Fréttatíminn - 24.02.2012, Síða 26
eitt er fyrir atburði eins og veislur og slíkt.
Mér finnst mjög óþægilegt að skoða bókina
að kvöldi ef það hefur ekki verið strikað yfir
allt.“
„Auður undrabarn, ha ha ha“
„Ég var í Grandaskóla, svo í Hagaskóla en fór
ekki í hverfisskólann MR heldur MH. Ég á
auðvelt með nám og hef yfirleitt lokið verk-
efnum snemma og þegar ég var í 9. bekk var
ég að spá í að sleppa 10. bekk. Ég ákvað hins
vegar að gera það ekki heldur taka sjö áfanga
í fjarnámi í 10. bekk og lauk 21 einingu, sem
samsvarar rúmri önn í menntaskóla. Ég sá að
það myndi nýtast mér best í áfangakerfi og
þar sem Menntaskólinn við Hamrahlíð er án
efa besti áfangaskólinn á Íslandi ákvað ég að
fara þangað. Það skemmdi heldur ekki fyrir
að mamma og pabbi höfðu bæði verið þar,
systir mömmu og bróðir pabba og margir úr
fjölskyldunni, allir töluðu vel um skólann.
Þegar ég var í 10. bekk var ég í píanónámi
og borðtennis. Þá ákvað ég að fara í forprófið
fyrir spurningakeppni grunnskólanna. Ég
fékk alltaf svo góðar einkunnir að það hvatti
mig til að taka prófið og var svo valin ásamt
tveimur strákum úr 9. bekk. Þá uppgötvaði
ég hvað spurningakeppni er mikil snilld.
Maður leggur sig fram, lærir hluti, leggur þá
á minnið, fær skemmtilega liðsfélaga, keppir
með þeim og eftir því sem maður leggur sig
meira fram gengur manni betur. Þá var ég
komin með keppnisandann í mig og mikinn
áhuga á spurningakeppnum. Svo fór ég á
kynningardag hjá MH og spyr einn strák
sem ég sá: „Hvað þarf maður að gera til að
komast í Gettu betur?“ Hann sagði, það væri
forpróf snemma á haustin. Svo ákvað ég að
fara á Morfís í Háskólabíó þar sem MH og
MR kepptu. Þar sá ég strák sem ég vissi að
yrði í Gettu betur liðinu. Gekk til hans og
sagði „Hæ, mig langar að komast í liðið, er
eitthvað sérstakt sem ég þarf að læra?“ Hann
sagði mér að læra landafræði, og þegar ég
kom í forprófið hafði ég lært um borgir um
víða veröld og landafræðin bjargaði mér inn
í liðið. Þá var ég komin í Gettu betur og hafði
óskaplega gaman af. Þá las ég bækur um
bókmenntir, listir, íslenska sögu og dægur-
mál.“
Auður segir að það hafi verið algjör draum-
ur að fá að vera með í Gettu betur.
„Þegar í keppnina var komið fékk ég mikla
athygli fyrir það eitt að vera stelpa, sem ég
veit ekki hversu jákvætt er. Það gekk vel í
keppninni og við töpuðum naumlega fyrir
MR-ingum í lokaþættinum. Þegar ég var
á fyrsta ári hringdi blaðamaður af Frétta-
blaðinu í mig og tók símaviðtal og þegar það
birtist fékk ég áfall. Hann spurði hvort ég
væri stressuð í keppni og ég svaraði hreint út:
Nei. En í blaðinu stóð „Já, kannski til að byrja
með en það rjátlast af nú af manni“. Fyrir-
sögnin var „Undrabarnið í Gettu betur“. Það
kom hvergi fram í greininni að ég væri betri
en einhver annar og vinir mínir gera enn grín
að mér: „Auður undrabarn, ha ha ha“
Vafasamur heiður...
