Fréttatíminn - 24.02.2012, Page 10
Verðlaun FrumkVöðlastarF Ferðaklúbbsins 4x4
Heyrnarlausir jeppa-
menn í vetrarferðir á fjöll
Einlægar óskir heyrnarlausra um það að komast í vetrarferðir á fjöll hafa ræst í samstarfi við
Ferðaklúbbinn 4x4. Félag heyrnarlausra verðlaunaði Litlunefnd ferðaklúbbsins fyrir frumkvöðla-
starfið. Hópur heyrnarlausra jeppamanna stækkar stöðugt.
Ý msir úr hópi heyrnarlausra hafa átt sér þann draum að komast í vetrarferðir á fjöll
á jeppum sínum en það hefur verið
annmörkum háð þar sem mikilvægt
er að vera í talstöðvarsambandi,
komi eitthvað upp á. Í farsælu sam-
starfi Félags heyrnarlausra og Ferða-
klúbbsins 4x4 hefur málið verið leyst
– og það með þeim ágætum að fyrr
í þessum mánuði verðlaunaði Félag
heyrnarlausra Litlunefnd Ferða-
klúbbsins 4x4 fyrir framúrskarandi
frumkvöðlastarf í þágu heyrnar-
lausra.
„Þetta byrjaði með því að það voru
nokkrir heyrnarlausir sem áttu jeppa
en notuðu þá ekki til að fara á fjöll
en höfðu áhuga á að prófa. Þeir leit-
uðu því til okkar til að athuga hvort
hægt væri að fá aðstoð til að komast
af stað,“ segir Ólafur Magnússon,
formaður Litlunefndar. „Við höfum
talsverða reynslu í þessu enda hefur
nefndin staðið fyrir ferðum undan-
farin tíu ár fyrir óbreytta eða lítið
breytta jeppa.“
Hann segir að menn í ferðaklúbbn-
um hafi ekki alveg vitað hvernig þeir
ættu að taka á málinu, meðal annars
ekki kunnað táknmál, en ákveðið að
prófa eina ferð til þess að sjá hvernig
gengi. „Það gekk glimrandi þótt ým-
islegt væri með öðrum hætti en við
vorum vön, meðal annars talstöðvar-
samband milli bíla. Það þurfti því að
leysa málið með öðrum hætti, aðal-
lega ljósablikki,“ segir Ólafur.
Heyrnarlausir eru velkomnir
í ferðir klúbbsins, eins og aðrir,
segir Ólafur, en eftir sérferðina fá
heyrnarlausu jeppaökumennirnir, að
hans sögn, ekki neina sérstaka með-
höndlun. „Þeir koma bara með og
skemmta sér á fjöllum eins og allir
aðrir sem áhuga hafa á því.“ Ólafur
segir að í stórum ferðum klúbbsins
sé skipt í smærri hópa. Hópstjórar
vita þá ef heyrnarlausir eru í hópnum
og haga röð bíla eftir því.
Ólafur segir að jeppahópur heyrn-
arlausra hafa stækkað eftir þetta.
„Þessi ferðamáti fellur þeim vel. Þeir
eru að uppgötva hvaða orka fylgir
íslensku hálendi. Menn sem hafa
komið með sem farþegar hafa jafn-
vel keypt sér jeppa og dæmi eru um
það að þeir sem áttu jeppa fyrir hafi
sett undir þá stærri dekk og breytt
þeim eitthvað. Þetta eru ævintýra-
ferðir en við erum alltaf með reynda
fararstjóra í hópunum. Þetta er því
alltaf í öruggum höndum en við reyn-
um að sjá til þess að ævintýragildið
skerðist ekki.“
Víða hefur verið farið í vetur, á
Langjökul, á svæðið umhverfis
Skjaldbreið, á Kaldadal og nýlega
var farið í Kerlingarfjöll. Ólafur seg-
ir að algengt sé að í slíkum ferðum
séu 40-50 jeppar og í þeim hópi hafi í
seinni tíð oft verið fjórir til sex jeppar
heyrnarlausra.
