Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.02.2012, Síða 27

Fréttatíminn - 24.02.2012, Síða 27
nýtt barnavítamín tuggutöflur vítamín-fjölskyldan Vítamín sem mæta þörfum allra á heimilinu íslensk framleiðsla litlar töflur nýtt og betra bragð sjá nánar á Vitamin.is icepharm a GRRRillandi gott í allan vetur 2 FYRIR 2500 Gr i l lhús ið Tr yggvagötu og Sprengisandi , s ími : 5275000, www.gr i l lhus id . is Funheitir vetrardagar Nú gerum við okkur glaðan dag Þú velur 2 aðalrétti af 14 á matseðli og greiðir eingöngu fyrir báða réttina Sticky Wings 12 stk. kjúklingavængir Fiskur og franskar Gringo kjúklingavefja Grillhúss Rock Rolls Sesar salat Sesar salat með kjúkling Route 66 Grillhússborgarinn Alvöru ostborgari Tex-Mex hamborgari West Side Story borgari Blue Moon borgari Classic Rock borgari Rock‘n roll svínarif ½ skammtur og borðtennis. Nú á ég yndislegan kærasta sem er duglegur að segja mér að ég sé sæt og alls konar jákvæða hluti. Kærastinn minn heitir Haukur Óskar Þorgeirs- son og hann er í stærðfræði- og tölvunarfræðinámi í Háskólanum. Við Haukur Óskar útskrifuðumst saman úr MH og byrjuðum á sama tíma í Háskólanum.“ Trúirðu á ást við fyrstu sýn? „Nei, ég trúi ekki á ást við fyrstu sýn, ég held að ást sé eitthvað sem þróast. En ég trúi á hrifningu við fyrstu sýn.“ Vill helst ekki keppa á móti Garðabæ En ræðum aðeins um Útsvar. Nú eruð þið komið í átta liða úrslit og þú virðist ekki vilja keppa á móti Garðabæ. Hún skellihlær að þessu: „Það er eiginlega vegna þess að félagi minn hann Elías Karl Guðmunds- son keppir fyrir Garðabæ og ég vil síður keppa á móti honum. Við kepptum nefnilega gegn hvort öðru í Gettu betur og þar tapaði ég fyrir honum og ætla ekki að gera það aftur!“ Hvernig vinur myndirðu segja að þú værir? „Ég er traustur vinur. Ef ég seg- ist ætla að gera eitthvað þá geri ég það. Og ég er góður hlustandi.“ Sérðu þig fyrir þér búa áfram á Íslandi eða hyggstu flytja til út- landa? „Mér finnst mjög gaman að ferðast og hef farið í borðtennisferð- ir um alla Evrópu. Foreldrar mínir hafa líka verið duglegir að ferðast með okkur til útlanda, en Ísland er landið mitt og þótt ég hyggi á fram- haldsnám í útlöndum mun ég koma aftur heim. Þetta er samfélagið sem ég hef alist upp í og það er hér sem ég vil hafa áhrif.“ Auður segist slaka best á þegar hún er innan um fólk. „Þegar ég var í grunnskóla var ég mikið ein að lesa, en núna líður mér best með kærastann mér við hlið og góða vini. Þegar ég vil slaka á hringi ég í þau eða hitti þau. Ég á marga vini og vinahópa sem ég hitti oft. Ég er líka í félagi kvenna sem hefur keppt í Gettu betur og það eru virkilega skemmtileg kvöld. Þá horfum við á spurninga- þætti, förum í Pub Quiz og fleira.“ Eru fjölskylduböndin sterk? „Já þau eru mjög sterk. Til dæm- is förum við næstum öll sunnudags- kvöld til föðurömmu og afa í kvöld- verð. Við fjölskylda mín, bróðir pabba og langamma. Þau koma líka flest í sjónvarpssal að horfa á mig keppa. Ég hefði skilið það ef fólk vill horfa á þetta heima, en pabbi og Þórólfur afi koma til dæmis alltaf. Á föstudaginn var komu níu manns. Það er mjög gott að vita af þeim í salnum.“

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.