Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.02.2012, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 24.02.2012, Blaðsíða 28
28 fréttir vikunnar Helgin 24.-26. febrúar 2012 Slæm vika fyrir Ástráð Haraldsson hæstaréttarlögmann Góð vika fyrir Árna Odd Þórðarson, forstjóra Eyris 32 milljónir voru árslaun Árna Odds Þórðarsonar, forstjóra Eyris Invest, á síðasta ári. Óafturkræf aukaverkun Í bandarísku hernaðartungumáli er til hugtakið „collateral damage“. Það lýsir þeim aukaverkun, skaði sem getur orðið á öðru en skotmarkinu í stríðsaðgerðum. Mannorð Ástráðs Haraldssonar hæstaréttarlögmanns varð fyrir slíkum skaða í vikunni þegar stjórn Fjármálaeftirlitsins lagði til atlögu við Gunnar And- ersen forstjóra stofnunarinnar. Gunnar stendur eftir laskaður en líka Ástráður. Hann hefur verið sakaður um að matreiða pantað álit, þegar fyrra lögfræðiálit dugði ekki til að koma Gunnari frá. Að auki greindi DV frá því í vikunni að hann stóð ásamt mági sínum, þáverandi starfsmanni Glitnis, í sérstöku braski með skuldabréf í Kaupþingi 2008. Skildi það eftir sig 250 milljón króna gat þegar bankinn féll. DV segir féð hafa verið afskrifað, Ástráður segir gjörninginn hafa verið sátt en situr eftir með óafturkræfan blett á mannorði sínu. 4320 vikan í tölum HeituStu kolin á ævintýrinu ætlar ekki að linna Einn umtalaðasti íþróttamaður ársins og þótt lengra sé litið aftur í tímann er Jeremy Lin, leikmaður New York Knicks í NBA körfubolt- anum. Með hann innanborðs hefur liðið unnið 8 af síðustu 10 leikjum sínum stuðningsmönnum liðsins til mikillar gleði. Þeir reyna að finna upp skemmtilegar leiðir til að koma nafni hans á stuðningsskilti og í fyrirsagnir. Nordic Photos/Getty Images umsóknir bárust um leyfi til að veiða hreindýr á þessu ári. Aðeins verður leyft að veiða eitt þúsund og níu dýr. Eyrir uppsker fyrir Marel Stjórn Marels tilkynnti í vikunni að félagið muni greiða um 6,9 milljónir evra, eða um 1,1 milljarð króna, út í arð fyrir árið 2011. Þetta samsvarar um það bil 20% af hagnaði ársins. Stjórnarformaður Marels er Árni Oddur Þórðarson en hann er jafnframt forstjóri og einn aðaleigandi Eyris Invest, sem er stærsti eigandi Marels með um 36 prósent hlut. Árni Oddur er augsýnilega á góðri og öruggri siglingu með sín félög því bæði sýndu glimrandi góða afkoma í því mikla ölduróti sem var á fjár- málamörkuð- um heimsins árið 2011. Biðst afsökunar á bréfaskriftum Ung kona, sem vensluð er Jóni Baldvini Hannibalssyni, segir í tímaritinu Nýju Lífi að hann hafi áreitt sig kynferðislega með bréfaskriftum þegar hún var unglingur. Hún kærði brotin til lögreglu árið 2005 en málið var látið niður falla. Jón Baldvin hefur beðist afsökunar á bréfaskriftunum. Umdeildur tímafrestur vegna fyrirhugaðrar uppsagnar Skúli Bjarnason, lögmaður Gunnars Ander- sens, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, segist ekki líta svo á að frestur Gunnars til að skila inn andmælum við fyrirhugaða uppsögn hafi átt að renna út á fimmtudagskvöld. Stjórnlagaráð kallað saman Meirihluti Alþingis samþykkti í vikunni að kalla stjórnlagaráð saman til fjögurra daga fundar til að fjalla um spurningar og tillögur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis að mögulegum breytingum á frumvarpi ráðsins. Safnasafnið hlaut Eyrarrósina Safnasafnið á Svalbarðsströnd hlaut Eyrarrósina 2012, viðurkenningu fyrir afburða menningarverkefni á landsbyggð- inni. Dorrit Moussaieff forsetafrú afhenti verðlaunin. Fyrrum Kaupþingsmenn ákærðir Sérstakur saksóknari hefur ákært fjóra fyrrum Kaupþingsmenn. Þeir