Fréttatíminn - 24.02.2012, Page 6
Sölvi Oddsson með nýjustu tegundina af rafmagns
hjóli. Ljósmynd/Hari
Farartæki Lausn Fyrir FóLk sem viLL Losna við annan bíLinn
Rafhjól ryðja sér til rúms
„Þetta er nú eiginlega allt konunni
minni að kenna. Hún bað mig um að
búa til fyrir sig rafmagnshjól fyrir
rúmum þremur árum. Mér þótti það
ömurleg hugmynd til að byrja með
en svo kom í ljós að þetta var bara
góð hugmynd,“ segir Sölvi Oddsson
orkutæknifræðingur sem rekur fyr-
irtækið Rafhjól ásamt félögum sín-
um. Það sérhæfir sig í því að breyta
venjulegum hjólum í rafmagnshjól.
„Ég lagðist á netið, fann fullt af dóti,
pantaði hitt og þetta og byrjaði að
raða saman. Ég þurfti að prófa mig
áfram en á endanum fann ég búnað
sem ég var sáttur við,“ segir Sölvi
og bætir við að það sem byrjaði
sem fjölskylduhobbý hafi undið upp
á sig. „Félagar mínir vildi líka fá
svona hjól og eitt leiddi af öðru. Ég
rak þetta á minni kennitölu fram á
mitt síðasta ár en þá stofnuðum við
Rafhjól og fluttum í Höfðabakka,“
segir Sölvi. Hann áætlar að selja um
þrjú hundruð rafmagnshjól.
Aðspurður segir hann að fólk
geti komið með hjólin sín og fengið
ragmagnsbúnaðinn settan á. „Gall-
inn við mörg af þessum rafmagns-
hjólum er að þau eru til þess fallin
að hjóla á þeim. Sem er auðvitað
ókostur.“
Og viðskiptavinunum hefur
fjölgað. „Við finnum sérstaklega
fyrir því að fólk er að reyna að losna
við annan bílinn á heimilinu. Ég
hef passað mig á auglýsa ekki neitt.
Ánægðir viðskiptavinir láta vita.
Þannig á það að vera,“ segir Sölvi
sem leggur sig fram um að bjóða
hagstæt verð að eigin sögn. „Við
erum með sambærilegt verð og það
kostar að panta frá Bandaríkjunum.
Þetta snýst ekki bara um að græða
pening. Þetta er líka hugsjón. -óhþ
Frá hjóli til
rafmagnshjóls
Verð: Vinsælasta settið
kostar 135 þúsund
krónur
Tækniupplýsingar: 500
watta mótor og 40
watta rafhlaða
Vegalengd á einni
hleðslu: 25 til 45
kílómetrar (fer eftir
veðri og aðstæðum)
Tími hleðslu rafhlöðu:
5 klukkutímar
Hámarkshraði: Bannað
að fara hraðar en 25
km/klst samkvæmt
umferðarlögum
e rlendir ellismellir eru á góðri leið með að hertaka íslenskt tónlistar-líf. Eagles, Cindy Lauper og Paul
Young komu í fyrra og á þessu ári eru
fyrirhugaðir fimm tónleikar með gömlum
og góðum hljómsveitum og listamönnum.
Unglambið í hóp gömlu tónleikahetjanna
á þessu ári er Elvis Costello en hann verð-
ur 58 ára á árinu. Auk Costello eru það
böndin 10cc og Jethro Tull, James Taylor
og gamla brýnið Tony Bennett sem stíga
á stokk á þessu ári. Fáir ungir tónlistar-
menn eru fluttir inn og segir Guðbjartur
Finnbjörnsson tónleikahaldari, sem flutti
meðal annars inn Cindy Lauper og Paul
Young á síðasta ári og stendur fyrir 10cc
tónleikum í Há-
skólabíói nú í apríl;
ástæðurnar eru
nokkrar fyrir því.
„Það búa bara
þrjú hundruð
þúsund manns á
Íslandi og það er
nær vonlaust að
ná þeim stóru sem
eru á toppnum í
dag. Það er tékkað
á þeim reglulega
en ég get nefnt
sem dæmi að fyrir
sex árum var ég
í sambandi við
umboðsskrifstofu
Bruce Springsteen
og hitti á töfra-
stundina þegar
þeir voru að skipu-
leggja Evróputúr
árið eftir. Ég fékk
svar um að þeir
væru tilbúnir til að skoða Ísland ef ég
væri með þrjátíu og fimm þúsund manna
leikvang eða stærri. Ég sagði þeim að ég
væri með átján þúsund manna stað. Og
fékk á þá leið að það væri of lítið. Og það
var of lítið fyrir þá,“ segir Guðbjartur og
bætir við að stóru nöfnin í dag á borð við
Rihönnu og Justin Bieber séu algjörlega
utan seilingar íslenskra tónleikagesta.
