Fréttatíminn - 24.02.2012, Blaðsíða 44
36 heilsa Helgin 24.-26. febrúar 2012
F ram til þessa hefur því verið haldið fram að 7-8 tíma sam-felldur nætursvefn sé hollari
mannskepnunni en svefn slitinn í
tvennt af salernisferð, næturheim-
sókn í kæliskápinn eða andvök-
ustöru upp í loftið. Svo þarf þó ekki
að vera, ef marka má nýja sagn-
fræðirannsókn sem BBC greinir
frá.
Breski sagnfræðingurinn Roger
Ekirch hefur sökkt sér ofan í forn
fræði, allt aftur til Homers, og
komist að því að áður fyrr hafi
verið talið fullkomlega eðlilegt að
skipta svefninum í tvennt, jafnvel
með eins til tveggja tíma hléi um
miðja nótt.
Sagnfræðingurinn leitar þó
víðar en til fornra rita til þess að
skjóta stoðum undir mál sitt. Hann
vísar til rannsóknar geðlæknisins
Thomas Alvin Wehr sem kann-
aði svefnvenjur á tíunda áratug
liðinnar aldar þar sem fram kom
að tvískiptur svefntími gæti verið
manninum eðlilegur. Í rannsókn-
arhópi hans bjuggu þátttakendur
við 14 tíma myrkur á sólarhring í
heilan mánuð. Í upphafi sváfu þátt-
takendurnir að meðaltali 11 tíma
samfellt en undir lok mánaðarins
var svefnhegðunin gerbreytt. Þá
sváfu þátttakendurnir að meðal-
tali átta tíma á sólarhring en ekki
í samfellu. Þeir sváfu í fjóra tíma
en vöktu í um tvo tíma áður en þeir
sofnuðu aftur í um fjóra tíma.
Enn sem komið er nýtur þessi
kenning Ekirch ekki víðtæks
stuðnings svefnsérfræðinga en
gæti þó verið huggun harmi gegn
fyrir þá sem stara andvaka út í
loftið, er mikið mál að pissa um
miðja nótt eða freistast til að kíkja
í kæliskápinn á ókristilegum tíma.
- jh
Hentar þeim sem eru að glíma við einkenni frá stoðkerfi
og vilja læra á sjálfan sig og finna sín mörk í hreyfingu.
Mán, mið og föst kl. 16.30 eða 18:30
Mat og ráðgjöf sjúkraþjálfara ásamt kennslu í réttri líkamsbeitingu
Fyrirlestrar um verki, svefntruflanir og heilbrigðan lífsstíl
Verð: 42.400,- (21.200 kr. á mán)
Taktu næsta skref
í átt að betri heilsu!
Faxafeni 14 sími 560 1010
www.heilsuborg.is
Ert þú með verki?
Ný 8 vikna stoðkerfisnámskeið hefjast 12. mars nk.
„Allir verkir hafa minnkað. Ég var áður alltaf svo þreytt og alltaf að leggja mig. Mér finnst
satt að segja að allir sem eru að finna til verkja ættu að koma hingað. Hreyfingin hefur líka
áhrif á alla starfssemi líkamans og svo er þetta gott fyrir sálina. Mér líður miklu betur
og ég er ákveðin í að halda áfram.“
Sólveig Guðmundsdóttir
Þjálfari: María Jónsdóttir
sjúkraþjálfari
næturhvíld SagnFræðikenning
Er tvískiptur svefntími eðlilegur?
Samfelldur 7-8 tíma nætursvefn hefur hingað til verið talinn hollari en sundurslitinn svefn. Breskur
sagnfræðingur heldur því hins vegar fram að tvískiptur svefn sé manninum líka eðlilegur.
Námskeið í ræktun
mat- og kryddjurta
Skráning og upplýsingar í síma 578 4800 og á www.rit.is
Matjurtaræktun, tvö kvöld - Fimmtudagana 1. og 8. mars
kl. 19:30 - 22:00. Verð kr. 12.800.-
Kryddjurtaræktun - Fimmtud. 1. mars kl. 17:00 - 19:00.
Verð kr. 4.500.-
Leiðbeinendur: Auður og Jón
Staðsetning námskeiða:
Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands,
íþróttamiðstöðinni í Laugardal,
Hús 2, 3 hæð, Engjavegi 6.
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011