Fréttatíminn - 06.07.2012, Side 19
LEIÐIN TIL
HOLLUSTU
www.skyr.is
Norræna matvælamerkið
Skráargatið auðveldar þér að
velja holla matvöru.
Vörur með Skráargatinu verða
að uppfylla ákveðin næringar-
viðmið og teljast hollastar í
sínum fæðuflokki.
Skyr.is drykkirnir standast
þessar ströngu kröfur, þú
getur því treyst á hollustu
Skyr.is.
milli félagslegrar stöðu og heilsu.
Í Grænlandi sést þetta greinilega í
rannsóknum sem gerðar voru á ár-
unum 2005-10 á heilsu hinna efnuð-
ustu og fátækustu í samfélaginu.
Tvöfalt fleiri hinna fátækustu reykja,
tæp 80 prósent á móti 40. Munurinn
á drykkju er sá sami, 60 prósent
hinna fátækustu drekka of mikið en
28 prósent hinna efnuðustu. Hinir fá-
tækustu þjást frekar af langvarandi
sjúkdómum og búa við mun fábreytt-
ara mataræði.
En hver eru stærstu vandamálin?
„Það fer eftir því til hvers maður
horfir. Það er margt mjög jákvætt
að gerast,“ segir Birgit. „Við sjáum
þó að það hefur reynst erfitt fyrir
hluta samfélagsins að taka þátt í
þessum breytingum, sérstaklega
fólk í byggðunum. Þar eru skólar oft
ekki eins góðir og því erfitt að sækja
sér góða menntun sem verður þess
jafnframt valdandi að það er erfið-
ara fyrir fólk að taka þátt í þeim já-
kvæðu breytingum sem eru í gangi
í samfélaginu. Íbúar í samfélögun-
um í byggðunum hafa jafnframt aðra
reynslu en fólk í stærri samfélögum
og það er erfitt að breyta einhverju
sem fólki finnst ekkert vera vanda-
mál. Þess vegna verða breytingar
fyrst í Nuuk og breiðast síðan út um
landið,“ segir Birgit.
„Mitt helsta áhyggjuefni er heilsa
barna. Ég hef til að mynda skoðað
sérstaklega fjölskyldur þar sem for-
eldrar geta ekki hugsað um börn sín
án utanaðkomandi hjálpar. Vanda-
málin tengjast mjög oft misnotkun
áfengis sem hefur áhrif á fjölskyldu-
lífið og heilsu barnanna,“ segir Birg-
it.
Áfengisneysla mikið vandamál
Áfengisneysla í Grænlandi er mun
meiri en á öllum öðrum Norðurlönd-
unum nema í Danmörku en Danir
neyta mesta magns áfengis allra
Norðurlandabúa. Neysla Grænlend-
inga er hins vegar annars eðlis en
Dana og einkennist af túrafylleríum.
Áfengisneysla hefur dregist all-
verulega saman í Grænlandi frá því
um miðjan níunda áratuginn þegar
hún náði hámarki. Árið 1782 lögðu
Danir bann við sölu áfengis til ný-
lenduþjóðarinnar Grænlendinga.
Banninu var aflétt smám saman og
árið 1954 gátu íbúar á vesturströnd-
inni keypt áfengi að vild. Árið 1960
neyttu Grænlendingar yfir 14 ára
aldri að meðaltali 6 lítra af vínanda
á ári. Það jókst hratt á 7. áratugn-
um og í kjölfarið var Edrúráðið sett
á fót í því skyni að greina áfengis-
vandann og bregðast við honum. Í
niðurstöðum Edrúráðsins frá árinu
1971 kemur fram að 37 prósent allra
heimila stríða við áfengisvandamál.
Árið 1974 var neyslan komin í 19 lítra
á mann á ári en í kjölfarið voru settar
takmarkandi reglur á sölu áfengis
sem urðu til þess að neyslan dróst
saman um nær helming.