„Á öðru ári gekk svolítið verr í Gettu betur,
þá duttum við út í átta liða úrslitum en í
fyrra, síðasta árið, var ég orðin fyrirliði. Það
var mjög gaman að æfa fyrir þættina. Við
vorum kát og glöð í keppninni og þá fór ég
að pæla í því að þú getur gert margt meðan
þú ert í sjónvarpinu. Á öðru ári í MH fékk ég
verðlaun fyrir að vera eina stelpan í keppn-
inni, sem mér fannst satt að segja vafasamur
heiður. Þessi keppni er gott tækifæri til að
vera fyrirmynd, að mæta í sjónvarpið, vera
stelpa sem hefur eitthvað að segja og stendur
sig vel. Að vera fyrirmynd hefur verið mark-
miðið hjá mér í borðtennis og það er mikil-
vægt fyrir stelpur að sjá aðrar stelpur í keppn-
inni svo þær geti sjálfar ímyndað sér að vera
með. Í stjórn Nemendafélagsins MH voru í
fyrravor sex stelpur í sjö manna stjórn, en
þannig var því ekki farið i öðrum skólum. Ég
sá fyrir mér að stelpur sem sjá MH stelpum
ganga vel, velji frekar þann skóla.“
Ertu femínisti?
„Já, ég hef samt velt því fyrir mér hvort
það orð er sniðugt. Margir sem eru hrifnir
af kynjajafnrétti vilja ekki kalla sig femín-
ista, heldur jafnréttissinna því orðið femínsti
hefur af ýmsum ástæðum fengið á sig nei-
kvæðan hljóm. Mér finnst bara sjálfsagt að
fólk geri sér grein fyrir því að það er sjálfsagt
að kalla sig femínista því að þar sem konur
standa vel að vígi eru lífsgæði almennt betri.
Afhverju ekki að vinna að jafnrétti og stuðla
að almennum lífsgæðum. Ég er alveg á því að
það eigi að styrkja stelpur á mörgum sviðum
því það skortir á jafnrétti mjög víða.“
Pínu skitsó
Auður Tinna var á nítjánda ári þegar hún lauk
stúdentsprófi á þremur árum í stað fjögurra
og þar að auki af þremur brautum.
„Ég var pínu skitsó. Ég tók náttúrfræði-
braut og fannst hún ekkert mjög skemmtileg,
svo ég bætti tungumálabraut við, en sá að
ég myndi ekki leggja fyrir mig tungumál og
skráði mig þá á félagsfræðibraut. Ég tók 171
einingu í staðinn fyrir 140. Ég skipulagði
þetta bara vel og lauk stúdentsprófi í fyrra á
öllum þessum sviðum.“
Svo fór hún á Háskóladaginn og var aðal-
lega að velta fyrir sér stjórnmálafræði og
kynjafræði en líka lögfræði, sem varð svo
fyrir valinu.
„Mér fannst lögfræðin mest heillandi, því
ég sá að ég gæti líklega haft mest góð áhrif ef
ég lærði lögfræði. Ég hef mjög mikinn áhuga
á menntakerfinu. Sjálf var ég alltaf á undan
með verkefnin og þurfti að fá aukaverkefni
til að hafa eitthvað að gera meðan góðar
vinkonur mínar þurftu sérkennslu í íslensku
og stærðfræði. Ég sá margt sem er ábóta-
vant á báðum endum. Mér finnst til dæmis
mjög ábótavant að ekki sé kennt hvernig þú
átt að gera skattskýrslu, hvernig lán þú átt
að taka og hvernig lán þú átt ekki að taka –
bara svona fjármálafræðslu fyrir daglegt líf.
Stærðfræðikennslan snýst um algebru – það
er eins og verið sé að búa alla undir að fara
í verkfræðinám. Ég las um daginn að um 10
prósent Íslendinga séu í vanskilum og það
eru alltof margir sem kunna ekki að vinna
úr fjármálum í daglegu lífi. Í lögfræðinni er
ég að læra allar leikreglurnar og mögulega
hvernig hægt er að breyta þeim til hins betra.
