Fréttatíminn - 24.02.2012, Blaðsíða 62
ÍMARK LúðRAþytuR MARKAðsfóLKs
Leikkonan og grínarinn Anna Svava
Knútsdóttir fór með lítið hlutverk þung-
aðrar unnustu besta vinar aðalgæjans
í hinni grjóthörðu glæpamynd Svartur
á leik sem verður fumsýnd eftir slétta
viku. Anna Svava segist hafa lagt mikinn
metnað í hlutverkið en sú vinna reynd-
ist til lítils því hún var klippt út og sést
hvergi í myndinni.
Persóna hennar er ekki glæpakvendi
þannig að hún kafaði ekki ofan í undir-
heima við undirbúninginn en á móti kom
að hún borðaði ósköpin öll. „Ég átti að
vera ólétt og borðaði mikið af saltkjöti.
Ég fór eiginlega sömu leið og Robert De
Niro í Raging Bull og reyndi mikið að
þyngja mig. Ég fór líka í svona óléttu-
tíma og krækti mér í bjúg.“
Anna Svava sá einnig um leikaravalið í
Svartur á leik en gekk þó ekki svo langt
að ráða sjálfa sig í hlutverk hinnar barns-
hafandi Þóru. „Það var Óskar [Þór Ax-
elsson, leikstjóri] sem gerði það. En þar
sem ég er alltaf með stór brjóst þá voru
þau alveg tilbúin fyrir hlutverkið – ætli
ég hafi ekki fengið hlutverkið út á þau.“
Anna Svava harmar hlutinn sinn ekki
þótt svona hafi farið. „Ég get nú ekki
sagt að ég sé sár. Maður fær borgað
hvort eð er og þá getur maður bara verið
í fleiri myndum. Svartur á leik er svöl og
spennandi glæpamynd og ég hef senni-
lega hvorki verið nógu svöl né spenn-
andi.“ Hún segist einnig bera þess bætur
þó hún hafi lagt mikið hlutverkið. „Já, já.
Það fór bara af. Ég er svo mikill „method
actor“ að bara á meðan ég er að leika þá
gerist þetta. Alveg ótrúlegt með mig,“
segir Anna Svava og hlær dátt.
Anna Svava er reynslunni ríkari eftir Svartur
á leik og segir greinilega mjög gaman að vera
ólétt. „Ég hlakka til að prófa það einhvern
tíma en ég þarf þess eiginlega ekki vegna
þess að ég er búin að því fyrir myndina.“
AnnA svAvA KLippt úR svARtuR á LeiK
Ekki nógu svöl og spennandi
Ef jólin geta
komið í skóg-
inn þá getur
þú komið
heim.
En þar sem ég
er alltaf með
stór brjóst
þá voru þau
alveg tilbúin
fyrir hlut-
verkið.
Sokoloff fór með vaskan hóp í dýpstu myrkur frumskóga Kólombíu og breytti risavöxnum trjám í jólatré sem hreyfðu við
tilfinningum ljóngrimmra skæruliða.
Stöðvaði skæruliða
með jólaskrauti
Íslenskt markaðs- og auglýsingafólk heldur ÍMARK-daginn, árlega uppskeruhátíð sína, hátíðleg-
an í dag, föstudag. Gleðin hefst árla dags með ráðstefnu í Hörpu þar sem einna hæst ber erindi
Kólombíumannsins Jose Miguel Sokoloff sem er ekki síst þekktur fyrir árangursríka markaðs-
herferð gegn FARC-skæruliðinum sem varð til þess að fjöldi þeirra lagði niður vopn og hvarf til
daglegs lífs. Um kvöldið eru síðan veitt verðlaun fyrir bestu auglýsingarnar- og herferðir. Hinn
svokallaði lúður er veittur.
f imm fyrirlesarar taka til máls í Hörpu og fjalla um það nýjasta í snjallsímatækni, vefsíðugerð,
neytendahegðun, áhrifaríkum auglýs-
ingaherferðum og heitustu stefnu og
strauma ársins 2012. Markaðsfólki
þykir ekki síst fengur í að fá að kynnast
Jose Miguel Sokoloff í návígi. Hann býr
að áratuga reynslu úr auglýsingabrans-
anum og tókst með frumlegum aðferð-
um að fá 331 kólumbískan skæruliða
til að leggja niður vopn og fara heim til
sín um jólin. Í erindi sínu fjallar hann
um hvernig breyta megi heiminum
með því að hafa raunveruleg áhrif á líf
fólks og fer yfir aðferðarfræði verk-
efnisins Operation Christmas sem var
sett af stað með það fyrir augum að róa
herskáa skæruliða FARC.
