einn af þeim sem tóku þátt í óvenjulegri auglýsinga- herferð Rag & Bones ásamt konu sinni, fyrir- sætunni Miranda Kerr, fyrr í mánuðinum. Fata- fyrirtækið lét fyrirsæt- urnar hafa fullan poka af fatnaði og eina stafræna myndavél. Þær áttu svo sjálfar að stýra myndatök- unni og fá einhvern náinn sér til að mynda þær. Þetta gerði stjörnuparinu mögu- legt að taka upp auglýsingarnar í Ástralíu þar sem þau voru stödd. Fleiri þekktar fyrirsætur tóku þátt í herferðinni, þar á meðal Kar- olina Kurkova, sem mynduð var af fyrirsæt- unni Helenu Christensen, og Carolyn Murphy sem mynd- uð var af móður sinni. Orlando myndar konuna 64 dægurmál Helgin 21.-23. október 2011

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.