Mér finnst þetta mjög spennandi og mikil-
vægt að fólk viti rétt sinn. Ég er með mjög
sterka réttlætiskennd og hún kemur úr upp-
eldinu.“
Ertu búin að ákveða hvernig lögfræðingur
þú vilt verða?
„Nei, ég er ekki komin svo langt, en mig
langar að verða lögfræðingur sem leggur eitt-
hvað til samfélagsins og hafa áhrif í mennta-
málum eða alþjóðamálum Íslands. Ég hef svo
mikið að gera núna að ég get ekki hugsað
þetta alveg til enda. Auk þess að þjálfa borð-
tennis er ég að þjálfa lið MH fyrir Gettu betur
sem fer að byrja í sjónvarpinu. Svo er ég líka
komin í stúdentapólitíkina og er í mennta-
málanefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands.“
Gaman af að vita allt
Þegar Auður lítur um öxl til áranna í grunn-
skóla segir hún að áttundi bekkur sé mesti
þrýstihópur sem er til.
„Þegar ég var í áttunda bekk var ég mjög
upptekin af að klæðast eins fötum og hinir,
hafa mig ekki of mikið í frammi í tímum
þótt ég vissi svörin, til að allir fengju ekki þá
ímynd af mér sem ég hafði haft í grunnskóla
að ég væri nörd.“
En ertu nörd?
„Já, ég hef svo vandræðalega gaman af
að vita allt. Vissulega er ég nörd og er stolt
af því. Ég var með það markmið að nýir
bekkjarfélagar fengju ekki þá ímynd af mér
að ég lægi alltaf í bókum. Það gekk ekkert
rosalega vel því einu sinni þegar ég var að
fara af skólaballi, eltu strákar mig og sungu
lag: „Auður Tinna fer heima að læra, heim
að læra, heim að læra.“ Ég sneri mér bara við
og sagði: „Nei, ég er að koma af balli og er að
fara að sofa!“ Fólki er strítt fyrir alls konar
hluti og maður verður bara að takast á við
það. Eina sem fór fyrir brjóstið á mér var að
einn skólafélagi minn lagði mig í einelti og
sagði mér að ég væri ljót og bólótt. Það tók
mig svolítinn tíma að sjá að þetta var ekkert
svona. Langflestir sem ég þekki hafa áttað
sig á að þeir voru lagðir í einelti í grunnskóla.
Ég hætti bara að hugsa um þennan strák,
lagði harðar að mér við námið, píanóleikinn
Auður Tinna þjálfar stelpur í borðtennis hjá KR. Hér er hún með þremur stelpum úr yngri flokknum.
Fjórtán Íslandsmeistar-
titlar í borðtennis
Þegar Auður Tinna var tíu ára fór hún að æfa borð-
tennis og æfði og keppti af kappi þar til hún varð
sextán ára. Á þessum árum náði hún sér í fjórtán
Íslandsmeistaratitla!?
„Já en þú verður að taka til greina að það er hægt
að ná sér í þrjá til fjóra Íslandsmeistaratitla á einu
ári í sínum aldursflokki: einliðaleik, tvíliðaleik,
tvenndarleik og liðakeppni. Svo keppti ég að
gamni í fyrra með vini mínum og við náðum Íslands-
meistaratitlinum í tvenndarleik í okkar aldursflokki.
Þegar ég var í tíunda bekk byrjaði ég að þjálfa
stelpur í borðtennis hjá KR, en hætti svo þegar ég
var komin í MH og fór að keppa í Gettu betur. Ég var
líka farin að fá smá leiða á að keppa alltaf við sömu
stelpurnar í borðtennis, vinkonur mínar, en það eru
of fáar stelpur sem stunda borðtennis hér á landi.