Varnarmálaráðuneyti Kólumbíu leit-
aði til Sokoloffs og fékk hann til þess að
stjórna jólaaðgerðinni sem hefur vakið
heimsathygli. Markmið herferðarinnar
var að fá FARC-liða til að leggja niður
vopn og snúa aftur til samfélagsins sem
löghlýðnir þegnar. Yfirvöld í landinu hafa
í 60 ár barist við liðsmenn þessara elstu
skæruliðasamtaka heims þannig að löngu
var orðið ljóst að vopnaskak stoðaði lítið.
Því var ákveðið að höfða til skæruliðanna,
tilfinninga þeirra og fjölskyldna á býsna
sérstakan hátt.
Sokoloff fór ásamt fylgdarliði sínu inn
í dýpstu skóga Kolumbíu þar sem skæru-
liðarnir halda sig. Fjölfarnar gönguleiðir
voru kortlagðar og stór tré valin í frum-
legt hlutverk.Tvær þyrlur voru notaðar
við að setja 2000 jólaljós á trén. Ljósin
voru síðan tengd við hreyfiskynjara þann-
ig að þegar gengið var framhjá trjánum
lýstust þau upp og vöktu athygli á stórum
skiltum sem letrað var á: „Ef jólin geta
komið í skóginn þá getur þú komið heim.
Leggðu niður vopnin. Um jól er allt hægt.“
Óhætt er að segja að þessi sérstæða
herferð hafi skilað árangri þar sem 331
skæruliði sagði skilið við FARC og sneri
til síns heima.
Þegar landsliðið í markaðsmálum hefur
hlýtt á speki fyrirlesaranna verður skipt
um gír og slegið upp gleðskap í Hörpu þar
sem Lúðrar verða afhentir fyrir þær aug-
lýsingar og markaðsherferðir sem þykja
hafa skarað fram úr á árinu.
toti@frettatiminn.is
Tobba Marínós ætlar að standa í bás með
litlu systur sinni, Rebekku, í Kolaportinu
um helgina og selja föt sem þær systur
hafa ekki pláss fyrir. Meðal þess sem þær
bjóða upp á eru flíkur og skór sem þær
keyptu nýlega í New York. Skóna neyðist
Tobba til að selja vegna þess að hún
mátaði þá með þrútna fætur og þeir eru
því aðeins of stórir. Annars er Tobba að
grynnka á fatahrúgu sinni af illri nauðsyn
þar sem sambýlismaður hennar, Karl
Sigurðsson, Baggalútur og borgarfulltrúi,
þvertók fyrir að hún dröslaði öllum
fatalagernum inn á nýtt sameiginlegt
heimili þeirra í Vesturbænum. Tobbu
tókst þó að semja við kærastann um að
hann færði einnig fatafórn og mun því
falbjóða Brooklyn Five-jakkafötin hans.
Íslensk kona
með lag í
Melodifestivalen
Íslensk kona,
Nanna Sveins-
dóttir, keppti í
hinni geysivin-
sælu forkeppni
Eurovision í Sví-
þjóð um síðustu
helgi – Mel-
odifestivalen.
Nanna ber millinafnið Bjarman og
hefur alla tíð búið í Svíþjóð.
Hin 34 ára Maria BenHajji söng
lagið á laugardagskvöldið síðasta
og heitir það: I mina drömmar.
Hún hefur oft verð í bakröddum
keppninnar en fékk þarna tæki-
færið sitt. Lagið komst ekki áfram
en Maria stóð sig nokkuð vel.
Nanna samdi lagið með Thomasi
Cars og var þetta í fyrsta sinn sem
hún tekur þátt í undankeppninni.
Hún býr í Uppsala í Svíþjóð. Er
hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir.
- gag
Össur fylgist með Borgen
Dönsku sjónvarpsþættirnir Borgen hafa gert það
gott í Danmörku og víðar og Sjónvarpið hefur nú
hafið sýningar á þessum grípandi og spennandi
þáttum um pólitískan hráskinnaleik í dönskum
stjórnmálum. Efniviðurinn er safaríkur og sumir
telja sig stundum geta greint bergmál frá íslenskri
pólitík í þáttunum til dæmis í tilfelli ráðherra sem
sest á ritstjórastól þar sem hann lætur öllum illum
látum. Ætla má að þættirnir höfði ekki síst til fólks
sem lifir og hrærist í stjórnmálum og heyrst hefur
að Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, haldi
mikið upp á þættina og reyni að missa ekki af
Borgen á sunnudagskvöldum.
Tobba selur föt
TILBOÐ
á 1 lítra
Kókómjólk
54 dægurmál Helgin 24.-26. febrúar 2012