„Þeir eru komnir á bragðið, komnir
inn í klúbbinn en eru ekkert öðru vísi
en aðrir sem ferðast með okkur. Við
förum mánaðarlega í ferðir yfir vetr-
artímann. Þetta eru fjölskylduferðir.
Fólk er að koma með börnin sín og
prófa. Sumir falla fyrir sportinu og
fara þá hugsanlega í stærri bíla.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Óbreyttir jeppar í fylgd breyttra í vetrarferð við Meyjarsæti. Úr ferð Litlunefndar Ferðaklúbbsins 4x4 með heyrnarlausum.
Lj
ós
m
yn
d/
Ó
la
fu
r
M
ag
nú
ss
on
Þúsundir barna heimsóttu útibú Arion banka um land allt í tilefni af öskudeg-
inum. Í stað þess að fá sælgæti fengu þau sérprentað öskudags-Andrésblað.
Börnin voru hæstánægð með nýbreytnina enda Andrés önd sívinsæll meðal
barna á öllum aldri.
Síðastliðið haust stóð Arion banki fyrir lestrarviku og verður leikurinn endur-
tekinn í apríl næstkomandi. Andrésblaðið sem gefið var á öskudaginn er liður í
að hvetja krakka á öllum aldri til að vera dugleg að lesa sér til skemmtunar.
Fjölmargir skemmtilegir búningar sáust og ljóst að mörg börn lögðu mikla
vinnu í sína búninga eins og meðfylgjandi mynd, sem tekin var í útibúi bankans
við Hlemm, bera með sér.
Arion gaf öskudags-Andrésblað
„Lengsta lögga
landsins“ á bítla-
tónleikum
„Lengsta lögga landsins,“ sjálfur Geir
Jón Þórisson, tekur lagið á bítlatónleik-
um Oddfellowstúkunnar
Baldurs í Háskólabíói
laugardaginn
3. mars. Geir
Jón, sem er
hávaxnari er
aðrir lögreglu-
menn, stýrði
meðal annars
lögregluliðinu
í Reykjavík á
dögum búsáhalda-
byltingarinnar. Eftir að
hann lét af lögreglustörfum hefur hann
setið við skriftir í Vestmannaeyjum en
þar ritar hann sögu byltingarinnar frá
sjónarhóli lögreglunnar. En Geir Jón er
ekki aðeins lögga og mannasættir. Hann
er líka góður söngmaður. Á bítlatónleik-
unum mun hljómsveitin Baldursbræður
flytja lög frá upphafsárum Bítlanna.
Þá rifja félagar úr hljómsveitinni Pónik
upp gamla takta, auk Drengjakórs
Oddfellowreglunnar. Tónleikarnir eru
til styrktar Líknardeild Landspítalans
í Kópavogi. Þar hefur Oddfellowreglan
komið veglega að málum undanfarin
ár og enn bíður hennar stórverkefni
við uppbyggingu þar. Miða má kaupa á
vefnum: skemmtun.oddfellow.is. Dag-
skráin hefst klukkan 20 en húsið opnar
klukkan 18. Stefnt er að því að
gestir taki hressilega undir í
alkunnum lögum og styrki
um leið verðugt málefni. -jh
Elsta bíla-
þvottastöðin
á nýjar slóðir
Elsta sjálfvirka bílaþvottastöðin
sem margir muna eftir úr Sóltúni í
Reykjavík, hefur nú tekið til starfa í nýju
húsnæði að Grjóthálsi 10, á sama plani
og bensínstöð Skeljungs við Vesturlands-
veg. Í boði er tjöruhreinsun, háþrýsti-
þvottur, handþvottur, bón og þurrkun
á 7 mínútum. Bón- og þvottastöðin var
fyrsta sjálfvirka bílaþvottastöð á Íslandi
og var stofnuð árið 1968 í Sóltúni og var
þar í nær 40 ár eða til lok árs 2007.
10 fréttir Helgin 24.-26. febrúar 2012