Fréttatíminn - 24.02.2012, Qupperneq 50
42 bíó Helgin 24.-26. febrúar 2012
G ina Carano leikur Mallory Kane, út-sendara einkafyrirtækis sem tekur að sér ýmis vafasöm skítverk fyrir
bandarísk yfirvöld. Eftir að hafa lokið verk-
efni í Barcelona kemst hún að því að hún hefur
verið leidd í gildru og að vinnuveitandi hennar
vilji hana feiga. Hún lætur vitaskuld ekki bjóða
sér svona stæla, snýr vörn í sókn og rekur upp
samsærið gegn henni með barsmíðum og
skotbardögum.
Sagan segir að Soderbergh hafi fengið hug-
myndina að Haywire þegar hann lá í makind-
um fyrir framan sjónvarpið eitthvert laugar-
dagskvöldið og horfði á stelpuslagsmálaveislu
á CBS. Þar steig Gina Carano fram í miklum
jötunmóð og leikstjórinn hreifst umsvifalaust
af kraftinum og hörkunni sem slagsmálastelp-
an sýndi í hringnum.
Á meðan á djöfulganginum gekk á skjánum
fór Soderbergh að velta fyrir sér hvernig á
því stæði að Angelina Jolie væri eina kon-
an sem virðist hafa leyfi til þess að sveifla
byssum og berja fólk í kássu á hvíta tjaldinu.
Eigin spurningu hefur hann nú svarað með
Haywire og með slíkum látum að gagnrýn-
andi kvikmyndatímaritsins Empire mælir
eindregið með því að Angelina fari að endur-
nýja líkamsræktarkortið sitt. Carano muni
svo sannarlega gera tilkall til stöðu hennar í
hasarmyndabransanum.
Carano er grjóthörð í raun og veru eins og
ferill hennar í bardagalistum ber með sér og
leikur í áhættuatriðum sínum sjálf. Þar er hún
á heimavelli en eitthvað þykir leikhæfileikum
hennar ábótavant að öðru leyti. Soderbergh
kaus engu að síður að veðja á dömuna og
myndin er í raun sniðin utan um Carano. Hann
umkringir hana svo toppleikurum þannig að
hér er í raun B-mynd á ferðinni, mönnuð fólki
úr A-flokki ásamt aðalleikkonu sem stendur
hinum langt að baki á leiksviðinu.
Toppmennirnir Ewan McGregor, Michael
Fassbender, Antonio Banderas, Bill Pax-
ton og Michael Douglas láta hér allir til sín
taka auk Channing Tatum og Michael Ang-
arano. Paxton leikur föður Carano en hinir fá
flestir að kenna á hnefa hennar og reiði.
Þessi blanda Soderberghs virðist ganga vel
upp og myndinni hefur verið vel tekið af gagn-
rýnendum þannig að þegar 152 dómar höfðu
verið birtir á Rotten Tomatoes.com voru um
80% þeirra jákvæðir.
Aðrir miðlar: Imdb:6.6, Rotten Tomatoes:80%,
Metacritic:67%
soderberGh Teflir fram nýrri hasardömu
Sá snjalli leikstjóri Steven Soderbergh hefur illu heilli látið þau boð út ganga
að hann hyggist hætta að leikstýra fljótlega. Hann er þó síður en svo dauður
úr öllum æðum og býður upp á heilmikinn hasar og fjör í sinni nýjustu mynd,
Haywire, þar sem fyrrum meistari í blönduðum bardagalistum, Gina Carano,
sýnir mikil tilþrif og þykir jafnvel líkleg til þess að skáka sjálfri Angelinu Jolie í
hasargelludeildinni.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Angelina má fara að vara sig
frumsýndar
Empire
mælir
eindregið
með því að
Angelina fari
að endur-
nýja líkams-
ræktarkortið
sitt.
Journey 2: The Mys-
terious Island
Dwayne Johnson, The Rock,
leikur hinn vöðvastælta Hank
Parson sem slæst í för með
ungum manni, Sean, sem er
harðákveðinn í að finna afa sinn.
Sá hvarf fyrir margt löngu þegar
hann lagði land undir fót í leit að
ævintýraeyju úr skáldskap Jules
Verne.
Sean er alveg viss um að afi hans
hafi í raun fundið eyjuna en geti
bara ekki látið vita af því og því
síður nákvæmlega hvar hann sé.
Hank er efins um að eyjan sé til
en fylgir Sean engu að síður á
háskaslóðir.
Aðrir miðlar: Imdb: 6.1, Rotten
Tomatoes: 43%, Metacritic: 41%
Polanski í hjónadeilu
Hinn umdeildi og á köflum mistæki meistari
Roman Polanski hefur yfir úrvals mannskap
að ráða í Carnage og býður hér upp á Jodie
Foster, John C. Reilly, Kate Winslet og
Christoph Waltz í gamansömu drama.