„En ég er viss um að þú færð senda frétta-
tilkynningu frá einhverjum okkar eftir
tuttugu ár þar sem tilkynnt verður að Rih-
anna verði með tónleika í Hörpu. Svona er
okkar veruleiki.“
Guðbjartur segir það líka spila inn í að
þeir sem flytja inn hljómsveitir í dag séu
af eldri skólanum. „Við þekkjum nátt-
úrulega betur þá tónlist sem var spiluð
í gamla daga. Síðan má ekki gleyma að
oft er erfitt fyrir unga krakka að halda út
heila tónleika. Við getum fengið nýstirni
sem eru kannski með eitt vinsælt lag. Síð-
an ertu með gömul brýni sem eiga tíu til
fimmtán vinsæl lög. Annað hvort eru ung-
ir listamenn of dýrir eða þeir eiga bara
eitt lag. Þá er oft betra að taka eitthvað
eldra sem allir þekkja,“ segir Guðbjörn og
þvertekur fyrir að tónleikahald gefi vel af
sér. „Ég er ekki í þessu fyrir peninga. Ég
geti örugglega fundið eitthvað betra að
gera en að stússast í tónleikahaldi. Þetta
er bæði erfitt og áhættusamt. En það er
hins vegar gaman að geta komið með sín-
ar uppáhaldshljómsveitir til landsins. Það
segir sjálft,“ segir Guðbjartur og bætir
við að með tilkomu Hörpu hafi skapast
vettvangur til að flytja inn meðalstóra
listamenn. „Það er frábært að hafa tæki-
færi til að flytja inn listamenn sem eru of
litlir fyrir Laugardalshöll og of stórir fyrir
Háskólabíó. Harpa er sá vettvangur.“
Á síðasta ári flutti Guðbjartur inn Cindy
Lauper og Paul Young sem bæði spiluðu
í Hörpu. Og á milli þeirra var himinn og
haf. Tónleikar Cindy Lauper heppnuðust
frábærlega en tónleikar Paul Young sínu
verr enda kappinn raddlaus. „Eftir þetta
ævintýri með Paul Young fer ég á netið
og tékka á listamönnum áður en ég fæ þá
til landsins. Ég vil ekki fá annan Paul Yo-
ung,“ segir Guðbjartur.
Eftir þetta ævin-
týri með Paul
Young fer ég á
netið og tékka
á listamönnum
áður en ég fæ þá
til landsins.
tónLeikar HeLdri tónListarmenn Hertaka sviðið
Fáum Rihönnu og
Bieber eftir tuttugu ár
Guðbjartur Finn-
björnsson segir stór
stjörnur dagsins í dag
koma til Íslands eftir
tuttugu ár. Ljósmynd/Hari
Íslenskir tón
leika haldarar
flytja inn gömul
brýni þessi árin.
Af átta liðnum
og fyrirhuguðum
tónleikum er
Paul Young sá
yngsti en hann
verður 56 ára
á þessu ári. Sá
elsti er Tony
Bennett en hann
verður 86 ára á
árinu.
Graham
Gouldman er
eini upphaflegi
meðlimurinn úr
10cc sem stígur
á stokk í Há
skólabíó í apríl.
Nordic Photos/
Getty Images
Til hamingju með
framúrskarandi árangur
Við óskum Ágústu Ýri Sveinsdóttur til hamingju með
þær viðurkenningar sem hún hlaut á nýsveinahátíð
Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur, fyrir að hafa náð
bestum árangri allra nemenda á sveinsprófi í rafvirkjun
síðastliðið sumar.
Ágústa lauk starfsnámi sínu hjá álverinu í Straumsvík
undir handleiðslu meistara síns Rúnars Pálssonar en
hann hefur starfað hjá álverinu í ríflega 40 ár.
Metnaður Ágústu er okkur öllum hvatning.
Rio Tinto Alcan
Straumsvík
Pósthólf 244
222 Hafnarfjörður
Sími 560 7000
www.riotintoalcan.is
Ágústa ásamt meistara sínum Rúnari Pálssyni
Ármúli 38 | 568 5150 | gasar.is
Gásar gallerí hefur fengið
viðurkenningu frá Myndstef fyrir
fagleg viðskipti og heiðarleika gagnvart
listamönnum og kaupendum listaverka.
10% + virðisaukaskattur
Söluþóknun
Erum byrjuð að taka á móti verkum fyrir
næsta listmunauppboð okkar.
Áhugasamir hafi samband við Ólaf Morthens
í síma 893 9663 eða oli@gasar.is.
6 fréttir Helgin 24.26. febrúar 2012