Ég fékk þó ekki lengi hvíld frá þeim heimi, því einu
og hálfu ári síðar hringdi Einar, yfirþjálfari hjá KR
í mig og spurði hvort ég vildi ekki takast á við það
verkefni að byggja upp stelpustarfið hjá KR. Og
afþví ég á svo erfitt með að segja nei, sagði ég bara
OK. Þannig að núna hef ég verið í tvö ár yfirþjálfari
stúlknaflokka í borðtennis hjá KR. Ég er með tvo
hópa og er eini þjálfarinn á landinu sem er að þjálfa
sérstaka stelpuhópa, aðrir eru með stelpur í blönd-
uðum hópum. Þetta er eitthvað sem mér finnst
mjög mikilvægt að gera því ég held að allir hafi
svo gott af að stunda íþróttir og vera í því félagslífi
sem þú færð í tengslum við það. Mig langar að gera
góða hluti fyrir þessar stelpur og það er gott fyrir
íþróttina að fá fleiri stelpur inn í borðtennis.“
„Ég þekkti Óttar Proppé og Börk
Gunnarsson sem eru í Reykjavík-
urliðinu með mér nákvæmlega
ekkert. Ég var í útskriftarferð á
Spáni þegar Sif Gunnarsdóttir
hjá borginni hringdi og bað mig
að taka þátt því henni hafði þótt
ég skemmtileg í Gettu betur.
Reykjavíkurborg hefur aldrei
tekið neinn úr Gettu betur í Út-
svar, þeir hafa tekið fólk sem er
áberandi og síður tekið unglings-
nörda svo ég sagði bara já. Hún
sagði mér að Óttar Proppé væri í
liðinu sem mér fannst töff því ég
hafði farið á tónleika með honum
og svo kom Börkur Gunnarsson
inn í þetta. Þeir eru ári eldri og
ári yngri en pabbi minn, svo þeir
eru af allt annarri kynslóð en ég.
Við höfum verið dugleg að hitt-
ast, æfa okkur að leika, horfa á
gamla þætti og þá er auðveldara
að taka ákvarðanir af því að við
vitum hver er góður í hverju.
Við horfum á fréttir og æfum
leikinn. Útsvar er miklu meiri
skemmti- og fjölskylduþáttur en
Gettu betur, svo ég gæti þess að
vera kurteis og góð fyrirmynd
í sjónvarpinu og svara því sem
Liðsfélagarnir af sömu kynslóð og pabbinn
ég get. Þótt mér finnist mjög
skemmtilegt að æfa fyrir Útsvar
finnst mér ennþá skemmtilegra
að þjálfa keppnisliðið í MH, en þar
eru bara strákar í liðinu. Ég held
að ástæðan fyrir þessu sé sú að
strákar eru aldir upp í því að láta
meira í sér heyra en stelpur. Það
hefur verið rannsakað að kenn-
arar hafa minna þol fyrir því að
stelpur séu með læti í bekkjum en
strákar, þeir fá að vera háværari,
svo það er ekkert skrýtið að þegar
það er haldið forpróf fyrir svona
keppni hafa strákar meiri áhuga.
Það er fullt af klárum stelpum sem
þora ekki í forprófið. Sú stelpa
sem mér hefur fundist best í Gettu
betur frá upphafi mætti ekki í
forprófið. En af því það mætti
engin stelpa var haldið forpróf
fyrir stelpur og hún rúllaði því
upp. Þannig að þetta er samspil
af feimni og því að þær sjá sig
ekki í hlutverkinu. Ástæðan fyrir
að ég tók þátt í þessu var að ég
hafði tekið þátt í spurningakeppni
grunnskólanna, en mamma sagði
við mig að ég gæti alveg tekið þátt
í þessu. Það endaði með að ég
gerði það og fann mig vel í þessu
hlutverki.“
„Ég gæti þess að vera kurteis og prúð í sjónvarpinu“ segir hún um
þátttöku sína í Útsvari þar sem hún hefur einmitt vakið athygli fyrir
fallega framkomu og ótrúlega visku.
26 viðtal Helgin 24.-26. febrúar 2012