Tveimur ungum skólafélögum lendir saman á
skólalóðinni og lýkur viðskiptum þeirra með
því að annar lemur hinn í andlitið með spýtu.
Foreldrar drengjanna ákveða að setjast
saman niður og leysa úr þessu leiðindamáli
að hætti kurteiss og almennilegs fólks. Sátta-
fundurinn fer vel af stað og allt útlit fyrir
að báðir aðilar geti fallist á ásættanlegar
málalyktir.
Þegar nokkur óheppileg orð eru látin falla fer
hins vegar allt í kaldakol og deilur hjónanna
stigmagnast og enda í hávaðarifrildi þar
sem ásakanir fljúga á báða bóga og ýmislegt
kemur upp á yfirborðið sem átti að liggja
kyrrt.
Gina Carano stígur út úr bardagabúrinu yfir á hvíta tjaldið þar sem hún velgir stórleikurum á borð við Antonio
Banderas og Ewan McGregor undir uggum með þeim fantabrögðum sem hún hefur lært í blandaðri bardagalist.
Kurteislegur hjóna-
fundur leysist upp í
harða deilu þegar röng
orð eru látin falla.
Ghost Rider: Spirit of Vengeance
Sennilega er Nicolas Cage blankur þar sem
hann hefur séð ástæðu til þess að snúa aftur í
hlutverki Johnny Blaze í Ghost Rider 2. Blaze
seldi djöflinum sál sína til þess að bjarga lífi
lærimeistara síns og hefur á síðan barist gegn
hinu illa á meðan hann reynir að losna undan
þeim álögum
sem hann er í
og eru ekki síst
sýnileg þegar
hann spókar sig
með logandi
hauskúpu í stað
kunnuglegs
andlits Cage.
Þegar hér er komið við sögu hefur Johnny haft
hægt um sig einhvers staðar í Austur-Evrópu
og látið lítið til sín taka enda þráir hann mest
að lifa sem eðlilegustu lífi á meðal fólks sem
veit ekki hver hann er. Þetta breytist þegar
aðilar innan kirkjunnar leita til hans og biðja
hann um að bjarga lífi ungs drengs sem þeir
óttast að djöfullinn ætli sér að umturna í
sjálfan Anti-Krist.
Aðrir miðlar: Imdb: 5.6, Rotten Tomatoes:
15%, Metacritic: 31%
Myndin er byggð á leikritinu God of
Carnage sem hefur verið sett á fjalirnar
á Broadway.
Aðrir miðlar: Imdb: 7.5, Rotten
Tomatoes: 71%, Metacritic: 61%.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS CAFÉ/BAR, opið 17-23
VERTU FASTAGESTUR!
Ódýrara í bíó með aðgangskortum!
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
MAGNAÐUR BRESKUR DRAUGAHROLLUR
THE AWAKENING
MEÐ REBECCA HALL
THE SKIN
I LIVE IN
PEDRO ALMODÓVAR!
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS!
Ridley Scott nældi
aftur í Fassbender
Michael Fassbender er einn allra heitasti
leikarinn í bransanum um þessar mundir og
Ridley Scott er nú búinn að festa sér hann í
aðalhlutverkið í sinni næstu mynd sína, The Co-
unselor, sem gerð verður eftir handriti Cormac
McCarthy.
Heimatökin voru að vísu hæg hjá Scott þar
sem Fassbender er í fremstu víglínu í Promet-
heus sem Scott lauk tökum á ekki alls fyrir
löngu og sneri sér beint til leikarans þegar kom
að því að ráða mann í The Counselor. Myndin
segir frá virtum lögmanni sem telur sér óhætt
að fikta aðeins við fíkniefnaviðskipti án þess
að sogast ofan í þann viðbjóð sem slíku braski
fylgir en hlutirnir fara á versta veg.
McClaine tuktar terrorista í Rússlandi
Leikarinn Jai Courtney mun leika son löggunnar grjóthörðu John McClaine sem hefur,
eins og flestir vita, sérstakt dálæti á hvítum hlýrabolum og hefur komið hryðjuverka-
mönnum til heljar í löngum
röðum í fjórum Die Hard-
myndum.
Tökur á fimmtu myndinni, A
Good Day to Die Hard, hefj-
ast í apríl og þar munu faðir
og sonur snúa bökum saman í
baráttu við hryðjuverkamenn
í Rússlandi. Ævintýri feðg-
anna byrjar þegar reynslu-
hokin New York-löggan
McClane fer til Moskvu til
þess að bjarga syni sínum úr
klandri. Þegar þangað er komið tekst McClane að sjálfsögðu að lenda í útistöðum við ill-
þýði og fjandinn verður laus og þá er ekki verra að vera með vaskan soninn sér við hlið.