eru: Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri og Sigurður Einarsson, stjórnarformaður, ákærðir fyrir markaðsmisnotkun og Ólafur Ólafsson, stór hluthafi, og Magnús Guðmundsson, framkvæmdastjóri Kaup- þings í Lúxemborg, fyrir hlutdeild í þeim brotum. Markaður fyrir grásleppu í Kína Nýr markaður fyrir grásleppu hefur skapast í Kína, þangað sem hún er seld sem lostæti á veitingastöðum. Útlit er fyrir að nokkur þúsund tonn verði flutt þangað í ár. Þessum fiski var áður hent. Stóra bomban Þóra Tómasdóttir, ritstjóri tímaritsins Nýtt líf, varpaði kjarnorkusprengju í umræðuna á fimmtu- dag með umfjöllun um vafasamar og blautlegar bréfaskriftir Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, til ungrar frænku eiginkonu sinnar. Facebook fuðraði upp og heitar tilfinningar kraumuðu. Eiður Svanberg Guðnason Hin ,,nýja“ blaðamennska. Cui bono? Hverjum til góðs? Kannski sölutölum ritstjórans. Hvað gerir fólk sér ekki að féþúfu? Svei. Helga Kress Ef einhverjum á að sveia, Eiður, þá er það bréfritaranum. Barnaníð í tungumáli. Ekki tilviljun að það eru konur sem koma því á yfirborðið sem átti að þegja um. Heiða B Heiðars Hvað þýðir „Maladomestica 10 punktar“ ? Foj hvað ég er búin að fá mig fullsadda á miðaldra perverta-krumpudýrum. Bjarki Hilmarsson Ég sé einn kost við stóra JBH málið. Ef Nýtt Líf græðir á þessu virkar þetta sem hvati til að fara að fletta ofan af mun ógeðfelldari málum sem við vitum að þjóðþekktir einstaklingar, sem hafa notið verndar valdatoppana, tengjast. Andri Þór Sturluson Og eftir það var hann aldrei kallaður neitt annað en Jón Bréfvin. Kolbrun Baldursdottir Einhverjir mættu vel taka Jón Baldvin til fyrir- myndar hvað varðar að viðurkenna mistök sín og biðjast afsökunar. Engin afneitun, engar réttlætingar. Jónas Kristjánsson Ef aldraður maður sendir stúlku undir lögaldri klámfengin bréf með tilvitnunum í bók Vargas Llosa, er það alvarlegt mál, þótt bók Vargas Llosa sé kannski frekar erótísk en klámfengin, svona fyrir fullorðna. Þórunn Erlu Valdimarsdóttir stend með litlu frænku minni, sammála því að það að birta bréfin hans Jóns Baldvins geti hjálpað öllum að slaka á - svo ferleg spenna fylgdi þessu máli á allan hátt. Litlar stelpur eru sætastar í heimi en það verður að fæla með illu og góðu karla svo þeir láti þær í friði sem kynverur. Guðmundur Rúnar Svansson Hérna, hvað segja lögfræðingar. Er nokkur leið að komast að þeirri niðurstöðu að birting á þessu bréfi óstyttu sé ekki augljóst og gróft brot á friðhelgi einkalífs 3. aðila sem ekki er gerandi í málinu?. Hafþór Ragnarsson Íslendingar: fólk sem tjáir sig um hluti sem það nennir ekki að lesa um fyrst. 7 prósent er aukning loðnu- kvótans fyrir þessa vertíð. Aukning nemur 38 þúsund tonnum og verður kvótinn nú 591 þúsund tonn. 1,05 er meðaltal marka sem argentínski snillingurinn Lionel Messi hefur skorað á þessu tímabili. Messi hefur skorað 42 mörk í 40 leikjum á tímabilinu. 10 milljarðar er verðið sem bú- ist er við að fáist fyrir verkið Ópið eftir Edward Munch á uppboði hjá Sothebys í New York í vor. Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is Borðapantanir í síma 517-4300 Humarsalat & Hvítvín 2.250 kr. Humarsalat með hægelduðum smátómötum, mangó, sultuðum rauðlauk og ristuðum cashew-hnetum ásamt hvítvínsglasi. Bláskel & Hvítvín 2.950 kr. Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt hvítvínsglasi. G e y s ir B istro & Bar FERSKT & FREiSTa ndi Fagmennska í Fy ri rr ú m i SpennAndi sjávarrétta tilBoð M YN D M ar ía B ir ta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.