Fréttatíminn - 24.02.2012, Qupperneq 29
Ferming
Kynningarblað Helgin 24.-26. febrúar 2012
Við gerðum leik
að því í boðs-
kortinu að láta
fólk svara spurn-
ingu um hvort
barnanna fædd-
ist á undan ...“
Ó
löf Birna Garðarsdóttir, eigandi Reykja-
vík Letterpress, fermdi tvíburana
sína, þau Örnu Petru og Garðar Stein,
á hvítasunnunni í fyrra. „Þetta var
rosalega skemmtilegur undirbúningur.
Ég áttaði mig fljótt á hversu ólík þau eru þegar kemur
að svona löguðu. Arna Petra sýndi undirbúningnum
öðruvísi áhuga, vildi taka þátt í öllu en Garðar Steinn
hafði að sjálfsögðu líka sínar skoðanir á hlutunum en
fannst samt aðalatriðið að þetta yrði skemmtilegt.“
Ólöf Birna segir það mjög skemmtilegt að fá að
fylgjast með sitt hvoru kyninu á þessum tímapunkti.
Stelpur hafi um svo margt að hugsa og stússast en
strákarnir séu kannski sneggri að velja sér jakka-
föt og skó. „Það eru allir þessir litlu hlutir sem svo
margar stelpur eru farnar að leggja upp úr í dag;
strípur, eyrnalokkar, sokkabuxur og hárgreiðslan. Á
einhverjum tímapunkti var því líka varpað fram hvort
þau gætu ekki haft sitt hvorn daginn. Við foreldrarnir
hlógum nú að því, þetta er stór dagur og ekki hægt
að bjóða fólki tvisvar en það er eðlilegt að tvíburar
velti þessu fyrir sér, að þurfa að deila deginum með
öðrum. Auðvitað er gaman að eiga sinn eigin dag en
þau eru svo góðir vinir að það var ekkert mál.“
Veisla úti í guðsgrænni náttúrunni
Ákveðið var að halda veisluna uppi í sveit og tjalda
úti. Ólöf Birna segir að sveitastemningin hafi verið
allsráðandi og þemaliturinn því auðvitað grænn.
„Boðskortið var í náttúrustíl, með grænum aðallit
og gaf það tóninn. Við gerðum leik að því í boðskort-
inu að láta fólk svara spurningu um hvort barnanna
fæddist á undan, gestirnir tóku með sér svörin og
settu í pott. Tjaldið var skreytt með greinum og lif-
andi blómum, grænum blöðrum og pappaluktum í
stíl. Við vorum með græn pappaglös og diska, grafík
úr boðskorti var prentuð á servíettur og merkingar
á eitt og annað til að skreyta á matarborðinu og í
tjaldinu. Okkur langaði að vera með ljósmyndir af
krökkunum og límdum þær á pappaspjöld sem voru
síðan hengd upp á snúru meðfram veggjum með
þvottaklemmum sem var búið að mála grænar – að
sjálfsögðu!“
Dýrmæt stund með fjölskyldu
Markmiðið var að skapa afslappaða og notalega
stemningu í sveitasælunni og segir Ólöf að allir
hafi verið tilbúnir að hjálpa til við undirbúninginn
sem varð því mjög dýrmæt stund með fjölskyldu og
vinum. „Við gerðum mjög mikið sjálf. Við lögðum
upp með að hafa mat sem börnunum fannst góður;
míníhamborgara, kleinuhringjafjall og marengstert-
ur, svo eitthvað sé nefnt. Garðar Steinn græjaði svo
skilti úr spýtu sem á stóð „Ferming“ og leiðbeindi
gestunum að veislunni.“ Viku fyrir veisluna fóru
börnin svo í myndatöku út í Gróttu. „Við létum taka
fjölskyldumynd í leiðinni og fengum svo líka stúdíó-
mynd af þeim. Okkur fannst best að gera þetta í
rólegheitum. Arna Petra fékk létta prufugreiðslu
fyrir myndatökuna hjá frænku sinni.“
„Eitt það skemmtilegasta sem við gerum hjá
Reykjavík Letterpress er að taka þátt í svona
undirbúningi. Að vinna vel í góðu boðskorti
gefur tóninn. Oft er útlitið á boðskortinu fært
áfram og haft í stíl við servíettur, kerti, merk-
ingar fyrir matinn og fleira. Vinsælt er líka
að tengja grafíkina við áhugamál unglingsins.
Hjá okkur getur fólk annað hvort valið úr fyrir-
liggjandi hönnun eða komið með séróskir og þá
hönnum við sérstaklega eftir þörfum hvers og
eins.“
12 mánaða vaxtalausar greiðslur
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
Fermingartilboð
Gerið GÆÐA- og verðsamanburð
10.000 kr.
vöruúttekt
fylgir öllum
fermingarrúmum
Stærð Verð
120x200 109.900 kr.
Stærð Verð Tilboð
120x200 84.900 kr. 79.900 kr.
SAGA/FREYJAVALHÖLLNý hönnun
tvíburaferming
Tvíburar deila stóra deginum
Ólöf Birna Garðarsdóttir. Markmiðið
var að skapa afslappaða og notalega
stemningu í sveitasælunni.