Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.02.2012, Side 52

Fréttatíminn - 24.02.2012, Side 52
Helgin 24.-26. febrúar 201244 tíska Gestapistla- höfundur vikunnar er Gunnhildur Birna Gunn- arsdóttir förðunarfræðingur 5 dagar dress Kláraði fatakaupa- kvótann í París Thelma Björk Jónsdóttir er 29 ára fatahönnuður og móðir. Sonur hennar Skorri Ísleifur er eins árs leikskólabarn og mikill gleðigjafi. „Ég hef ekki keypt mér flík í nokkur ár,“ segir Thelma Björk. „Þegar ég bjó út í París fyrir nokkrum árum kláraði ég kvótann. Þar keypti ég heilan lager af fötum sem duga mér vel ennþá. Ég er líka rosalega heppin að eiga fullt af vinum sem eru fatahönnuðir og hef ég verið dugleg að gera skiptidíla. Sjálf hanna ég hatta og höfuðföt undir nafninu Thelma sem ég sel í versluninni á Kiosk á Laugavegi. Ég hef einnig sloppið vel að kaupa föt á Skorra Ísleif. Ég held að ég hafi aðeins keypt eina flík á hann gegnum æfina og það var trefill úr Náttúrulækn- ingabúðinni. Amma hans er voðalega dugleg að kaupa á hann föt í útlöndum og svo hafa eldri strákar gefið honum æðisleg föt sem þeir hafa sjálfir vaxið úr.“ Fimmtudagur Thelma Skór: Vivienne Westwood Pils: Vivienne Westwood Bolur: Vivienne Westwood Kambar: Thelma Skorri Skór: H&M Peysa: Allt merkilegt Hattur: H&M Sprengidagur Thelma Skór: Leðurbúðin á Laugarveginum Kjóll: Vivienne Westwood Kápa: Vivienne Westwood Hattur: Thelma Taska: Chanel Skorri Skór: H&M Buxur: Frá Spáni Úlpa: 66 gráður Norður Húfa: Gjöf frá ömmu Bolludagur Thelma Skór: Leðurbúðin á Laugarveginum Kjóll: Vintage markaður í París Peysa: Lager frá París Klútúr: Go With Jan Spöng: Thelma Skorri Skór: H&M Buxur: Frá Spáni Skyrta: Gjöf frá USA Hattur: Gjöf Öskudagur Thelma Peysa: Í öðru hverfi í París SKór: Leðurbúðin á Laugarveginum Skorri Galli: Gap Skór: Gjöf frá Steinu frænku Föstudagur Thelma Skór: Vivienne Westwood Buxur: Cheap Monday Belti: Frá gömlum kærasta Toppur: Skaparinn Hattur: Thelma Skorri Skór: Hagkaup Smekkbuxur: Af Diðrik Högna Samfella: Gap Klútur: Af Diðrik Högna Hattur: H&M Stökkpallur fyrir óreynda blaðamenn Síðustu sextíu ár hefur tímaritið Vogue haldið hæfileikakeppni fyrir unga og óreynda texta- smiði þá sem yngri eru en 25 ára. Í ár verður engin breyting á því og í byrjun næsta mánaðar er hægt að senda inn 800 orða grein sem helst á að fjalla um persónulega lífsreynslu, eftirminnilegan ein- stakling eða minnistæða atburði. Í verðlaun eru 200 þúsund krónur ásamt einum launuðum mánuði á blaðinu. Þykir þetta mikill stökk- pallur fyrir verðandi blaðamenn og eru þekkt nöfn á borð við Söruh Mower, nú aðstoðaritstjóri bandaríska Vogue, sem hafa unnið í þessari keppni. Nýr ilmur Selenu væntanlegur Söngkonan og Disney-stjarnan Selena Gomez hefur valið tíu úr hópi dyggustu aðdáenda sinna við að hjálpa til við framleiðslu á nýjasta ilmi sínum og vinna þau nú hörðum höndum við að klára hann fyrir apríl- mánuð. Mikill fjöldi aðdáenda sótti um að komast að við starf þetta og gengust þau undir erfitt próf sem söngkonan setti þeim. Þau tíu útvöldu sem stóðu uppúr, eru flest á hennar aldri og búa að sögn yfir miklu hugmynda- flugi og sköpunargáfu. Ilmurinn mun vera mjög stelpulegur og verður ilmvatnsflaskan eins og prinsessukjóll í laginu. Hann er væntanlegur fyrir sumarið og búist er við að hann muni njóta mikillar athygli ungra stúlkna. Húðvörulína úr sjávargróðri Fyrr í vikunni var ný vor/sumar lína frá MAC sett í sölu á Bandaríkjamarkaði og ber hún nafnið Lightfully New. Þetta er ekki förðunarlína eins og MAC er þekkt fyrir að koma með á hverju vori heldur mikilvægar húðvörur sem sagt er að fái þann sem noti til að geisla af heilbrigði. Vörurnar eru unnar úr þrennskonar sjávargróðri sem ræktaður er víða um heim og á hann að veita húðinni næringu, raka og aukinn ljóma. Línan samanstendur af hreinsimjólk, sem afeitrar húðina, rakakremi sem heldur húðinni unglegri og fleiri góðum húðvörum sem sumum finnst ómissandi. Mikilvægi húðarinnar við förðun Sem förðunarfræðingur og penni hjá Pjattrófunum fæ ég reglulega spurningar sem varða útlit húðar og hvernig hún getur litið sem best út. Hægt er að ná því fram með því að temja sér það að hugsa vel um húðina; þrífa hana kvölds og morgna, nota góð krem daglega og dekra við hana reglulega. Velja þarf réttan farða sem hentar húðgerð viðkom- andi. Það er ágætis þumalputtaregla að farðinn passi við húðlit og sé ekki meira en einum tóni dekkri eða ljósari. Einnig þarf að huga að því að nota farða sem dregur fram það besta í þinni húðgerð. Til dæmis er sniðugt að nota olíulausan farða á feita húð, feitari farða á þurra húð og þar fram eftir götunum. Jafnið húðlitinn út með því að bera þunnt lag af farða á andlit og niður á háls með meikbursta eða svampi. Til eru margar gerðir af góðum burstum og það er um að gera að kynna sér úrvalið sem er til! Notið hyljara í að fela bauga, setja í kringum nef og á mis- fellur og lausu púðri er dustað yfir andlit til að fjar- lægja aukaglans og festa farðann betur. Fallegt er að skyggja kinnbein og kjálkalínu með sólarpúðri og setja kinnalit fremst á kinnar fyrir meiri frískleika. Svo er hægt að fá „highlight“ púður eða krem fyrir meiri lýsingu ofan á kinnbein, á mitt enni og nef. Ég mæli með þessum ráðum hér fyrir ofan til að ná fram fallegri og ljómandi húð. Atriði eins og vel máluð augu og varir koma mun betur út og andlitið geislar.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.