Eftir að reglurnar voru afnumdar
jókst áfengisneyslan að nýju og náði
sögulegu hámarki árið 1987 í 22 lítr-
um af vínanda á mann árlega. Árið
2011 var neyslan 9,8 lítrar á mann
á ári og hefur dregist saman um 3,7
lítra frá því árið 2000. Til saman-
burðar var áfengisneysla á Íslandi
7,5 lítrar árið 2007 en Hagstofan
hefur ekki gefið út tölur um áfengis-
neyslu Íslendinga síðan þá.
Fyrsta áfengismeðferðarstöðin
var opnuð á Grænlandi árið 1995
og í kjölfarið var önnur meðferðar-
stöð opnuð í Ilulissat. Árið 1999 var
áfengis- og vímuefnaráð sett á stofn
sem hefur það að markmiði að vinna
að forvörnum gegn áfengis- og vímu-
efnaneyslu, sem og að úrræðum.
Mikill meirihluti fólks sem fætt
er á árunum 1960-1985 ólst upp við
að foreldrar þeirra áttu við áfengis-
vandamál að stríða, samkvæmt
rannsóknum Peter Bjerregaard,
prófessors í miðstöð heilbrigðis-
rannsókna í Grænlandi. Alls sögð-
ust 60-70 prósent þessa fólks hafa
alist upp við alkóhólisma. Þriðjungur
þeirra varð oft fyrir kynferðislegri
misnotkun, 43 prósent höfðu gert til-
raun til sjálfsvígs eða strítt við sjálfs-
vígshugsanir, 42 prósent átti sjálft
við áfengisvandamál að stríða og nær
70 prósent reyktu.
Börn alkóhólista nú foreldrar
Birgit er spurð að því hvers vegna
áfengisneysla er svona mikið vanda-
mál í Grænlandi? „Vegna þess að
Grænlendingar eru ekki vanir því
að neyta áfengis. Þetta átti sér líka
stað í iðnríkjunum – þegar fólk flutti
frá þorpum í bæi og borgir urðu til
mikil vandamál tengd áfengisneyslu.
Áfengi kom í raun til Grænlands á
sjötta áratug síðustu aldar og börn
fyrstu kynslóðar þeirra sem neyttu
áfengis eru nú foreldrar. Vandamálið
verður enn stærra ef þú elst upp við
misnotkun áfengis, hefur ekki fengið
að læra hvernig setja á mörk eða ein-
faldlega hvernig venjulegir hlutir eru
gerðir. Það er skaðlegt að eiga ekki
í nánu tilfinningasambandi við for-
eldra þína líkt og gerðist á þessum
árum. Hvernig geturðu átt í tilfinn-
ingasambandi við börnin þín ef þú
áttir ekki í slíku sambandi við for-
eldra þína? Ef þú hefur aldrei fengið
að borða á reglulegum tímum, hvern-
ig áttu að geta gefið börnunum þín-
um morgunmat áður en þau fara í
skólann? Það tekur skamma stund
að eyðileggja en margar kynslóðir
að laga aftur,“ segir Birgit.
„Við lítum á áfengisvandamálið
sem stærsta vandamálið í hinni nýju
lýðheilsuáætlun. Í öðrum vanda-
málum, svo sem reykingum, mat-
aræði, hreyfingu og þess háttar
erum við með eitt ár þar sem við
undirbúum aðgerðir tengd þessum
vandamálum og framkvæmum þær
síðan árið á eftir. Hvað varðar áfeng-
isvandann erum við hins vegar með
aðgerðir í framkvæmd öll fjögur
árin. Það á ekki aðeins við um okkar
áætlun heldur einnig aðrar áætlanir
sem tengjast heilbrigði, svo sem heil-
brigði barna,“ bendir hún á.
„Frá og með 1. janúar 2012 hafa
verið gerðar miklar umbætur á
áfengismeðferðarkerfinu sem er
hluti af lausninni á þessu fjölþætta
vandamáli, því áfengisneysla er ekki
orsök vandamálsins heldur afleiðing.
Það hafa almennt orðið miklar fram-
farir á sviði áfengisvarna frá því lýð-
Alls sögðust 60-70
prósent þessa fólks
hafa alist upp við
alkóhólisma. Þriðj-
ungur þeirra varð
oft fyrir kynferðis-
legri misnotkun ...
Framhald á næstu opnu
úttekt 19 Helgin 6.-8. júlí 2012